Vera - 01.02.1991, Page 17

Vera - 01.02.1991, Page 17
DRAUMURINN UM HINN FULLKOMNA SKOLA jákvæðum mannlegum sam- skiptum ætti að vera jafnrétthá kennslu í stærðfræði og íslensku. Ég vil sjá meiri samskipti for- eldra og kennara. Skólarnir gera margt til að fá foreldra inn í skól- ann, en mætingin er ekki alltaf góð, stundum ekki nema um 10%. Auðvitað er margt sem þarf að gera, vinna og rækta sjálfan sig, en það þarf líka að rækta börnin. Sumir foreldrar telja að þeir séu búnir að afhenda skól- anum börnin. Abyrgðin á börn- unum hefur verið tekin af heimil- unum og færð yfir á skólana og svo er skólunum kennt um flest sem aflaga fer. En muninn á réttu og röngu hljóta börnin að læra heima hjá sér. Mér virðist for- eldrar yngri barna oftast áhuga- samir um það sem gerist í skólan- um, en svo er eins og áhuginn koðni niður. Margir skólar eru heldur ekki reiðubúnir til að hleypa foreldrunum að, en ég held að það sé að breytast. Það er líka að breytast hvernig tekið er á samskiptamálum. Þó finn ég enn fyrir tregðu skólanna að bregðast við þessum málum. Mér finnst margir kennarar vera hræddir. Til þess að geta tekið á þessum málum verða þeir að vinna með sjálfa sig - þeir verða að vita hvað tilfinningar eru. Ég vil sjá öflugri þjónustu stoðdeilda eins og sálfræðideild- ar. Það er út í hött að einn sál- fræðingur hafi 1000 börn á sinni könnu. Hann getur eingöngu sinnt erfiðustu tilfellunum, en allt forvarnastarf hlýtur að sitja á Mynd: Björg Árnadóttir hakanum. Og sökum álags getur Félagsmálastofnun bara sinnt erfiðasta hjallanum, en venjuleg vanræksla kemst varla á blað. Allt sem brýtur í bága við að uppfylla þarfir barnsins er van- ræksla. Við höfum raskað lífkeðju barna hvað varðar öryggi. Allt of stór hluti af þessum vandamálum hlýst af aukinni atvinnuþáttöku kvenna. Ég vil að annað foreldrið sé heima og annist börnin. Ég vil sjá öflugri samræmda heilsugæslu í skólunum með hjúkrunarfræðing í hverjum skóla og að 600-700 börn skapi honum fulla atvinnu, en ekki „Þetta eru ekki mjúk mál, þetta eru gallhörö mál.“ „Líkamleg heilsugœsla er góö og íslensk börn eru frísk líkamlega, en við höfum minna hugsað um sálina og félagslega þáttinn.“ 1000 eins og nú er. Líkamleg heilsugæsla er góð og íslensk börn eru frísk líkamlega, en við höfum minna hugsað um sálina og félagslega þáttinn. Við þurfum að gæta betur að þessu og þjónustan á ekki að vera misjöfn eftir skólum. Islenskir hjúkrunar- fræðingar eru vel ’ menntaðir og geta alveg séð um margþætta heilsugæslu. Það er út í hött að yfirmaður skólahjúkrunar skuli vera læknir, en ekki hjúkrunar- fræðingur. Hjúkrunarfræðingar eiga að skipuleggja hjúkrun. BÁ UMHVERFIÐ vatn - loft - Ijós - veður I haust kom út handbók fyrir kennara með verkefnum og athugunum fyrir byrjendur í náttúrufræði. Umhverfið er notað sem kveikja að ýmis konar náttúruathugunum. Áhersla er lögð á heildstætt nám þar sem hinar ýmsu námsgreinar eru tengdar saman. Einnig er lögð áhersla á frumkvæði barnanna og að þau fái tækifæri til að athuga sjálf ýmsa þætti í umhverf- inu. Börnin í 2. bekk Æfinga- skólans, sem prýða forsíðu VERU að þessu sinni, hafa prófað flestar athuganirnar í bókinni og náttúrufræðin er orðin órjúfanlegur hluti af námi þeirra, annað hvort sem hluti af þema eða sem rann- sóknarverkefni í vali. I kaflanum um veður er til dæmis fjallað um fatnað í kulda: „Hvernig fatnaður er bestur í kulda? Heldur ullin á okkur hita? I þessari athugun er heitt vatn sett í tvær ál- dósir. Önnur þeirra er sett í þykkan lopasokk. Spyrjið börnin hvor þeirra kólni fyrr, sú í lopasokknum eða hin...." Texti: Gunnhildur Oskarsdóttir Teikningar: Kristín Arngrímsdóttir Námsgagnastofnun 1990 17

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.