Vera - 01.11.1982, Síða 7

Vera - 01.11.1982, Síða 7
 "'V, Af hverju.... „Eg verð óttaslegin og hrædd við tilhugsunina um nauðgun", sagði 13 ára stúlka, sem ég átti tal við um daginn. Hún er örugglega ekki ein um óttatilfinninguna. Allar konur þekkja hræðsluna við að lenda í þeirri aðstöðu að karlmaður beiti líkamlegum yfirburðum til að kúga/ þvinga þær til samfara. Konan er vöruð við þessari hættu strax sem lítið barn og er á varö- bergi gagnvart henni allt sitt líf. Kona forðast aö vera ein á ferli um nriðjar nætur, hún hleypir ekki ókunnugum manni inn til sín o.s.frv. Tortryggnin og hræðslan eru stöð- ugur förunautur kvenna og ekki aö ástæöulausu. Pví hvaða afleiðingar hefur það fyrir konu, þegar karlmaður leitar á hana gegn vilja hennar og/eða nauðgar henni? Þær eru óteljandi; konan telur sig vanvirta, hún týnir trausti sínu á manneskjunni og um- hverfinu. Sjálfstæði hennar og sjálfsöryggi verður stórlega skert. Hún verður hjálparþurfi og full minnimáttarkenndar. Umræður um nauðganir og af- leiðingar þeirra hafa ekki verið telj- andi hér á landi. Nauðganir hafa veriö feimnismál, sem þagað er yfir eða pískrað um í hornum. í nokkur ár hefur verið á kreiki sá orðrómur, að karlmenn bjóði unglingsstúlkum far heim úr miðbæ Reykjavíkur til þess að leita á þær. Þessi orðrómur hefur verið staðfestur í nokkrum tilvikum, en lítið að gert. (Sbr. við- talið við Laufeyju í þessu blaði.) Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi Kvennaframboðsins tók þetta mál til umræðu í félagsmálaráði og varð niðurstaða þeirra umræðna m.a. sú að fela útideildinni að gera könnun á því hvernig unglingar kænrust hcim á kvöldin eftir að strætisvagn- ar eru hættir að ganga. Niðurstöðu þeirrar könnunar er að vænta inn- an tíðar. Reynsla stelpnanna Nýverið átti undirrituð tal við tvær unglingsstelpur, sem nýlega eru komnar á kynþroskaskeið, um þessi mál. Þessar stúlkur eru báðar oft seint úti á kvöldin einsoggengur og einar af mörgum, sem „húkka“ sér stundum far heim af ,,planinu“ á kvöldin. Ég spurði þær fyrst hvernig þær kæmust annars heim eftir að strætó er hættur að aka. Önnur þeirra sagðist alltaf taka leigubíl, því mamma sín hefði alveg bannað sér að húkka far. Hin sagð- ist olt sníkja far og oft með ókunnug- um karlmönnum. Hún sagðist hafa lent í því nokkrum sinnum að þessir karlar hefðu reynt að gera sér dælt við hana: „Einu sinni lenti ég í því að ein- hver karl lofaði að keyra mig heim, en í staðinn fyrir að aka þangað, keyrði hann niður í fjöru og byrjaði að káfa á mér, ég varð alveg ofsa- lega hrædd og tókst að komast út úr bílnum og hlaupa í burtu.“ I annað skipti, hélt hún áfram „bauðst eldri karlmaður til að gefa mér brennivín fyrir samfarir, maður er alltaf að lenda í einhverjum svona körlum og alltaf hræddur við að lenda í ein- hverju veseni.“ Bara móðursýki? „Ég hef ekki kært þessa menn, það þýðir ekkert, löggan myndi ekki trúa mér, telja þetta bara móð- ursýki og vitleysu í mér. Lögreglan segði mér líklega að fara heim að sofa og vera ekki að þvælast úti um miðjar nætur, ,ég hef slæma reynslu af löggunni.“ Báðum viðmælendum mínum fannst þó rétt að kæra og að það væri skylda lögreglunnar að rann- saka öll svona ntál mjög gaumgæfi- lega, því stelpur staðhæfi ekki svona hluti út í bláinn. Ég spyr þær hvort þær haldi að það sé rétt sem sagt er, að karlar keyri um miðbæinn í því eina erindi að krækja sér í stelpu? ,,Jahá“ segja þær báðar, „og maður veit alveg hverjir nokkrir þeirra eru, en það þorir enginn að kæra þá, því það er eitthvað svo skammarlegt að lenda í þessu og eins og það sé manni sjálfum að kenna. Maður þarf víst að tor- tryggja alla.“ „Þeir reyna alltaf að komast sem lengst...“ „Það er t.d. sagt, að maður eigi að vita það sjálfur að vera ekki að þvælast með ókunnugum mönn- um.“ „En einhvern veginn er það þannig með stráka og karla, að þeir reyna alltaf að komast sem lengst, þegar maður er með þeirn og við stelpurnar erum alltaf að verja okk- ur, banna þeim að káfa á brjóst- unum, banna þeim hitt og banna þeim þetta. Þeir vilja bara komast yfir mann og svo er allt búið. Viö stjórnum alveg örugglega ekki ferð- inni í kynferðislegu samneyti okkar við strákana. En þetta á ekki að vera svona, — við vitum ekki af hverju þetta er svona, auövitað ætt- um við stelpurnar að ráða ferðinni jafnt og þeir. Okkur finnst sjálfsagt, að konur fái það sama út úr samför- um og karlar, en yfirleitt höldum við að karlar hugsi bara um það að fá fullnægingu fyrir sig og svo er allt búið.“ „Nei, við getum ekki rætt þessi mál við strákana, sem við þekkjum, kannski pínulítið þegar maður er búinn að fá sér í glas. En við ræðum þessi mál og reynslu okkar við vin- konur okkar.“ Stclpurnarsegjaaðflestar 13-14 ára hafi einhverja reynslu og að stelpurnar séu alltaf að verða yngri og yngri, þegar þær hafa samfarir. „En við vitum ferlega lítið um þessi mál, maður lærir aðallega af eldri vinkonum og á götunni, það er svo lítil fræðsla í skólunum." „Nauðgun — ég fyllist viðbjóði við tilhugsunina" segja þær báðar og fleiri upphrópanir fylgja: ógeð, saurugt. . . Þær halda báðar að það sé miklu meira um nauðganir á stelpum en um sé vitað, en of marg- ar þori ekki að kæra, „það er eitt- hvað svo mikið mál og svo mikil skömm". „Mömntu vinkonu minnar var nauðgað og hún er stöðugt hrædd um stelpuna sína, bannar henni að vera úti á kvöldin og er alltaf að segja henni að karlmenn séu hættu- legir. Við skiljum ekkiaf hverju lífið er svona, það er eins og við þurfum alltaf að vera að passa okkur á öllu, alltaf, alltaf..“ Snjólaug P

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.