Vera - 01.11.1982, Qupperneq 12
Lögin og
Tímabært að endurmeta viðhorf til nauðgana
Nauðgun er meðal al-
varlegustu afbrota sem
lýst eru refsiverð í íslensk-
um hegningarlögum.
Þetta afbrot á það sam-
merkt með manndrápi og
meiri háttar líkamsmeið-
ingum að það getur varðað
ævilöngu fangelsi.
Nauðgun telst til svo-
kallaðra skírlífisbrota,
sem í seinni tíð eru einnig
nefnd kynferðisbrot og er
um þau fjallað í 22. kafla
hegningarlaganna frá
1940. Fimm ákvæði þessa
kafla eru sett til vemdar
kynfrelsi kvenna og er
nauðgunarákvæðið, 194.
grein, meðal þeirra, en
önnur ákvæði kaflans
miða að því að vernda
kynferðislíf barna og ungi-
inga, koma í veg fyrir að
menn geri sér lauslæti
annarra að tekjulind,
vernda blygðunartilfinn-
ingar og leggja refsingu við
athöfnum sem geta valdið
almennri hneykslan.
Nauðungarákvæðið er
kynbundið ákvæði, en það
þýðir að einungis karl-
menn geta gerst sekir um
nauðgun og brotið getur
eingöngu beinst gegn kon-
um en ekki öfugt. Að
þessu leyti hefur afbrotið
nauðgun sérstöðu meðal
annarra hegningarlaga-
brota.
Hvað er nauðgun?
Þaö telst nauögun ef karlmaöur
knýr fram samræði viö konu gegn
vilja hennar. Að hann hafi þröngv-
aö konunni til holdlegs samræðis
með ofbeldi, frelsissviptingu eða
meö því aö vekja henni ótta um líf,
heilbrigði eða velferö hennar sjálfr-
ar eöa náinna vandamanna hennar.
— 194.gr.
Þá telst það einnig til nauðgunar
ef karlmaöur kemst yfir kven-
mann" — svo notað sé orðalag lag-
anna — með því að svipta hana sjálf-
ræði sínu. Þ.e. hann veldur því t.d.
með áfcngi, deyfilyfjum eða dá-
leiðslu að konan fellur í svefn eða
missir meðvitund andstætt vilja sín-
um, og það ástand notfærir hann sér
í kynferðislegum tilgangi.
Nauðgunarákvæðið hefur verið
túlkað á þá leið að nauögun sé
bundin við „venjulcgar" hetero-
sexuelar samfarir, sem þvingaðar
eru fram gegn vilja konunnar. Ef
konu er misboðið kynferðislega á
annan hátt á slíkt brot undir annað
ákvæöi skírlífsbrotakaflans er
heimilar „vægari refsingu að til-
tölu“ en 194. gr„ enda þótt slík árás
kunni að vera ekki síður alvarleg
árás til „venjulegra" samfara, með
tilliti til andlegra og líkamlegra
þjáninga, ekki síst ef konan er ung