Vera - 01.11.1982, Page 32
það, að þessir vesalingar voru
hraktir á milli manna, áður en þeir
fengu verustað. Og þó húsbændur
þeirra hefði verið svo veglyndir að
vilja lofa þeim að vera, þá hefðu
þeir ekki mátt það fyrir ráðríki yfir-
valdanna í hreppnum. Óttinn við
yfirvofandi sveitarþyngsli var svo
mikill.
Valgerður hét stúlkan sem móðir
mín tók í fyrra skiptið... . Allmikill
málarekstur, fundarhöld og þvíum-
líkt leiddi af þessu gustukaverki.
Móður minni var bannað að láta
stúlkuna ala barnið þar í sveitinni.
En svo mikið táp var í henni, þá
rúmlega tvítugri, að hún bauð öllu
byrginn og sagði hreppstjóranum,
ríkum og valdamiklum manni, að
hún léti ekki stúlkuna af sínu heim-
ili fyrr en hún væri orðin vel frísk
eftir barnsburðinn, og þar við sat.
Hin stúlkan, sem móðir mín tók,
hét Helga. . . . Hún var vinnukona
hér í næstu sveit og átti barnið með
vinnumanni, er var á sama bæ. Þó
að bæöi væru vel vinnandi, var
henni ekki leyft að eiga barnið þar í
tÍB^ggiOðSJ^ii!
Ótrúlega hagstæðir
greiðsluski/málar
Allt niður í 20%
• FLISAR • HREINLÆTISTÆKI •
• BLÖNDUNARTÆKI • BAÐHENGI •
• BAÐTEPPI • BAOMOTTUR
• MÁLNINGARVÖRUR • VERKFÆRI •
• HARDVIÐUR • SPÓNN •
• SPÓNAPLÖTUR • GRINDAREFNI
• VIÐARÞILJUR •
• PARKETT • PANELL • EINANGRUN
• ÞAKJÁRN >• ÞAKRENNUR •
• SAUMUR • RÖR • FITTINGS O.FL., O.FL.
01
lö
OPIÐ:
mánudaga — fimmtudaga kl. 8 — 18.
Föstudaga kl. 8 — 19. Laugardaga 9—12.
IU
fHl BYGGlNGflVÖRURl
Hrinahrant 190 — cími 9Rf:nn II
Hringbraut 120 — sími 28600
(aðkeyrsla frá Sólvallagötu).
u
hreppi. Ekkert umtal varð um það,
þó að móðir mín tæki þessa
stúlku.... Öllum var kunnugt um,
að ekki þýddi að banna móður
minni að gera það sem hún ætlaði
sér, því aö ráðrík var hún.“10
Guðbjörg Björnsdóttir átti því
miður fáa sína líka. Flestar voru
húsfreyjurnar annað hvort of háðar
aldarandanum eða of kjarkIitlar til
að standa uppi í hárinu á hrepps-
nefndarmönnunum, sem í skjóli
landslaga misþyrmdu þeim sem
minnst máttu sín, óbornum og ný-
fæddum börnum og mæðrum
þeirra.
Stundum gripu ógiftar stúlkur til
þess örþrifaráðs að svifta sig lífi er
þær voru barnshafandi. Um það má
víða lesa og jafnvel í þekktum
skáldverkum, eins og t. d. í Fegurð
himinsins, þar sem segir frá gömlu
konunni, sem hafði átt 16 börn og
misst þau:
,,. .. Hún vann fyrir þeim á dag-
inn og vakti yfir þeim á nóttunni.
Og þegar þau brostu framan í móð-
ur sína var sérhvert ský burt af
himninum, og sólin og tungliö og
stjörnurnar voru eign þessarar
konu. . . . Þegar börn hennar gáfu
upp öndina eftir erfitt dauðastríð
færði hún þau í hvítan hjúp og slétti
úr hverri fellingu með samskonar
umhyggju og hún væri að búa þau til
veislu. Hún grét fyrir moldum
þeirra, síðan fór hún heim til þeirra
sem lifðu. Önnur kvaddi hún stálp-
uð í túngarðshliðinu þegar þau
lögðu af stað út í heiminn. Beinun-
um af Helgu dóttur hennar skolaði
upp á eyri rúmu ári eftir aö hún
hvarf. Gamla konan gekk sjálf á
eyrina og tíndi upp beinin, og það
voru önnur lítil bein,.. ,“11
Tilvitnanir
1 Johan Fritzner: Ordbog over det
gamle norske Sprog, I.—III., Kristia-
nia 1886-1896.
2 Th. S. L. (Þórarinn Sigvaldason
Liliendal): Stutt ágrip af Lögmanns-
ins Páls Vídalíns Gloserunum yfir
Fornyrði Lögbókar íslendinga. —
Lærdómslistafélags (Det Islandske
Literatur-Selskabs) rit, II. árg., Kbh.
1782, bls. 136.
3 Dr. Lúðvík Ingvarsson: Refsingar á
Islandi á þjóðveldistímanum, Rvk.
1970, bls. 70.
4 Islenskt fornbréfasafn II. bindi, bls.
46-47.
5 Sigurjón Einarsson: Að Ieiða konur í
kirkju. — Saga, tímarit Sögufélags
XV, bls. 118.
7 Björn Sigfússon: Neistar — Úr þús-
und ára lífsbaráttu íslenskrar alþýðu
(B. S. tók saman). Rvík 1944. bls.
248-25?
8 Lagasafn 1973, II. bindi, bls. 2427.
9 Jón Þorleifsson: Grafskrift Itins
gleymda, Rvk 1978, bls. 57-58.
10 Guðbjörg Jónsdóttir frá Broddanesi:
Gamlar glæður, Rvk 1943, bls. 162-
163.
11 Halldór Laxness: Fegurö himinsins,
Rvk 1940, bls. 261.
KVENNAGUÐFRÆÐI
— hvað skyldi það vera?
Við fórum á stúfana, leituðum fanga m.a. hjá prestum
og guðfræðinj’um. Árangiirinn hirtist í næstu Veru,
sem kemur út rétt fvrir jól. Svo er auðvitað fullt af
iiðru efni.
Hvernig er það annars, eruð þið farnar að hugsa
fyrir jólagjiifunum? Áskrift að Veru gæti verið prýð-
ishuj>mynd!