Vera - 01.12.1986, Síða 8

Vera - 01.12.1986, Síða 8
Hún tíndi dauðsyfjuð einhvern morgunverð fram og Gudda litla byrj- aði á að hella úr mjólkurglasinu yfir allt. Með skjálfandi höndum fjar- lægði hún ógeðslegt brauðið af borðinu og greip í fáti borðtusku til að þerra það mesta at því. Kjartan gaut reiðilegu auga til Guddu fyrir brussuháttinn, og stóð upp til að þurrka sletturnar úr fötunum sínum og á meðan laumaðist Þóra til að klípa systur slna undir borðinu, en þá öskraði Gudda svo hátt, að Grímu datt ekki annað I hug, en hún hefði brennt sig á brauðristinni. Hún greip barnið og snaraði henni undir kaldavatnsbununa í vaskinum og þarna voru þær að kljást, þegar Mundi komfram. ,,Hvaðgengureiginlegaá?“, sagði hann og sá strax, að Þóra sat og hélt að sér höndum. ,,Ég kleip hana bara“, Gríma gatekki varist hlátri — ,,0, skömmin þín, aðgera mér þennan grikk!" Skömmu seinna var allt komið í samt lag. Þegar fólkið var komið út, settist Gríma loksins, og fékk sér kaffi- bolla. Henni fannst hún dauðuppgefin — og dagurinn var varla byrj- aður. Hún hafði fest blund undir morgun, ákveðin í, að þessi jól skyldi hún halda vakandi. H ún sá út undan sér, hvar Mundi var að hreinsa snjó af bílrúð- unum. Rólegar hreyfingar hans við verkið komu af stað innri spennu í henni. „Hvers vegna gat hann alltaf verið svona rólegur'? ,,Af hverju kvartaði hann aldrei um þreytu'? ,,Var hann ánægður með til- veruna" ? Þessi sambúð þeirra var svo laus við að vera spennandi, fannst henni. Þau fóru aldrei neitt á kvöldin og fáir komu til þeirra. ,,Var það kannski hennar sök, hvernig komið var'? ,,Hvað var til dæmis langt síðan þau höfðu hlegið saman'? ,,Vá, hvað var hún að hugsal? í bað! — Ég verð að vera sæmilega hrein, þegar ég kem til læknisins"! stjórinn heyrði greinilega ekki, hvað hún var að tauta, og nú fann hún, að hún eldroðnaði — hana svimaði — og hönd hennar greip í næstu stoð — „almáttugur, ætlar nú að líða yfir mig'? Einhvern veginn tókst henni samt að setjast og um hana fór skelfi- leg líðan. Henni fannst athygli allra í vagninum beinast að sér. Hún sá bara í þoku, að henni fannst ung andlit, öll eins, enginn hreyfði svip. Það hlutu allir að vera sárhneykslaðir á henni. Hún var ekki ung, húnskarsig greinilegaúr. Hún komst með einhverjum óskiljan- legum mætti út við Álfheimana. Og stuttu seinna var hún komin inn á biðstofu, yfirfulla af fólki. Eitt og eitt grátandi barn —- mæður að hugga — óléttar konur — svipþungar konur — vond lykt— Hún kúg- aðist! Einhver fór að stumra yfir henni. ,,Hvert er nafnið"?. . . ha, nafnið?. . . Gríma. . . Gríma Hjartardóttir." „Hvenær fædd Gríma" ? .......ha, ég.........jú, 1940 — 10. desember." „Hefurðu komið hingað áður'? „Áður?, ne — nei — nei, aldrei." Konan strauk henni í framan með rökum klút. Henni leið strax betur. „Þú mátt koma inn strax!" Og áður en Gríma vissi af, sat hún andspænis manni í hvítum slopp. Rólegt yfirbragð hans gerði það að verkum, að hún áttaði sig smátt og smátt. „Hvernig dagurinn minn byrjar? — hvað ég borða á morgnana? — áhugamál? — hjónabandið? — hvernig það er? — hvenær ég fer að sofa? — svefninn? — „Hann horfði á hana mildum augum og hún hálfkjökraði: „Hvað getur verið að mér?“ „Ekkert nema stress", sagði hann. ,,Er það sjúkdómur'?, heyrði hún sjálfa sig segja. „Ég, sem hélt, að ég væri að deyja"! „Já, þú átt heldur ekki langt eftir góða mín, ef þú heldur svona áfram. Ég sting upp á, að þú hvílir þig hérna í nokkra daga!" Það fór að suða fyrir eyrum hennar. . . . Loksins kom strætó! Henni var orðið skítkalt af að bíða. Hún ætlaði að fara að borga, þegar hún áttaði sig á, að hún var ekki leng- ur með strætómiðann í hendinni. Bíllinn var kominn af stað og hún heyrði sjálfa sig stynja upp, að hún hlyti að hafa misst miðann. Bíl- FAÐU SKRIFLEGT LÁNSLDFORÐ Fáðu skriflegt lánsloforð hjá okkur áður en þú gengur frá húsnæðiskaupum, eða ræðst í byggingu íbúðarhúsnæðis. Þá er hyggilega að verki staðið. Hún raknaði ekki við fyrr en síðla dags. Hún lá í fallegu herbergi og það barst yndisleg músíkk að eyrum hennar. „Hvar var hún'? Dyrnar opnuðust og inn kom hvítklædd, brosandi kona, með blóm í vasa! Hún laut niður að henni, og fékk henni kort, sem hún bað hana lesa. Gríma tók skjálfandi höndum við kortinu. „Sjáumst i kvöld — þinn Mundil Hún fór að hágráta og hvítklædda konan skipti sér ekki af henni — lengi — en loks létti henni og þær horfðust i augu. Hjúkrunarkonan strauk henni um vagnann og sagði: „Þú kemst heim fyrir jól, Gríma mín — alhressl Laugasteini í nóv. 1985 Steinunn R Hafstað ÞEIR KAUPENDUR ÍBÚÐAR- HÚSNÆÐIS, sem hafa skrifleg lánsloforð Húsnæðisstofnunar í höndunum, standa betur að vígi en þeir, sem hafa þau ekki. Húsnæðisstofnun /4 • •

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.