Vera - 01.02.1991, Blaðsíða 31
Inger hefur stundað karate síðan
vinur hennar vakti áhuga hennar
á íþróttinni þegar hún var 16 ára.
Hún hefur verið í kvennalands-
liðinu í fjögur ár og hún varð
Norðurlandameistari í Reykjavík
fyrir rúmu ári.
- Island er yndislegt land, sem
hafði mikil áhrif á mig, sagði
Inger án þess að hin hefðbundna
how-do-you-like-Iceland spurn-
ing væri lögð fyrir hana. En eina
slæma minningu á hún frá
Reykjavík. I lok keppninnar voru
þær landsliðskonur að halda upp
á góðan árangur sinn á Hótel
Islandi, þar sem þær skáluðu
duglega í kampavíni. Inger varð
viðskila við hópinn og gekk því
ein í átt að Holiday Inn. A móts
við Hollywood fór drukkinn
finnskur sjómaður að veita henni
eftirför og trufla hana með dóna-
legum athugasemdum. Þegar
hún var komin út í móana á milli
Suðurlandsbrautar og Sigtúns
hrinti hann henni skyndilega út í
skurð.
- Þá hugsaði ég: Af hverju þarf
ég endilega að lenda í nauðgara
núna þegar ég er þreytt, full og á
háhæluðum skóm? En ég fylltist
svo mikilli heift og reiði að ég
öskraði á manninn og jós yfir
hann svívirðingum, svo hann
hundskaðist í burtu. Þarna naut
ég þess að vera vön að láta í mér
heyra og taka stjórnina ef með
þarf, þegar ég er að þjálfa
unglingsstráka. Stundum er ég
með 60 fimmtán ára nýbyrjendur
I einu og þá er eins gott að hafa
stjórn á hópnum.
„Þá hugsaöi ég: Af
hverju þarf ég
endilega að lenda í
nauögara núna
þegar ég er þreytt,
full og á háhœluö-
um skóm?“
Inger Oja stundar líkamsrækt og
innibandy (íshokký án íss og
skauta) fyrir utan karate, sem
hún æfir fimm til sex daga í viku,
einn til tvo tíma á dag. Hún
leggur meiri áherslu á að þjálfa
vel en lengi, gætir sín að halda
jöfnum og góðum hraða og
einbeita sér til hins ýtrasta við
hverja æfingu. Fyrir tveimur
árum tók Inger þátt í heims-
meistarakeppninni í Kairo. Þá
vildu þjálfarar hennar láta hana
keppa í léttavikt, því hún þykir of
smávaxin í milliviktarflokki. Hún
varð að léttast um sjö kíló á
fjórum vikum og lifði á hrís-
grjónum, túnfiski og frosnum
banönum með kanel. Hún keppti
þrisvar í léttavikt, með slæmum
árangri, svo að hún byrjaði aftur
að borða og fór yfir í sinn gamla
flokk.
- Þetta var bara orðin keppni
við vogina. Ég var farin að finna
fyrir einkennum anorexíu. Missti
tíðirnar, það var ógeðslegt, segir
hún.
Kvennalandsliðið í karate hefur
átt í erfiðleikum með að fá að
komast á stórmót. Stjórn karate-
samtakanna finnst þær ekki nógu
góðar og skorta reynslu af stórum
mótum.
- En þá reynslu fáum við ekki
ef við erum aldrei sendar. Við
áttum ekki að fá að fara á heims-
meistaramótið í Mexikó í haust.
Fyrst sögðu þeir að það væru ekki
til peningar. Þá fengum við fyrir-
tæki til að styrkja okkur. En svo
kom upp úr kafinu að það vant-
aði ekki peninga, þeir vildu bara
ekki senda okkur. Það er mjög
mikill munur á því hvernig
komið er fram við kvenna- og
karlalandsliðið. Okkar vinna og
árangur er aldrei metinn. Við
verðum að vera betri en strák-
arnir til þess. Það er ein af
ástæðunum fyrir því að ég byrjaði
að lesa kvennasögu, segir Inger
Oja Norðurlandameistari kvenna
í karate.
BÁ
AUGLÝSING UM
Lokið er ólagningu fasteignagjalda í Reykjavík árið
1991 og verða álagningarseðlar sendir út nœstu
daga ásamt gíróseðlum vegna fyrsta greiðslu
gjaldanna.
Gjalddagar fasteignagjaldanna eru 15. janúar,
1. mars og 15, apríl.
Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík, en
einnig er hœgt að greiða gíróseðlana í nœsta banka,
sparisjóði eða pósthúsi.
Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, veitir upp-
lýsingar um álagningu gjaldanna, sími 18000.
FASTEIGNAGJOLD
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu
lœkkun á fasteignaskatti á liðnu ári hafa fengið hlut-
fallslega lœkkun fyrir árið 1991.
Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl gjaldenda þegar
þau liggja fyrir, vœntanlega í mars- eða aprílmánuði,
og úrskurða endanlega um breytingar á fasteigna-
skattinum, m.a. hjá þeim sem ekki hafa þegar fengið
lœkkun en eiga rétt á henni samkvœmt þeim reglum
sem borgarstjórn setur sbr. 4. mgr. 5 gr. 1. nr. 90/1990
um tekjustofna sveitarfélaga. Verður viðkomandi
tilkynnt um niðurstöðu, ef um breytingu verður að
rœða.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
8. janúar 1991.
31