Vera - 01.02.1991, Page 19

Vera - 01.02.1991, Page 19
HREINN HEIÐAR HALLDÓRSSON Álftanesskóla 3. bekk DRAUMURINN UM HINN FULLKOMNA SKOLA EMILÍA LÓA HALLDÓRSDÓTTIR Álftanesskóla 4. bekk Hvaö vilfu gera í skólanum? Mér finnst skemmtilegast í teikningu og íþróttum. Helst vildi ég alltaf vera í íþróttum. Ef ég fengi alveg að ráða vildi ég fara til útlanda, og svo auð- vitað leika mér. Til hvers er skólinn? Hann er til að maður læri að lesa. Og seinna í vinnu þarf maöur að kunna að reikna. Það er líka gott fyrir mann að kunna að skrifa vel. GUÐRÚN BIRNA BRYNJARSDÓTTIR Víöistaöaskóla 1. bekk Hvaö viltu gera í skólanum? Ég vildi helst kríta á töfluna það sem krakkarnir eiga að læra. Ég vil hafa miklu stærri töflu. Kannski eina töflu þar sem hægt er að leika sér og svoleiðis. Ég myndi meira að Hvaö viltu gera í skólanum? Helst vildi ég hafa reikning, svo skrift og þar næst kristin- fræði. Ef ég mætti alveg ráða vildi ég lita og teikna myndir. Svona stóra mynd sem margir gera saman. Til hvers er skólinn? Til að læra að skrifa og reikna, það er gott fyrir okkur að kunna þegar við verðum eldri. Og svo líka til þess að læra um Guð og svoleiðis. segja vilja hafa töflu í heima- krók. Svo vildi ég hafa stærri kjallara, þar á nefnilega að koma leiksvæði. Það vantar skó þar. Næst á eftir því að kríta á töfluna vil ég fara í mömmó niðri í kjallara. Ég vildi hafa skólann stærri, bekkinn líka. Það er 18 krakk- ar í mínum bekk, ég vildi heldur hafa svona...20 til 30 börn. Þá geta margir farið á flóðhestaborðið. Það eru mörg borð sem öll hafa sitt nafn, ég sit við flóðhestaborðið. Til hvers er skólinn? Til þess að læra að lesa og svona, og að læra stærðfræði líka. Það er nú líka til að læra allt um sjóinn, fiskana og svo- leiðis. Svo er hægt að læra svo margt um dýrin í Afríku og svoleiðis. KK BJÖRN ÓMAR GUÐMUNDSSON (5 óra ó dagheimilinu Garöavöllum) Hvaö viltu gera í skólanum? Vera í tónfræði. Og læra eins og Olöf (stóra systir) er að gera. Læra að lesa sjálfur. Svo vildi ég spila á rafmagnsgítar, tromma á trommur með svona tveimur spýtum. Svo vildi ég fá að hlusta á tónlist og dansa. Og gera leikrit. Og keppa í sundi urn hver verður fyrstur að synda fram og til baka. Síðan að fá sér nesti. Gera leikrit í þykjustunni, og hafa bréf fyrir nesti. Fara í tölvuleik. Til hvers er skólinn? Til að lesa og læra. Það má ekki gleyma að læra eftir skól- ann. Svo fá krakkarnir að leika sér úti og koma síðan inn. 19

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.