Vera - 01.02.1991, Page 11

Vera - 01.02.1991, Page 11
það er alvarlegt að geta ekki lært af þeim. Það sýnir dómgreind- arleysi. Við erum leitandi afl en ekki fullmótað enda værum við þá líklega búnar að ljúka erindi okkar." Og ertu þá sátt við að hætta á þingi? , ,Já, en auðvitað eru tilfinning- arnar blendnar af því að þetta hefur verið jákvæður og lær- dómsríkur tími sem hefur veitt mér tækifæri til að vinna að ótrú- lega mörgum áhugaverðum verkefnum. Ég hef átt gott samstarf við mjög marga, bæði konur og karla, og það fylgir því auðvitað viss eftirsjá að hætta því. Annars finnst mér ég ekkert vera að hætta - ég er rniklu fremur að skipta um rás. Ég hef nýlokið einum kafla og nú tekur annar við. Allt er þetta lífið mitt og tiltekið þjóðfélagssamhengi og mér finnst á vissan hátt að hafi maður einu sinni vaknað til ákveðinnar virkni þá verði maður ekki aftur afskiptalaus, hvorki í huga sínum né verkum og víða er hægt að beita sér til að bæta sam- félagið. En það hafa verið mikil forréttindi að fá að vera með í því sem við höfum verið að gera í Kvennalistanum." En hvað tekur nú við? Um hvað fjallar nýi kaflinn í lífi Guð- rúnar? „Ég hef verið ráðin sem framkvæmdastjóri alþjóðlegrar kvennaráðstefnu sem fyrirhugað var að halda á Islandi í júní n.k. en henni verður frestað um ár því að of naumur tími var orðinn til undirbúnings og verður væntan- lega haldin í júní 1992. Ég held að það sé mjög mikilvægt að leyfa hugmyndinni um þessa ráð- stefnu að þróast og gerjast í næði „Mér finnst á vissan hátt aö hafi maður einu sinni vaknaö til ákveðinnar virkni þá veröi maöur ekki aftur afskipta- laus, hvorki í huga sínum né verkum.“ því hún er svo mikilvæg. í tengsl- um við þessa ráðstefnu hafa kon- ur úr ólíkum stjórnmálaflokkum fundið samvinnugrundvöll sem við getum kannski haldið áfram að breikka. Við eigum allar svo svipuð erindi í því að breyta þjóð- félaginu þó svo við kjósum kannski að ganga eitthvað ólíkar leiðir. Það vakir svo svipað fyrir okkur öllum. Þeim mun fleiri gagnvegi sem við getum opnað á milli okkar kvenna, þeim mun stærri sem okkar sameiginlegi grundvöllur verður, þeim mun líklegra er að við getum styrkt hver aðra og að við fáum ein- hverju áorkað. Eða eins og Auður Eir sagði nýlega, „sterk vinátta sterkra kvenna getur breytt heiminum" og það þarf enginn að efast um að sú breyting verður til batnaðar." SILFUR HAFSINS Það er furðulegt hversu lítið sjálf fiskveiðiþjóðin borðar af hinum holla smáfiski, síld- inni. Gott er að eiga síldar- fötu í ísskápnum, því að síld er bæði hentugur skyndibiti og veislumatur. Hér kemur tillaga að einföldum síldar- rétti, jafnt til hversdags- og sparibrúks: 2-3 flök marmeruð síld eða kryddsíld slctta afsýrðum rjóma 2 soðnar kartöflur, gjarnan stráðar dilli 1/2 hrár laukur, smátt saxaður (soðið egg) (radísur skornar í tvennt) Þessi uppskrift miðast við hraðan hádegisverð fyrir einn, en hana má margfalda. Gott er að borða rúgbrauð eða hrökkbrauð með. Við há- tíðleg tækifæri má bera fram þjóðardrykk íslendinga í litl- um staupum, seigfljótandi úr frystinum. Nokkrar góðar síldarsósur með maríneraðri síld frá Kristínu Jónsdóttur, Hafnar- firði: Karrýsósa: 100 g kryddað mæjones eða sýrður rjómi 1-2 dl þeyttur rjómi 1 Imrðsoðið saxað egg 1 saxaður laukur 1- 2 tsk karrý 1 staðinn fyrir lauk og egg má setja bananasneiðar. Sinnepssósa: 2- 3 mskfranskt sinnep 1 msk sykur 2 msk vínedik 1/2-1 dl matarolía 2 msk dill Hrærið saman sinnepi, sykri og ediki og bætið olíunni smámsaman út í. Hrært vel í á meðan og kryddað að lok- um með dilli. 11

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.