Vera - 01.12.1986, Blaðsíða 33

Vera - 01.12.1986, Blaðsíða 33
ráð fyrir verulegri uppbyggingu bílageymsluhúsa. Um 1100 stæði verða í bílageymsluhúsum samkvæmt til- lögunni en hvert slíkt stæði kostar um 450.000 kr. sam- kvæmt nýjum tölum frá borgarverkfræðisembættinu. Þessi framkvæmd ein og sér mun því ekki kosta undir hálfum milljarði króna. Þá er ótalinn kostnaður við Geirsgötu sem tengjast mun Sætúni og liggja eftir hafnarbakkanum, sem og kostnaður við breikkun Frí- kirkjuvegar og Sóleyjargötu. Allt þjónar þetta einka- bílismanum sem er að verða óheyrilega dýr menningar- sjúkdómur í samfélagi okkar. Því miður hafa borgaryfir- völd ekki vilja til að berjast gegn þessum sjúkdómi með þvi að stórauka og bæta almenningsvagnaþjónustuna. Nýtið rétt ykkar Ég hef hér að framan aðeins drepið á stærstu galla skipulagstillögunnar en ekki fjallað um einstök atriði hennar. Það segir sig líka sjálft að það er mjög erfitt að vera með ábendingar varðandi uppbyggingu á ein- stökum lóðum ef maður er á móti því niðurrifi sem er forsenda uppbyggingar. Þessi skipulagstillaga er hins vegar alls ekki alvond. Hún er vel unnin og öll umhverf- ismótun á götum, göngustígum og útivistarsvæðum hin ágætasta. Má í því sambandi sérstaklega nefna að göngugötum fjölgar verulega. Þá er til mikilla bóta að gera ráð fyrir nýrri skiptistöð fyrir SVR á milli Hafnar- strætis og Tryggvagötu. Það dregur verulega úr slysa- hættu að hafa alla vagnana á einum stað en ekki dreifða um alla Lækjargötu eins og nú er. En þrátt fyrir þessa kosti þá er skipulagstillagan þess eðilis að ekki er með nokkru móti hægt að samþykkja hana. Skipulagstillagan að Kvosinni hefur víða verið höfð frammi til kynningar á undanförnum misserum en hins vegar hefur engin opinber umræða farið fram um hana. Það er segin saga með borgaryfirvöld, þau vilja mata borgarbúa á því sem þeim hentar í hvert eitt sinn en ekki standa reiknisskil gerða sinna á opinberum vettvangi. Þess vegna neitaði meirihluti borgarráðs að veröa við þeirri tillögu minni að halda almennan borgarafund um Kvosarskipulagið. En þrátt fyrir þetta er engin ástæða til að verða úrkula vonar um að hægt sé að hafa áhrif. í upphafi þessarar greinar vék ég aö þeim reglum sem gilda um framlagningu skipulagstillagna. Vil ég ein- dregið hvetja fólk til að nýta sér þann rétt sem því er tryggður í skipulagslögum og gera athugasemdir við það sem því mislíkar í skipulagstillögunni. Þannig getum við m.a. sýnt borgaryfirvöldum hug okkar til Kvosarinnar. Skipulagstillagan ásamt fylgigögnum liggur frammi á Hótel Vík og er öllum velkomið að kynna sér hana þar. — isg. Leiðrétting i síðasta tbl. af Veru læddust tvær villur inn á borgarmálasíðurnar. i grein um nýja stefnu í dagvistarmálum féll niöur nafn Framsóknar- flokksins, i upptalningu á þeim sem greiddu atkvæði gegn tillögu Sjálf- stæðismanna um aö sveitarfélögin fái „algert forræöi" um skipan innri málefna dagvistarstofnana. Er borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Sigrún Magnúsdóttir beðin velviröingar á þessu. í upptalningu á fulltrúum Kvennalistans i nefndum og ráðum borgar- innar voru Hulda Ólafsdóttir og Borghildur Maack taldar vera i félags- málaráði en hið rétta er aö þær eru i heilbrigðisráði. Fulltrúar Kvenna- listans i félagsmálaráði eru Ingibjörg Sólrún Gisladóttir og Elin Ólafs- dóttir. KONUR Samtök íslenskra námsmanna erlendis SÍNE, veitir upplýsingar um námsmöguleika og val erlendis. Opn- unartími skrifstofu í Félagsstofnun stúdenta er: mánud., miövikud., fimmtud., og föstud., frá kl. 10—12 f.h. Velkomnar 1.-2. TÖLUBLAÐ 8. ÁRGANGUR 1986 Tímaritið HOLLEFNI OG HEILSURÆKT miðlar þekkingu eftir kunna manneldisfröm- uði, einnig fróðleik eftir mikilhæfa vísinda- menn svo og alþýðumenntaða karla og konur. Pósthólf 10147 — 130 Reykjavík. Sími 84118 milli kl. 20—22 virka daga. 33

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.