Vera - 01.11.1982, Page 14
Annað meginsönnunargagn er
Iæknisvottorð, en í öllum tilvikum
fer fram læknisrannsókn á konunni.
Læknirinn framkvæmir skoðun á
kynfærum konunnar, vottar um lík-
amlegt ástand hennar að öðru lcyti
svo og um andlegt ástand hennar.
Önnur sönnunargögn eru niður-
stöður vettvangsrannsóknar, fram-
burðir vitna ef einhver eru, og svo í
sumum tilvikum ljósmyndir, þó að
mörgum finnist nokkuð langt vera
gengið að stilla konu upp fyrir
myndatöku við jafn átakanlegar
kringumstæður. En mér skilst að
það séu hvorki teknar myndir af
kynfærum kvenna eða andliti held-
ur aðeins af áverkum annars staðar
á líkamanum.
Eftir að rannsóknarlögreglan
hefur lokið rannsókninni er máliö
sent til ríkissaksóknara og sér það
embætti um að gefa út ákæru í mál-
inu. Síðan er málið tekið fyrir í
sakadómi, sem skipaður er einum
dómara. Dómarinn leggur mat á
þau gögn sem eru þegar fram komin
og hann kallar síðan til sín aðila til
frekari yfirheyrslu fyrir dómi. Að
þessu loknu kveður dómarinn upp
dóm í málinu sem áfrýja má til
Hæstaréttar.
Meðalrefsing ekki há
í upphafi þessarar greinar var
sagt að nauðgun væri meðal alvar-
legustu brota sem lýst væru refsi-
verð í íslenzkum hegningarlögum
og að skv. 194. gr. geti slíkt afbrot
varðað allt að ævilöngu fangelsi.
Paö hefur hins vegar aldrei borið
við hér á landi að maður hafi verið
dæmdur í ævilanga fangelsisvist fyr-
ir nauðgun. Þyngsti dómur sem
kveðinn hefur veriö upp í nauögun-
armáli hljóðaði upp á 10 ára fang-
elsi. Að jafnaði er meðalrefsing
fyrir nauðgun ekki há. Þó að full
þörf sé á hefur ekki verið gerð sér-
stök könnun á því hver meðalrefs-
ingin er í nauðgunarmálum hér á
landi. Til fróðleiks má nefna dóm
fráárinu 1979enþarvarkarlmaður
fundinn sekur um eina nauðgun og
eina tilraun til nauðgunar auk þess
sem hann hafði stolið bíl. Við
nauðganirnar tók hann konurnar
kverkataki til þess að koma fram
vilja sínum svo að þeim lá við köfn-
un. Þessi maður hlaut tveggja ára og
sex mánaða fangelsisdóm.
Önnur viðurlög við nauðgunar-
broti geta verið svipting erfðaréttar,
og aðgerðir til þess að koma í veg
fyrir að viðkomandi auki kyn sitt
(afkynjanir). Þá er það og viðtekin
regla í nauðgunarmálum að konan
krefst bóta, bæði miskabóta fyrir
sálrænt áfall og svo skaðabóta fyrir
t.d. líkamstjón, skemmdir á fatnaði,
atvinnumissi o.s.frv.
Lokaorð
Eg hcf nú reynt að stikla á stóru á
nokkrum atriðum sem snerta af-
brotið nauðgun. Þau scm áhuga
hafa á að kynna sér þessi mál írekar
ættu að verða sér úti um 1-2 tbl.
Úlfljóts, tímarits laganema frá árinu
19X0 en þessi samantekt mín styðst
aö mestu leyti við það rit.
Eg rakst fyrir nokkru síðan á þá
staðhæfingu í bandarískri bók að
lögin væru samansafn af fordómum
og tillitsleysi gagnvart konum. Er
hægt að heimfæra þessa staðhæf-
ingu upp á íslenzk lög? Ég held að
við þurfum ekki að velta áður-
nefndri staðhæfingu fyrir okkur
ýkja lengi til þess að komast að
þeirri niðurstöðu að varðandi
nauðgunarmál þá er hún fullkom-
lega réttlætanleg. Eða hversu miklu
trúverðugri þykir ekki kæra konu
sem ber mikla líkamlega áverka,
gjörsamlega niðurbrotin andlega, í
sundurtættum fötum, en kæra frá
konu, sem hefur, vegna ótta um líf
sitt látið að vilja nauðgarans, án
þess að gefa honum tækifæri til þess
að limlesta sig?
Er ekki kominn tími til að breyta
viðhorfum til nauðgunar með meiri
samúð og skilningi á stöðu konunn-
ar í þessum málum?
Pórim Hafstein
lögfrœdingur
REVLON
snyrtivörur fást nú hjá
okkur.
Höfum opnad aftur
laugardaga kl. 9—12.
Fimmtudaga kl. 9—20.
og adra virka daga kl. 9—
17.
TIIUIUA hárgreióslustofa
I 11 ■ IVM Furugerði 3 sími 32935
14