Vera


Vera - 01.02.1997, Síða 24

Vera - 01.02.1997, Síða 24
KONUR ERU GERENDUR I EIGIN LIFI Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur stýrt Reykjavíkurborg af festu og öryggi í þau tæpu þrjú ár sem Reykjavíkurlist- inn hefur haft völdin í málefnum borgarinnar. Hún hefur náð að sameina ólík sjónarmið þeirra flokka sem stóðu að listanum, án þess að til sýnilegra átaka hafi komið. Súsanna Svavarsdóttir ræðir við borgarstjóra um áhrif og stöðu kvenna i stjórnmálum og eigin lífi - og þær aðstæð- ur og framtíð sem við búum börnum landsins. Daginn sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir steig inn fýrir þröskuld íslenskrar stjórn- málaumræöu, var Ijóst að þar fór pólitíkus sem var kominn til að vera. Fædd til að vera leiðtogi, ekki bara í stjórnmálasamtökum, heldur einnig í hugmyndafræði og gildis- mati. Hennar leið var í gegnum Kvennafram- boðið og Kvennalistann, öörum flokkum til hrellingar - því hver vill ekki eiga þann sem er fremstur meðal jafningja? Hún er málefnaleg, laus við rætni og skít- köst, einbeitt og fylgin sínum málstaö og setur mark sitt hvar sem hún kemur. Það er ekki annað hægt en að dást að þessari konu - hver sem pólitísk afstaða fólks kann að vera - enda nýtur hún fylgis. Það kom best I Ijós þegar R-listinn sigraöi borgar- stjórnarkosningarnar fyrir tæpum þremur árum, en ýmsir hafa látið þau orð falla að það hefði aldrei tekist án Ingibjargar Sólrún- ar sem leiðtoga kosningabaráttunnar. Og það er óhætt að segja að landslagið í stjórnsýslustofnunum borgarinnar hafi breyst á því kjörtímabili sem er nú rúmlega hálfnað, því litróf kvenna er þar mun ríkara en áður var. Stöður borgarbókavarðar, borg- arminjavaröar og forstöðumanns Náms- flokka Reykjavíkur höfðu lengi verið skipað- ar konum og undir 1994 bættust félags- málastjóri og forstööumaður vinnumiðlunar í hópinn. En frá því að Ingibjörg Sólrún sett- ist í borgarstjórastólinn hefur konum fjölgað til muna. Nú eru konur í stöðum borgarrit- ara, fjármálastjóra Reykjavíkurborgar, for- stjóra SVR, skrifstofustjóra heilbrigðiseftir- lits, fræðslustjóra borgarinnar, lögfræðings í starfsmannahaldi og feröamálafulltrúa, auk þess sem fleiri konur hafa verið skipaðar í samninganefnd borgar- innar og ráðnar í ýmis verkefni, til dæmis T sam- bandi við vímuvarnir og flutning grunnskólans. Það er því oröinn nokk- uð góður stokkur af konum í stjórnunarstöð- um hjá Reykjavíkurborg, sem Ingibjörg Sól- rún segir skipta megin máli. En hvers vegna? „Þegar maður lítur á kerfi eins og Reykja- víkurborg, þarf lágmarks fjölda til að ná fram nýjum hugmyndum og breytingum,” segir borgarstjóri. „Ekki svo að skilja að konur í embættiskerfinu séu alltaf sammála, en þær veita móralskan stuðning- sem konum veitir ekkert af. Hins vegar er það dálítið merkilegt að þegar við höfum ráðið þessar konur, eina af annarri, var það ekki fyrst og fremst vegna þess að þærværu konur, heldurvegna þess að þær voru fremstar meðal jafningja. Það hefur verið skýr stefna hjá okkur, að ef við erum með tvo umsækjendur sem eru jafn- hæfir, konu og karl, þá ráðum við konuna. En við höfum líka ráðið karlmenn í stöður á þessu kjörtímabili. Þegar við höfum ráðið tværtil þrjár konurí röð í stjórnunarstöður þá er það frétt, en þegar við höfum ráðið karl- menn tekur enginn eftir því." Hver heldurðu að sé skýringin á því að konur hafa veriö svona fáar í stjórnunarstöðum hjá Reykjavikurborg fram til þessa? „Viðkvæðiö hjá körlum er gjarnan; það eru engar konur. En það er nú einu sinni svo að ef menn umgangast mjög þröngan hóp, til dæmis bara karlmenn, þá þekkja þeir engar konur. Núna sækja konur frekar um stöður sem losna, vegna þess að þær vita að þær eiga raunverulegan mögu- leika á að fá þær. Mér finnst orðið allt ann- Helsta áhyggjuefni okkar er kjaraleg staða kvenna

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.