Vera - 01.12.1986, Page 32
Austurstræti séö til vesturs.
dæmi fylgja greininni svo lesendur geti áttaö sig á því
hvað við er átt.
Þessar götumyndir eru ekki bara framandi í Reykja-
vík heldur eru þær líka óraunsæjar. Eins og fyrr sagði
er það nýjasta tíska í húsagerð sem setur svip sinn á til-
löguna. Það er hins vegar borin von að halda að á
örskömmum tíma verði reist rúmlega 30 ný verslunar-
og skrifstofuhús í hjarta bæjarins til viðbótar við öll þau
ósköp sem eru að rísa í Kringlunni. Miðborgir byggjast
upp á löngum tíma og hver tími setur sinn svip á þær.
Þær nýbyggingar sem tillagan gerir ráð fyrir munu ef
þær verða að veruleika rísa á mismunandi tímum og því
mun verða mismunandi stílbragð á þeim. Það er því
beinlínis rangt og villandi að steypa allt í sama mót á
teikningum.
Bílastæöi fyrir hálfan milljarð
Með öllum þeim nýbyggingum sem gert er ráð fyrir í
tillögunni mun byggð í Kvosinni aukast um 25% eða um
36.000 m2. Ca. 20% af heildargólffletinum mun fara
undir 60—80 íbúðir eða um 7.200 m2, hitt fer undir
verslanir og skrifstofur. Það leiðir af sjálfu sér að þessi
gólfflataraukning mun hafa í för með sér talsverða
umferðaraukningu og finnst manni samt nóg um það
sem er í dag. Þetta kallar á aukin bílastæði enda er talið
að eftirspurn eftir bílastæðum aukist úr 1500—1700 I
2100—2300, en í Kvosinni í dag eru u.þ.b. 1000 lögleg
stæði. Samkvæmt tillöguni mun götubílastæðum
fækka, sem er út af fyrir sig ágætt, en hins vegar er gert
C
huggulegar svo ekki sé meira sagt. Fallegar götumynd-
ir þar sem reglustikan hefur verið látin ráða húsahæð
og nýjasta tíska í arkitektúr útliti húsanna. Sá böggull
fylgir hins vegar skammrifi að þetta gæti verið hvaða
borg sem er í V.-Evrópu. Þetta á ekkert skylt við þá
Reykjavík sem við þekkjum og höfum taugar til.
Reyndar eru sumar götumyndirnar sláandi líkar þvi
sem maður sér í hollenskum bæjum sem hafa verið
skipulagðir og byggðir nú á allra seinustu árum, á því
landi sem Hollendingar hafa ræst fram undan sjó. Mun-
urinn er hins vegar sá að þar var byrjað með autt land
og hvítt blað en hér með bæ fullan af húsum. Læt ég tvö