Vera


Vera - 01.02.1997, Side 44

Vera - 01.02.1997, Side 44
 Mill Valley, Califomia á vaxandi tungli, 21. nóvember, 1996 Elskulegu Verur! Lengi hefur staðið til að senda ykkur línu. Til að þakka fýrir Veru - sem ber mér reglulega yfir hafið fregnir af íslenskum femínisma - og þó ekki síður til að deila með ykkur einhverju af þeim fjársjóðum sem ég syndi hér í dag hvern. Eins og þið vitið, þá er ég hér í þessu fjarlæga landi til að bæta við og rótfesta þekkingu mína og skilning á mikil- vægi Gyðjunnar í nútímasamfélagi. Ég hef þá trú (sem styrkist dag- lega) að Gyðjan sem fyrirmynd, oggoðsagnir hennar sem leiðarvísar, geti til muna auðveldað konum og körlum ferðina inn í nýjan tíma með nýjum gildum. Tíma þar sem vöxtur og vernd og nærandi sam- skipti skipta meginmáli, en þar sem við horfumst líka I augu við hin- ar myrku hliðartilverunnar, hvort sem við skilgreinum þá tilveru útfrá okkur manneskjunum og okkar tilbúna heimi, eða útfrá náttúrunni, árstfðum, himintunglum og innri umhleypingum móður okkar jarðar. Bandaríkin eru spennandi land með tilliti til margbreytileika mannlífsins (hvenær ætlum við að finna ný orð yfir öll þessi mann-orð?), alls kyns trúarlífs og framandlegra lífsviðhorfa, sem hér nærast og vaxa, og San Fransiskó, eða "Flóa- svæðið” (The Bay Area) eins og SF og nágrenni er kaliað, er án efa nafli þess vaxtar. - Þá detta mér í hug Fensalir, riki Friggjar, sem ég sé alltaf fyrir mér sem vaxtarsvæði hins kvenlæga máttar, upp úr myrkum fenjum hins ómeðvitaða. - Ég heyrði staðhæft um daginn að Gyðjutrú og „Women’s Spirituality" eða „kvennahelgi", sé sú trú sem vex hraðar en nokkur önnur hér í Bandaríkjunum um þessar mundir. Það er því við hæfi að eini háskólinn í heiminum sem hefur sérstaka deild fyrir þessa fræði skuli vera einmitt hér á Flóa- svæðinu/Fensölum. Mér er sagt að hvergi annars staðar sé hægt að krækja sér í meistaragráðu í „helgum kvennafræðum". (Getið þið hjálpað mér við að þýða þetta hugtak „Women’s Spirituality"?) Sér- hver dagur er þess vegna uppljómun og þótt ég hafi verið nokkuð vel lesin og sjálflærð í fræðunum áður en ég kom hingað, þá finnst mér ég hafa lært ótrúlega mikið á síðustu fjórum mánuðum. Að hluta til er það þetta fyrirbæri, sem við þekkjum allar, að við söfnum reynslu og þekkingu en gefum okkur aldrei tíma til að setja það í samhengi. Valgerður H. Bjarnadóttir, fyrrum jafnréttisfulltrúi á Akureyri, er að fræð- ast um kvennakraftinn vestur í Kaliforníu. VERA fékk eftirfarandi bréf frá henni og hefur fengið loforð um að þau verði fleiri. Gyðjutrú sé sú trú sem vex hraðar en nokkur önnur hér í Bandaríkjunum Nú hef ég þann tíma, og um leið er ég umkringd konum (og jafn- vel körlum) sem hafa verið að skoða sitt líf og tilveruna al- mennt út frá sama sjónar- horni og ég síð- ustu 20-30 ár. Undanfarin ca. 16 ár hef ég í raun, ásamt Karólínu vinkonu minni, á óformlegan hátt tilheyrt trúarlegri hreyfingu kvenna sem rekur rætur sínar hingað að hluta en er þó alþjóðleg og með ræt- ur í ævafornri tíð. Við höfum drukkið í okkur allar bækur sem við höf- um fundið um þessi mál (og þær eru orðnar margar) og einstöku sinnum rekist á konur sem deila áhuga okkar, en það var ekki oft fyrr en á Nordisk Forum í Turku. Þar varð okkur Ijóst að norrænar konur eru farnar að þrá Gyðjuna og það var athyglisvert að upplifa hvernig allar „samkomurnar" (fyrirlestrar og námskeið) sem fjölluðu um Gyðjuna voru upphaflega áætl- aðar í 30-40 kvenna sölum, en voru fluttar í 200-300 kvenna sali. Við þurftum að reka grát- andi konurfrá þegar við héldum okkar litla nám- skeið um Lífsvefinn, þar sem minnst var á Gyðj- una, þegar herbergið var orðið yfirfullt. Þörf kvenna fyrir nýjar hugmyndir til að byggja lífsvef- inn sinn á, nýjar goðsagnir til að tengja sig við, kemur skýrt fram á námskeiöunum sem við höfum haldið undanfar- in ár og í Menntasmiðjunni, þar sem við höfum líka kynnt Gyðjuna. Nú kaupi ég mér og les „eina bók á dag" um þessi mál og það líð- ur varla sá dagur að ég hitti ekki einhverja þeirra kvenna sem skrif- uðu þessar bækur. Dag eftir dag tek ég þátt t umræðum kvenna um „lífsvefinn" og hef tíma ogtækifæri til að skrifa og hugsa um tengsl Gyðjunnar og kvenhetjanna forðum við Gyðju og hetjur nútímans. Ég vakna á hverjum morgni og leggst til hvílu hverja nótt með þá tilfinn- ingu að þetta hljóti að vera draumur. Nú I haust hef ég verið að læra mikið um Inönnu, drottningu him- ins og jarðar, eins og Súmerar kölluðu hana. Hún hefur lengi verið mér kærari en nokkur önnur Gyðja og mér finnst ég meir og meir finna í henni þá Freyju sem einu sinni var, áður en karlveldið og kirkj- an tálguðu utan af henni mestallan kraft og helgi og gerðu hana að súkkulaði. Eitt af markmiðum mínum er að finna hina týndu Freyju,

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.