Vera - 01.11.1982, Side 34
en þau hefur hann lagt fram á ný í
þinginu fyrir stuttu. Þorvaldur tal-
aöi um blóðfórnir íslensku þjóðar-
innar, og líkti fóstureyðingum við
barnaútburð sem tíðkaðist fyrr á
öldum.
í nafni kristinnar trúar
Eftir framsögur hófust umræður
milli frummælenda og stýrði þcim
einn úr hópi kristinna stúdenta.
Héldu menn fast við þær skoðanir
sem þeir lýstu í framsögu, ogsýndist
sitt hverjum. Hildur sagði Þorvaldi
aö konur vildu fá að sjá þær félags-
legu úrbætur sem gera mundu
neyöarúrræðið fóstureyðingu
óþarft, og spurði hvort hann vissi
hver mæðralaunin væru í dag. Þor-
valdur rakti tillögur sínar um breyt-
ingar á almannatryggingalöggjöf-
inni, en vissi því miður ekki upphæð
mæðralauna, enda ná þau ekki 200
kr. á mánuði með einu barni, og eru
því ekki umtalsverð.
Fundurinn stóð til rúmlega ell-
efu, og í lokin var ljóst að enn er til
sá hópur manna sem telur sig geta
haft vit fyrir konum, í nafni krist-
innar trúar eða einhvers annars.
Kristín Jónsdóttir.
ghettóunum? Hvar er söngur
kvennanna sem deyja á sæng síns
tólfta barns? Hvar er söngur barn-
anna þeirra, barna sem ríkisstjórn
þeirra vill ekki vita af, barna sem
hafa enga möguleika í lífinu?
Fundarmenn.
Þcssi mynd sem við vorum að
horfa á er í einu orði sagt hneyksli.
Hún er ruddaleg árás á konur, sem
ég fordæmi af fyllstu alvöru. Ég spyr
ykkur, — forsvarsmenn þessa fund-
ar — hverjir menn eruö þið að
koma á framfæri jafn viðbjóðsleg-
um málflutningi eins og þessara
hræsnisfullu herramanna sem að
þessari mynd standa?
Þið sem kennið ykkur við kristi-
legt umburðarlyndi — hverjir menn
eruð þið að ráöast á konur og sak-
fella þær af þvílíkri grimmd og fá-
fræði sem þessi mynd er dæmi um?
Það hefur kostað skildinginn að
gera þessa mynd. Ferð alia leið til
Sódommu! — sjálft trompið í
myndinni!! Mér verður flökurt.
Ekki hafa þaö veriö konurnar í
ghettóunum sem minnst er á í
myndinni, mitt í allri þjáningunni,
mitt í öllum skortinum, sem hafa
fjármagnað þá ferð? Af hverju
fengum við ekki að sjá þær? Eitt er
víst. Ekki búa þær eins og þessi guð-
fræðingur í sínum fílabeinsturni, —
víðsfjarri þeirra raunveruleika.
Tókuð þið eftir senunni með litlu
börnunum tveim í mömmuleikn-
um? A meðan að stelpan kipraði
munninn til að verjast hlátri, starði
drengurinn samviskusamlega í ljós-
in — og deplaði ekki auga alveg þar
til tárin fóru að renna? Ég er djúpt
snortin!
Á meðan hljómaði söngur fóst-
ursins — sunginn af grátþrunginni
Sylvías mother-rödd. Var þetta
söngur frjóvgaða eggsins sem lykkj-
an kemur í veg fyrir að geti festst?
Samkvæmt skilgreiningum þessara
manna er það jafn mikil fóstureyð-
ing.
Hvar er söngur kvennanna í
Fundarmenn.
Áratugum saman hafa konur
krafist góðrar kynfræðslu, öruggra
getnaðarvarna og réttarins til fóst-
ureyðinga. Konur hafa frá ómuna-
tíð verið þrælar líkama síns — þræl-
ar síns líffræðilega hlutverks — án
þess að geta rönd við reist. Þær hafa
ekki haft nokkur tök á að skipu-
leggja líf sitt sjálfar. Það er alls ekki
langt síðan að konur hér hlóðu nið-
ur börnum sínum, — alltof ungar,
alltof fátækar, jafnvel sjúkar, — í
hvaða ástandi sem var — hvenær
sem var. Það er ekki langt síðan að
konur gátu ekki sinnt neinu öðru
hlutverki en barneignahlutverkinu
— gátu ekki menntað sig, ekki tekið
þátt í atvinnulífi, voru ekki fullgildir
þátttakendur í því lífi sem þær
höfðu fæðst til.
Það eru aðeins nokkrir dagar síð-
an að kona hér sagði mér— hún er
nú á fimmtugsaldri — að þegar hún
fæddi sitt fyrsta barn sautján ára
gömul, — þá hafi hennar fyrsta
hugsun á sænginni verið þessi: —
jæja — nú er ég búin að prófa allt
sem lífið hefur að bjóða mér.
Árangur læknavísindanna í þró-
un getnaöarvarna og læknisfræöi-
legir möguleikar til að framkvæma
fóstureyðingar á sem öruggastan
hátt, hefur orðið til þess að konur
geta nú í fyrsta skipti haft nokkra
stjórn á eigin lífi. Á meðan að
óæskileg þungun getur átt sér stað,
hvort sem það er vegna brigöulla
getnaðarvarna, fáfræði eða vegna
ofbeldis, er konum nauðsyn að eiga
rétt til fóstureyðinga.
Rétturinn til fóstureyðinga er
spurning um lýðræðisleg réttindi
kvenna. Það eru sjálfsögð mann-
réttindi að konur fái aö hafa stjórn á
því hvort og hvenær þær eiga sín
börn. Það er frumskilyrði þess hvort
konur búi við sjálfræði, að þær séu