Vera - 01.12.1986, Side 30

Vera - 01.12.1986, Side 30
má'a- Skipulag samkvæmt nýjustu tísku í skipulagslögum er m.a. kveðið á um auglýsingu skipulagstillagna og rétt fólks til að gera athugasemdir við þær. Þegar skipulagstillaga er lögð fram opinber- lega, eins og tillagan af Kvosinni núna, þá skal í auglýs- ingu tilgreina ,,yfir hvaða svæði tillagan nái, hvar upp- drættir ásamt fylgiskjölum séu til sýnis og hve lengi, en það má ekki vera skemur en 6 vikur, hvert skila skuli athugasemdum við tillöguna og innan hvers frests, en hann má eigi vera skemmri en 8 vikur frá birtingu aug- lýsingar, og jafnframt skal tekið fram, að þeir, sem eigi geri athugasemdir innan tilskilins frests, teljist sam- þykkja tillöguna.“ Þegar frestur til að skila athuga- semdum er útrunninn þá hefur borgarstjórn 8 vikur til að fjalla um þær og að því loknu á hún að senda þær til skipulagsstjórnar ríkisins „ásamt umsögn sinni um hverja athugasemd og endanlegri umsögn um upp- dráttinn". Það er síðan skipulagsstjórnar og ráðherra að ganga endanlega frá uppdrættinum. Skipulag að Kvosinni er þess eðlis að það kemur öll- um Reykvíkingum við, og reyndar landsmönnum öllum. Þess vegna er mikilvægt að senda inn athugasemdir og reyna þannig að ná fram breytingum á skipulagstillög- unni. Réttlæting á niðurrifi En er einhver ástæða til að breyta tillögunni? Er hún ekki ágætlega og smekklega unnin og verulega til bóta fyrir sundurlaust útlit Kvosarinnar ef hún nær fram að ganga? Verður miðbærinn ekki miklu heillegri og glæsi- legri en nú er og líklegri til að standast þær kröfur sem gera verður til miöbæjar í höfuðborg landsins? Verður samkeppnisstaða hans gagnvart nýjum verslunarmið- stöðvum í Mjódd og Kringlu ekki mun betri en ella? Allar þessar spurningar hafa hljómað sem fullyrðingar á vörum þeirrasem mæla skipulagstillögunni bót. Með til- vísun til alls þessa réttlæta þeir það mikla niðurrif timburhúsa sem tillagan hefur í för með sér. Eða eins og skipulagshöfundarnir segja: ,,. . .borg verður að þró- ast, breytast og lifa í takt við timann — fylgja nútímalífs- mynstri þannig að óhjákvæmilegt er að sum gömul hús víki“. Þetta eru auðvitað bara rök sem notuð eru til að réttlæta ákveðnar aðgerðir. Þetta eru þau rök sem kennd eru við hagsýni og raunsæi og ráðið hafa stefnu- mörkun í skipulagsmálum gamla bæjarins allt til þessa dags. Rök sem hafa skilið okkur eftir svo miklu fátækari af þeirri menningararfleið sem býr i húsum en allar nágrannaþjóðirokkar. Hin menningarsöguleguslyseru orðin allt of mörg hér á landi og er þar skemmst að minnast Fjalarkattarins. Það er því full ástæða til að spyrna við fótum en láta ekki glæsileika nýrra húsa á teikniborðinu villa sér sýn. Varðveisluskipulag Menn hafa deilt um það í fjölmiðlum að undanförnu hversu mörg hús eigi að víkja samkvæmt tillögunni og hafa í því sambandi verið nefnd 7—30 hús. Hið rétta er að húsin eru um 30 talsins en þau eru auðvitað ekki öll jafn mikilvæg. Segja má að það séu 17 hús sem skipti máli. Þessi hús eru: Lækjagata 2, 4, 6a, 6b og 8. Austurstræti 8, 20 og 22.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.