Vera - 01.02.1991, Qupperneq 34

Vera - 01.02.1991, Qupperneq 34
UR LISTALIFINU SÓL í NORÐURMÝRI Þórunn Valdimarsdóttir- Megas Forlagiö 1990 Þeir sem voru að bíða eftir því að fá að hakka í sig ævisögu Megasar, sem hefur tekist að hneyksla marga, verða að fá fróðleiksfýsn sinni svalað annars staðar (enda eru stór- skandalar fyrstu 12 ævi- áranna ekki svo merkilegir). Kjaftasögur eru eins og orka sem suðar í manni og maður losnar ekki við stingandi býfluguna fyrr en maður sendir söguna áfram. Erfitt er að vera veggur og láta söguna stingast í sig og deyja par. Það er eins og að standast mikla raun. Enda eru Ijótar lygasögur ekki alvondar, pví úr peim fæst pað sem vantar upp á mannrófið í lestrarbókum, barnabókum og heilsufræði". Þetta er ekki ævisaga, frekar lauslegar endurminningar, lýsing á heimi barns 5. og 6. áratugarins í Reykjavík. Það er ekki verið að hafa áhyggjur af því hvað er satt og hvað logið enda gæti slíkt rýrt lif- andi lýsingu. I formála segir: „Svarthol pokukenndra minninga er pað eina sem kortleggja má úr bernskunni. En ættarfylgjur barna á fimmta og sjötta áratugnum bera keimlíkt íslenskt svipmót og umhverfið er pað sama. Efdregið er fram svarthol eins eftirstríðsára- barns kemur fram allegórísk mynd af uppeldi og umhverfi barna á pessum árum." Útkoman verður því skáld- saga, eða safn lýsinga, stemn- inga úr raunveruleika um- hverfisins. Það er ekki eftir- minnileiki æsku Megasar sem réttlætir það að fara út í þessa endurminningaskráningu, heldur njótum við góðs af frásagnargáfu hans og Þór- unnar og því hvernig þau skynja umheiminn. Söguhetjan er ekki mið- punktur sögunnar, heldur einskonar leiðsögumaður. Því ræður e.t.v. sú ákvörðun að láta þriðju persónuna segja frá. Hún stendur þó ekki al- veg utan við söguna, lesand- inn fær innsýn í tilfinningar hennar: Börnin eru meðvituð um kvöl heimsins, ekki síst ef móðirin er rithöfundur og faðirinn barnakennari og allt logandi í ungmennafélags- hugsjón um betri heim. Undirtitill bókarinnar, Píslar- saga úr Austurbænum, bend- ir til þess að hér sé á ferðinni píslarsaga í almennum skiln- ingi orðsins, líklega er þetta frekar saga lítillar píslar, lítill- ar manneskju, og þó: Hann miklar pað í huga sér að allir séu flengdir nema hann. Honum finnst sér hafnað, hann sé einn utangarðs. Sá sem er laminn og rassskelltur hefur ástæðu til að skilja eymd volæði og sársauka... en ódámurinn er dæmdur til að velkjast um með óljósa hugmynd um píslarvætti undir bringspölunum. Söguhetjan er nefnd ýmsum öðrum nöfnum er kynnu að benda til vanmættis og ve- sældar hennar, en börn mega sín oft Iítils og tilvist þeirra getur oft verið strembin; það er ekki að sjá að fyrstu æviár píslarinnar séu neitt erfiðari en annara barna þrátt fyrir stór eyru og innfallið brjóst. I bókinni er engin atþurða- rás. Hann er tólf ára og elskar kanastelpuna í næsta húsi, á næstu síðu fæðist hann og þriggja ára bróður hans bregður í brún. Tímaröð er látin víkja fyrir flokkun eftir eðli og staðsetningu atburð- anna. Annar höfundur bókar- innar er sagnfræðingur og því kann sú spurning að vakna hvort hún hefur eitthvert sagnfræðilegt gildi. Þeir sem vilja kynnast, (eða rifja upp) umhverfi og uppeldisaðstæð- um barns eftirstríðsáranna í Reykjavík finna eflaust ým- islegt sem ekki er til annars staðar. Lýst er á sannferðugan hátt heimilislífi millistéttar- fólks í Norðurmýri. Þar er borðuð kakósúpa, kjötsúpa, sagógrjónagrautur og plokk- fiskur, hlustað á útvarpsleik- ritið og Boccherini býður góð- an daginn. Leikfélagar, ná- grannar og annað fólk gefa mynd af nánasta umhverfi. Þar koma fyrir skemmtilegar persónur eins og konan sem „er svo fín að hún fer aldrei út í búð" og nornin sem „ er svo vond að, og af því, hún gat ekki eignast börn". Reykjavík fær lesandinn að kynnast þegar píslin fer í strætó, niður í bæ. í miðborg- inni eru jakkaklæddir menn með hatt og norskur hjálp- ræðishermaður boðandi dauf- um eyrum fagnaðarerindið. Píslin fer líka í Tívolí, Trípólí- bíó, kannar skotbyrgin í Öskjuhlíð og spókar sig á bað- ströndinni í Nauthólsvík þeg- ar „útlensk veðurblíða stelst norður í rassgat". Píslin fer í sveit að kenna kálfum slæma, en stærilátum unglingum, góða siði. Utan Norðurmýrarinnar eru glæpamafíurnar Tígris- klóin og Rauða drekamerkið, barátta Austur- og Vestur- bæinga. I skólanum leynast ýmsar hættur eins og Iýsi, Ijósaböð og leikfimi. Píslin hefur áhuga á spennubókmenntum, hasar- blöðum og er því mikilvægt að mæta reglulega á skipti- markaðinn í Austurbæjarbíói. Á fundi hjá K.F.U.M. notar hann tækifærið og stelur Tarzan síðunni úr Ugerevyen, í úrklippusafnið sitt: Ekki hafði Árni Magnússon samviskubit af pví að veiða skinnpjötlur úr rúmbotnum gamalla kvenna. Ekki hefur píslin teljandi samviskubit af pví að hafa bjargað Tarzani frá K.F.U.M. Undir lok bókarinnar kynnast píslin og Megas; tónlistar- áhuginn hefur vaknað... Firn eru að hann skulifinna sig í Gerplutexta og amerískri músik í senn, uppsprettum úr tveimur áttum sem samkvæmt pjóðern ishyggj unni eiga að vera algjörar andstæður. Gerpla og Presley, Erp og pre - spegilmynd reyndar. ...og stefnan virðist ráðin, hann hefur fengið pláss á órólegu deildinni: Þeir sem lenda úti í móa, vildu fegnir hafa getað haldið sig á troðningnum og ófá tár hafa hrotið niður kinn peirra sem ekki geta farið sömu leið ogaðrir.... Eitthvaðfær hann til að sjá heiminn með öfugum formerkjum pannig að á sólbjörtum almenningsvegi sér hann skrímsli sem hann ræður ekki við. Hann flýr pví inn í i?:yrkan drauma- heim í peirri von að að finna par rólega stund. Það er óhætt að mæla með „Sól í Norðurmýri", bókin er ekkert stór merk, en skemmti- leg aflestrar. Stíllinn er ein- lægur og kíminn og öðruvísi en stíll hinna endurminninga- sagnanna sem skrifaðar hafa verið. Ragnheiður Kristjánsdóttir 34

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.