Vera - 01.12.1986, Page 3

Vera - 01.12.1986, Page 3
VERA „bréf” Hótel Vík Reykjavík MEIRA UM PURPURALITINN Kæra Vera! Mig langar til aö leggja orö i belg um bókina The Color Purple eftir Alice Walker, eða Purpuralitinn í íslenskri þýð- ingu Ólafar Eldjárn, sem fjallað var um í síðustu Veru. Þegarég hafði lesið umfjöll- un Veru um bókina og ritdóm um sömu bók í Tímanum þann 19. nóvember s.l. fékk ég mikla þörf fyrir að tjá mig um efnið sem ég hér með læt eftir mér. í ritdómi Tímans segir að málfar og stíll sögunnar endurspegli vankunnáttu og umkomuleysi aðalpersónunnar Celie, en ekkert er minnst á málið sem slíkt. Ég var nýbúin að iesa bókina á frummálinu og hafði dáðst að því að því hvernig höfundurinn notar í bókinni fleiri en eina mállýsku (fleiri en eitt mál). Bókin er safn af bréfum sem aðal- Persónan Celie skrifar guði og systur sinni 09 síðan eru bréf sem systir Celie skrifar henni. Öll bréf Celie eru skrifuð á svartri ensku en bréf systur hennar Nellie eru skrifuð á ensku eins og við þekkjum hana best. Svört enska er það nafn sem oftast er notað yfir móðurmál svartra Bandaríkja- manna, sem er í mörgu lík ,,venjulegri“ ensku. Til dæmis dregur hún stóran hluta erðaforða síns þaðan en samt er svört enska áberandi öðruvísi enda talin eiga uPpruna sinn í kreólmálum svartra þræla. Blökkufólk var á þeim tíma sem sagan Qerist lægst sett í bandarísku þjóðfélagi og mál þeirra álitið illa töluð enska, sem það telaði vegna þess að það væri ekki fært Ufn að læra almennilegt mál. Sagan end- Urspeglar tíðarandann og málið á bréfum ^elie undirstrikar menningarlegan upp- runa hennar og stöðu hennar í þjóðfélag- mu sem blökkukonu. Síðar í bókinni þegar bún hefur risið upp á móti kúguninni er baft á orði við hana hvort hún ætli ekki að esra að tala „almennilega" en hún hafnar pví vegna þess að hún finnur að máliö sem Un talar er móðurmál hennar, það er það mál sem henni er tamast og hún tjáir sig está. Hún læturtilfinningarsínarráðaen samtal hennar og vinkonu hennar endur- ®Peglar viðhorf þjóðfélagsins til blökku- olks, tungu þeirraog menningarogeinnig endurspeglar það viðhorf þeirra sjálfra til ®'9in menningar og tungu. Þegar Celie I efur hafnaðþví að læraaðtala „almenni- ®9a ‘ er uppreisn hennar fullkomin því ^Un er bæði persónuleg og þjóðfélagsleg. er ekki bara sterk kona heldur sterk blökkukona í dag eru svartir Bandaríkjamenn enn að berjast fyrir því að mál þeirra verði viður- kennt sem sérstakt mál (mállýska) og vannst stór sigur í þeirri baráttu árið 1978 þegar svartir Bandaríkjamenn í Ann Arbor fóru í mál gegn ríkinu til þess að reyna að fá því framgengt að börnum þeirra yrði kennt að lesa á móðurmáli sínu. Ólæsi er mikið meðal svartra Bandaríkjamanna og má oft kenna því um að börnin skilja illa þá ensku sem töluð er í skólanum. Blökku- menn unnu málið og nú er börnum þeirra kennt að lesa á móðurmáli sínu í skólum í Ann Arbor. Málin (mállýskurnar) sem bókin erskrif- uð á undirstrika lága stöðu svertingja og það að bréf Celie eru skrifuð á svartri ensku og bréf Nellie á „venjulegri'1 ensku hefur sinn tilgang. Þessi notkun á málum (mállýsku) undirstrikar kúgun og lága stöðu Celie í þjóðfélaginu. Hún tekur á sig að vera kúguð og misnotuð til að bjarga systur sinni sem kemst út í hinn stóra heim og lærir að tala eins og hærra sett fólk. Hvernig er hægt að þýða svona yfir á ís- lensku er mér spurn. íslenskan er engan vegin eins fjölskrúðugt mál og enskan þegar mállýskur eru annars vegar. Viö gætum reynt að nýta ýmis form íslensk- unnar sem þykja miður falleg og álitin end- urspegla fáfræði og litla menntun þeirra sem notar þau. Má til dæmis nefna þágu- fallssýki, sem er að vísu óviðfeldið orð yfir fyrirbæri sem er eitt sterkasta merki um að íslenskan er lifandi og fjölskrúöugt mál. Ef málhreinsunarmenn fengju öllu að ráða myndu þeir eflaust reyna að eyða úr ís- lenskunni þeim fjölbreytileika sem hefur félagslegt gildi og þar meö viðhalda minni- máttarkennd þeirra sem er tamt að tala „ekki rótt“. En þágufallssýki dugar ekki til að koma á framfæri merkingu sem felst í því að skrifa bók á fleiri en einu máli (einni mállýsku). í íslensku þýðingunni er reynt að endur- spegla muninn á ensku og svartri ensku með því að einfalda beygingar á íslensku og sleppa smáoröum. Má til dæmis nefna setningu á bls. 194 þar sem segir „lögg- arnir stungu henni inn“ sem enginn full- orðinn íslendingur myndi segja nema kannski sem mismæli. Svört enska er ekki tæpitunga, barnamál eðavanþróuðenska og málið endurspeglar ekki fáfræði Celie. Einfaldur skeytastíll bókarinnar gerir það kannsi enda eykst orðaforði og frásagnar- stíllinn þroskast þegar Celie þroskast og henni vex ásmegin. í íslensku þýðingunni hefur tekist mjög vel að ná þessari þróun á stíl og frásagnaraðferð en ekki þýðir aö búa til nýja útgáfu af íslensku til þess að endurspegla þessa notkun á tveimur mál- Ofbeldi (Ijóö tileinkaö barni) Þeir myrtu sál þína en líkaminn heldur áfram að lifa það er svo dimmt svo dimmt þar inni þar loga engin Ijós og það leggur enginn blóm á leiðið það þekkja það svo fáir það vita svo fáir að þeir myrtu sál þína það er svo dimmt svo dimmt þarna inni því að þeir myrtu sál þína en líkaminn heldur áfram að lifa Þ.G. Ljóð þetta orti ein af lesendum VERU og sendi okkur. Kveikjan að Ijóðinu var umfjöllun VERU á ofbeldi gegn börn- um í 3. tbl. þessa árs. um (tveimum mállýskum). Því það verður bara skilið á einn hátt, að Celie sé illa að máli farin. Celie er ung að árum (14 ára) þegar sagan hefst og segir frá í barnslegri einlægni. Smám saman eykst orðaforði hennar og setningarnir hennar verða lengri og flóknari en í gegnum alla bókina er hún móðurmáli sínu trú og sýnir að hún hefur góð tök á því. Með kærri kveðju, Begga 3

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.