Vera - 01.02.1997, Blaðsíða 5
ERU LÁGU LAUNIN
NÁTTÚRULÖGMÁL?
Um fátt er meira rætt um þessar mundir en þá óréttlátu stöðu sem ríkir í launa- og kjaramálum
hér á landi. Samningar stéttarfélaganna hafa verið lausir síðan um áramót en enginn vilji virðist
vera til þess að semja um neitt annað en áframhaldandi lág laun næstu árin.
VERA tekur púlsinn á kjaramálunum í þessu blaði og ræðir við tvær launamanneskjur um
þá list að lifa af allt of lágum launum, list sem stjórnendur fyrirtækja ættu að sjá sóma sinn í
að létta af starfsmönnum sínum hið fyrsta. Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur tekið
saman tölur um framfærslukostnað og birtum við dæmi af fjölskyldu sem hefur 157.000
krónur úr að spila á mánuði en vantar 106.000 krónur um hver mánaðamót til þess að ná
endum saman. Vanskil þessarar fjölskyldu eru 1.053.614 krónur en meðalvanskil þeirra
hundruða fjölskyldna, sem leitað hafa til Ráðgjafarstofunnar, eru 1.500.000 krónur. Þessar
staðreyndir hljóta að sýna svart á hvítu að kostnaður við öflun húsnæðis er í engu samræmi
við launakjör hér á landi.
Tvær konur sem standa í eldlínu kjarabaráttunnar, þær Martha A. Hjálmarsdóttir formaður
Bandalags háskólamanna og Guðrún Kr. Oladóttir varaformaður Sóknar, segja frá störfum
sínum og Helga Garðarsdóttir kynnir nýja leið í skattheimtu sem felst í því að afnema
persónuafslátt en lækka þess í stað skattprósentuna niður í 10 til 15%. Tilraun til þess að
komast upp úr þeim hjólförum, sem skattheimtan hefur verið í, þar sem allt of há prósenta
er innheimt af launum sem ekki duga til framfærslu.