Vera


Vera - 01.02.1997, Side 18

Vera - 01.02.1997, Side 18
Fátækt var fylgikona þessar- ar þjóðar um aldir. í upphafi þessarar aldar bjuggu að- eins örfáir við mannsæm- andi lífskjör hér á landi, ef miðað er við þær kröfur sem okkur þykir sjálfsagt að gera nú við lok hennar. Sagnfræðingar hafa talið að um 40% þjóðarinnar hafi búið við sára örbirgð og að um 1880 hafi um fjórðungur þjóðarinnar verið of fátækur til að giftast og stofna til heimilis. Stórkostlegar framfarir hafa orðið hér á landi á þeirri rúmu öld sem liðin er. Óumdeilt er að þessar framfarir hafa jafnað kjör landsmanna gífurlega og raunar eru vísbendingar um að le'rt sé af löndum sem hafa eins jafna tekjuskipt- ingu og ísland. Vera lagði eftirfarandi spurningar fyrir Davíð Oddsson, forsætisráðherra og Jóhönnu Sigurðardóttur, alþingismann: Hvað er fátœl\tl Er tií fátœ\t á íslanái1 DAVÍÐ 0DDSS0N, FORSÆTISRÁÐHERRA FÁTÆKT ER AFSTÆÐ Kröfur nútfmans gera afkomu, sem áöur heföi talist ásættanleg, meö öllu óbærilega. Með sögulegt baksvið er þó ekki sjálfgefið aö nota hugtakiö fátækt í okkar samfélagi meö þá samhjálp sem þjóöfélagiö reiöir af hendi. Þannig virðist sú fátækt sem menn telja sig skynja meðal þróaöra ríkja vera fremur sú að sá sé fátækur sem ekki getur veitt sér þaö sem fólk almennt getur veitt sér. Fátæktin verður þannig ekki algild held- ur afstæð. Það er þannig sem Félagsvísinda- stofnun skilgreinir fátækt í athugunum sínum. Fátækt er óljóst hugtak og vandmeðfarið, en sannanlega afar tilfinningaþrungið. Það er álitaefni hvort umræður um þjóðfélags- mál verði markvissari með því að nota það hugtak. Eðli málsins samkvæmt verður ávallt erfitt að lifa af lægstu tekjum. Þetta á við hér á landi sem annars staðar. íslend- ingar fara víða og hafa því séð með eigin augum viö hvers konar aðstæður fólk býr í öðrum nútímaríkjum. Þeir vita því að fátækt er ekki alvarlegra vandamál á íslandi en í öðrum löndum. Fátækt er að finna í öllum rikjum. Við þessu þurfa menn að þregöast með öllum tiltækum ráðum. Upphrópanir þjóna hins vegar engum tilgangi, heldur veröa menn að leggja áherslu á markvissar aðgerðir sem byggja á varanlegum grunni. í svari mínu um þetta efni á Alþingi í fyrra var bent á vankanta á fátæktarhugtakinu. Ef við skilgreinum fátækt sem afstæða þá er gefið aö ekki geti allir veitt sér það sem fólk almennt getur veitt sér. í þeirri merk- ingu verður alltaf til fátækt. Mest er þó um vert að athuganir Félagsvísindastofnunar staðfesta að úr fátækt í þeirra skilningi hef- ur dregið á íslandi frá 1995 til 1996. Kaup- máttur lægstu tekna hefur batnað undanfar- in ár og úr atvinnuleysi hefur dregið. Þetta hefur bætt hag þeirra sem erfiðast hafa átt. Það þýðir þó ekki aö allir erfiðleikar séu úr sögunni og enginn búi lengur við kröþp kjör. Þaö þýðir hins vegar að úr vandanum hefur dregið og efnahagslegar forsendur viröast vera fyrir þvt að ná meiri árangri á þessu sviði á næstu árum. Jafnréttisráðstefna í Lettlandi Dagana 7. til 10. ágúst n.k. veröur haldin alþjóöleg ráðstefna um jafnréttismál í Valmiera í Lettlandi. Ráöstefnan er haldin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar I samstarfi við ráöherraráö Eystrasalts- ríkjanna. Yfirskrift ráöstefnunnar er Women and Men in dialogue og er markmiðið að fjalla almennt um jafnréttismál og skiptast á skoðunum og reynslu af starfi að jafnréttis- málum. Einnig að búa til vettvang fyrir félagasamtök til aö kynnast og mynda tengsl sem haldið gætu áfram að ráðstefnunni lokinni. Tengiliðir ráðstefnunnar á íslandi eru Herdís A. Sæmundsdóttir, s. 453 6618 og Guörún Jónsdóttir, s. 563 0705. Hægt er aö fá skráningareyðublöö á Skrifstofu jafnréttismála, Pósthússtræti 13, s. 552 7420 en skráningarfrestur rennur út 20. febrúar. Nánar verður sagt frá ráðstefnunni í næsta tölublaði Veru. IS

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.