Vera - 01.04.1987, Page 36
I
heilsuverndina þ.e. mæðravernd, ungbarnaeftirlit og
heimahjúkrun.
Niðurstöðurnar í Golíat skýrslunni voru m.a. þær að
rekstur heilsugæslustöðva væri mjög hagkvæmur og
að neytendur lýsa yfir mikilli ánægju með þjónustu
heilsugæslustöðvanna. Þannig að það er Ijóst að
heilsugæslustöðvarnar veita ódýraog betri þjónustu en
það kerfi sem við búum við í dag. Betri heilbrigðisþjón-
usta skilar sér í bættri heilsu íbúa, sem aftur minnkar
eftirspurn eftir dýrum sjúkrahúsplássum.
Það gefur auga leið að það er mjög dýrt fyrir borgina
að reka þetta tvöfalda kerfi, þ.e. heilsugæslustöðvar og
gamla heimilislæknakerfið. Þess vegna er þessi seina-
gangur Sjálfstæðisflokksins við uppbyggingu heilsu-
gæslustöðva alveg fyrir neðan allar hellur.
En hver er ástæðan? Hún er m.a. sú að Sjálfstæðis-
flokkurinn aðhyllist frjálshyggju á öllum sviðum og þar
er heilsugæslan ekki undanskilin. Sjálfstæðisflokkur-
inn vill hleypa einkarekstrinum meira inn í heilbrigðis-
kerfið þar sem framboð og eftirspurn ræður ríkjum.
Dæmin sanna að í einkarekstri er fyrirbyggjandi starfi
lítið sinnt. Heilsuverndarstarf er sérstaklega mikilvægt
fyrir börn og gamalmenni og þessir hópar gefa lítið af
sér til einkareksturs. Einkarekstur og gróðahyggja leiðir
til þess að lappa upp á sjúkdóma en ekki fyrirbyggja.
Stefna Kvennalistans er að efla alla heilbrigðis-
fræðslu og auka allt fyrirbyggjandi starf. Kvennalistinn
hefur gagnrýnt hversu mikill seinagangur er í uppbygg-
ingu heilsugæslustöðva í Reykjavík.
Við höfum mjög góða stefnu í heilbrigðismálum eins
og sjá má í stefnuskrá okkar en nú er að knýja á svo hin
fjölmörgu góðu málefni komist í gegn m.a. að hraðað
verði uppbyggingu heilsugæslustöðva í Reykjavík.
Hulda Ólafsdóttir
Heilsugæsla
í einkaeign
í maí 1986 var samþykktur í Heilbrigðisráöi Reykja-
víkurborgar samningur við Heimilislæknastöðina hf.
Álftamýri 5 (Heilsugæslan Álftamýri 5). í samningi þess-
um er Heilsugæslunni falið að sjá um, í tilraunaskyni
heilsuvernd og heimahjúkrun í Háaleitis- og Laugar-
neshverfi. Auk heimahjúkrunar var um að ræða ung-
barna- og mæðraeftirlit. Samningurinn var til 6 mán.
Reykjavíkurborg greiddi laun eins hjúkrunarfræðings
og sjúkraliða í 50% starfi, auk þess sem Heilsugæslan
fékk greidda 65.000 kr. á mánuði fyrir þessi verkefni og
aðstöðuna sem þeir létu í té.
í atkvæðagreiðslu í heilbrigðisráði bókuöu fulltrúar
Kvennaframboðs og Framsóknar eftirfarandi:
Við greiðum atkvæði gegn þessum samningi,
aðallega af eftirfarandi ástæðum:
Skýrsla nefndar, sem kannað hefur reynslu og
kostnað af rekstri heilsugæslustöðva á Stór-Reykja-
víkursvæðinu hefur enn ekki verið gerð opinber af
óþekktum ástæðum. Niðurstöður þessara skýrslu
hljóta að vera mikilvægar, þegar- taka á ákvörðun
um breytingar á framtíðarskipan heilsugæslu í
Reykjavík.
Meðan ekki hefur farið fram almenn umræða um
efni skýrslunnar og aðra möguleika, sem til greina
koma, teljum við rangt að þvinga fram tilraunaskipu-
lag eins og hér er verið að gera. Auk þess verður að
teljast vafasamt, að hægt verði á svo skömmum
tíma, sem gert er ráð fyrir í samningnum, að fá þá
reynslu, sem nauðsynleg er til að meta, hvort þetta
rekstrarform er heppilegt til frambúðar.
Þann 20. febrúars.l. varendurnýjaðursamningur við
Heimilislæknastöðina og þá til rúmlega eins árs. Þessi
samningur er hliðstæður fyrri samningi að því undan-
skildu að við bætist stöðugildi eins hjúkrunarfræðings,
þannig að nú eru stöðugildi fyrir 2 hjúkrunarfræðinga
og sjúkraliða í 50% starfi. Þessir starfsmenn eru á laun-
um hjá borginni en faglega lúta þeir stjórn læknanna
sem starfa á eigin vegum. Sem sagt borgarstarfsmenn
undir faglegri og rekstrarlegri stjórn einkaaðila. Auk
þess greiðir borgin 100.000 á mánuði fyrir aðstöðuna og
rekstur þess þáttar þ.e. mæðra- og ungbarnaeftirlit
ásamt heimahjúkrun. Til viðbótar greiðir borgin 30.000
kr. á mánuði í bílastyrk.
Borgarráð staðfesti þennan samning á fundi sínum
17. 3. ’87 meö atkvæðum Sjálfstæðismanna. Fulltrúi
Kvennalistans greiddi atkvæði gegn honum með eftir-
farandi bókun:
Ég efast ekki um að með þessum samningi verður
Heilsugæslan í Álftamýri faglega ágætlega í stakk
búin til að gegna hlutverki heilsugæslu í Háaleitis-
og Laugarneshverfi. Að auki yrði þarna um bætta
þjónustu að ræða. Engu að síður greiði ég atkævði
gegn þessum samningi þar sem ég tel að það rekstr-
arform sem þarna er verið að taka upp sé líklegt til
að ýta undir einkavæðingu í heilsugæslu.
Ég er þeirrar skoðunar aö borgin eigi að vinna
markvisst að því að lögin um heilbrigðisþjónustu taki
að fullu gildi í Reykjavík. Má á það benda að Heilsu-
gæslan í Álftamýri er borginni dýrari en sambærileg
heilsugæslustöð sem starfaði samkvæmt þeim lög-
um.
Það á eftir að samþykkja þennan samning í Borgar-
stjórn, en það verður væntanlega gert á næsta fundi
þar.
Borgarmálaráð Kvennalistans hefur rætt mikiö þessa
ógnvænlegu stefnu Sjálfstæðisflokksins að koma á
einkarekstri í heilbrigðiskerfinu en þetta er fyrsti vísir að
því. Mörgum Sjálfstæðismönnum finnst þettaekki nógu
langt gengið og má vænta að þeir gangi enn lengra
næst. Á kostnað hvers verður það??????
H.Ó.