Vera - 01.02.1991, Blaðsíða 18

Vera - 01.02.1991, Blaðsíða 18
DRAUMURINN UM HINN FULLKOMNA SKOLA FANNEY FINNSDÓTTIR OG HILDUR RAKEL JÓHANNESDÓTTIR 5. bekk Foldaskóla Hvaö viltu gera í skólanum? Fanney: Ég vildi byrja í mat- reiðslu á hverjum morgni. Síðast fengum við eins mikinn ís og við vildum! Svo vildi ég fara í skrift, svo í frímínútur, þá í smíði og loks í stærðfræði. Svo daginn eftir myndi ég gera eitthvað annað. Hildur: Ég myndi vilja byrja í handmennt og smíði. Svo í skrift í einn tíma og svo í stærðfræði í einn og hálfan tíma og svo í Ijóð- og bók- menntir. Svo í frímínútur ef það er gott veður. Fanney: Já og í íslensk dýr. Hildur: Það er leiðinlegt að teikna en það er ofsalega gam- an í ljóð- og bókmenntum. Bekkurinn okkar gaf meira að segja út ljóðabók fyrir jólin. Uppáhaldsljóðið mitt er Hótel Jörð. Fanney: Já mitt líka og ljóðið í fótspor kjarnafjölskyldunnar. Hildur: Ljóðspor er skemmti- leg bók með flottum mynd- um. Bekkurinn gefur líka út skólablaðið Snúbbí. Fanney: Það væri miklu skemmtilegra í skólanum ef við værum ekki svona mikið í leiðinlegum fögum eins og stafsetningu sem er langleið- inlegust og svo landafræði. Málrækt er líka hundleiðin- leg. Við héldum að við mynd- um læra að tala betra mál en það er bara bla bla um kven- kyn, karlkyn og hvorugkyn. Hildur: Það er ágætt í skólan- um nema það eru engin leik- tæki á lóðinni svo við stríðum bara hvert öðru í frímínút- unum. Fanney: Við erum líka í dansi og handbolta en það vantar tónmennt í skólann okkar. ÓLÖF ÖSP GUÐMUNDSDÓTTIR Álftanesskóla 4. bekk Hvað viltu gera í skólanum? Ég vil lesa og mér finnst líka gaman í handavinnu. Stund- um er gaman að reikna. Frím- ínúturnar eru skemmtilegar. Ef ég fengi alveg að ráða sjálf vildi ég hlusta á tónlist. Fara í suma leiki, sko bara suma. Þegar er vont veður úti vildi ég vera inni í frímínútunum og spila. Ég vildi líka gera brúðuleikrit. Til hvers er skólinn: Til þess að læra að skrifa, lesa og reikna. Líka til að læra að smíða, skyndihjálp, prjóna og sauma. Má ég spyrja þig? Af hverju erum við með nesti í skólanum? Erum við að læra að borða eða hvað? KK Til hvers er skólinn? Fanney: Ég var nú að spurja mömmu að þessu í morgun. Hildur: Ég hugsa að hann sé til þess að við lærum og mennt- umst til að geta fengið góða vinnu þegar við verðum stór- ar. Ég ætla að verða kennari. Fanney: Ég ætla að verða tannlæknir af því að þeir fá svo mikla peninga. Hildur: Annars ætlum við báð- ar að verða stjórnmálamenn til að geta ráðið smá. Fanney: Ég vildi líka vera borgarstjóri. Hildur: Eg líka. Fanney: Ég myndi láta alla fá sömu laun, líka þá sem eru heima. Hildur: Og láta krakkana vera á morgnana í skólanum. Fanney: Já, en ef ég væri borgarstjóri þá hefði ég ekki efni á svo stórum skóla en ég myndi gera fleiri barnaheimili svo öll börn kæmust að. Hildur: Og svo myndi ég gera borgina fallegri. Fanney: Ég myndi ekki alltaf vera að ferðast heldur vera heima og ráða. Hildur: Skólinn er til að þrosk- ast og svoleiðis. Við lærum margt um lífið og bráðum förum við að læra ensku og dönsku. RV 18

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.