Vera - 01.12.1986, Blaðsíða 27
f*
BEINT
LÝÐRÆÐI
María Jóhanna Lárusdóttir hélt jómfrúar-
ræðu sína þann 29. október s.l. Þá mælti
hún fyrir breytingu á lögum nr 8 frá 1986,
um sveitarstjórnir, eins og það heitir á
þingskjalinu. í frumvarpinu er lagt til að
íbúar sveitarfélaga verði gerðir virkari þátt-
takendur í afgreiðslu sveitarstjórnarmála.
Oft er langt á milli kjósenda og fulltrúa þeirra sem
sitja í sveitarstjórninni og vafasamt aö fulltrúarnir taki
alltaf afstööu í samræmi viö vilja umbjóðenda sinna
enda ekki bundnir af því skv. lögum. María Jóhanna
benti á að úr þessu mætti bæta ef íbúar sveitarfélaga
yröu virkari þátttkendur í afgreiðslu mála. Sveitarfélag-
ið getur efnt til almennra borgarafunda um málefni
sveitarfélagsins og skv. frumvapinu er sveitarstjórn
skylt aö efna til atkvæðagreiðslu um einstök mál, ef
tíundi hluti kjósenda eða þriðjungur sveitarstjórnar
óskar þess. í sveitarfélögum með færri (búa en 1000
nægir að fjórðungur atkvæðisbærra íbúa óski eftir al-
mennri atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan skal fara
fram samhliða næstu almennum kosningum í sveitar-
félaginu til þess að hafa kostnað í lágmarki og er sveit-
arstjórninni skylt að fresta framkvæmdum varðandi þau
mál er íbúar óska atkvæðagreiðslu um.
Óvenjuleg ræða
Þegar María Jóhanna hafði lokið máli sínu komu
þingmenn upp hver af öðrum og þökkuðu henni fyrir
vandaða, athyglisverða, fróðlega, skemmtilega ræðu
sem var holl lesning, ánægjuleg hugvekja, ágæt grein-
argerð svo vitnað sé beint í ummæli nokkurra þing-
manna. Ræða Maríu Jóhönnu var óvenjuleg, fróðleg og
ekki síst mjög kvenleg. Hún byrjaði með því að vitna í
goðafræðina og leiddi okkur í gegnum tíðina til leiðtoga-
f undarins sem allir voru nýbúnir að vera vitni að þar sem
tveir menn sátu bak við luktar dyr og ræddu saman.
Tveir menn með fjöregg alls mannkynsins í höndum sér
eins og hún komst að orði. Ljóst er að þörfin fyrir beint
opið lýðræði er mjög brýn og þetta frumvarp er skref í
rétta átt þar sem það leitast við að efla áhrif fólks á um-
hverfi sitt og daglegt líf.
ÞJÓÐARATKVÆÐI
Ekki er einungis þörf fyrir beint/opið lýðræði í sveitar-
félögum, það sama á við um Alþingi. Alþingismenn virð-
ast oft vera langt frá umbjóðendum sínum og úr
tengslum við brauðstrit fólksins. Er skemmst að minn-
ast þegar þingmenn Bandalags Jafnaðarmanna gengu
í aðra þingflokka og skildu 9489 kjósendur eftir án full-
trúaáAlþingi. í lýðræðishugtakinufelst aðæðstavaldið
sé hjá þjóðinni og hér áður voru mikilvægar ákvarðanir
teknar á opnum þjóðþingum en vegna þess hve þau eru
þung í vöfum var fulltrúalýðræði tekið upp. Þetta kom
fram í ræðu Maríu Jóhönnu þegar hún mælti fyrir þings-
ályktunartillögu um þjóðaratkvæði þar sem lagt er til að
tíundi hluti kosningabærra manna eða þriðjungur þing-
manna geti farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslu.