Vera


Vera - 01.02.1997, Page 27

Vera - 01.02.1997, Page 27
sóla i umræöu. Þar eru menn frjálsari og óháöari og ættu að vera leiðandi í hugmyndafræði- legri umræðu. Það á líka við um kvenna- fræðin. En Háskóli íslands er því miður dá- lítið einangrað fyrirbæri í dag.” Ég hef oft tekið eftir því að konur eiga erfitt með að þola að talað sé um þær sem fórnarlömb karlveldis - einfald- lega vegna þess að ef þú ert fórnarlamb, þá ertu vanmáttug og getur ekkert gert til að rétta þinn hlut. Heldurðu að um- ræða af þessum toga hafi tafið fyrir skilningi á því hverju Kvennalistinn stendur fyrir? „Auðvitað viljum við ekki láta tala um okkur sem fórnarlömb. Reyndar hefur mér aldrei fundist umræða Kvennalistans ein- skorðast við þetta, þótt vissulega hafi þetta verið nefnt. Umræðan hefur ekki síður snú- ist um konur sem gerendur. Þegar Kvenna- framboðið fór af stað snerist allt um að breyta sjónarhorninu; líta á þau gæði og þá möguleika sem konur ættu. Við lögð- um áherslu á að konur litu á sig sem gerendur. Það var einmitt það sem kveikti í mér þegar Kvennafram- boðið fór af stað. En þaö er satt, það er mjög auðvelt að missa umræð- una niður á þetta þlan. Það er nú einu sinni svo aö okkur er öll- um markaður rammi í lífinu - misrúmur eftir efnum og aðstæðum - en við getum alltaf verið gerendur innan þessa ramma og reynt að útvíkka hann; reynt að ýta úr vegi þeim hindrunum sem á vegi okkar verða. Hver einasta kona er gerandi í sínu eigin lífi, jafn- vel þótt hún eigi fárra kosta völ og þótt það sé erfitt, þá verður hún að setja sér stefnu. Ef við tökum dæmi, þá er kona sem býr við ofbeldi á heimili auðvitað fórnarlamb að- stæðna, en á endanum getur enginn bjarg- að henni út úr þeim, nema hún sjálf. Það er hins vegar hægt að hjálþa henni á margvís- legan máta og það veröur að gera. Það verö- „Þaö er hættulegt þegar kvenna- hreyfingin fer aö krefjast þess að eitthvaö sem varð til til þess aö ýta á þróun í málefnum kvenna, þurfi alltaf aö vera til.“ ur að vera til stuðn- ingskerfi sem aðstoðar hana í þessu vali.” Eiga konur fleiri valmöguleika í dag en áöur hér á íslandi? „Já, það er auðvitað búið að flytja rammana heilmikið út. Þótt við lítum ekki lengra en tuttugu ár aftur í tímann þá sjáum viö mikla hugarfarsbreytingu. í dag finnst konum eðlilegt að eiga sama rétt og karl- menn og í rauninni eru karlmenn sömu skoðunar. Við gerðum könnun á því hjá borg- arbúum hvort fjölga ætti konum í embætt- um. Niðurstaðan úr þeirri könnun var sú að meirihlutinn svaraði játandi - þótt karlarnir eigi kannski erfiðara með að kyngja því þeg- ar til kastanna kemur.” Hvaða verkefni er mest aðkallandi í jafnréttisbaráttunni í dag? „Það er alltof mikið af ungum, menntun- arlausum mæðrum í samfélaginu. Þær eru glaðar heima meö börn sín í dag. En hvað svo? Það er svo stuttur tími af ævi okkar sem fer í að ala uþþ börn og síðan kemur mjög langur tími sem kon- ur þurfa að huga að. Á at- vinnuleysisskrá Reykjavík- urborgar eru mun fleiri ungar konur í sambúð en einstæðar mæður. Þær eru á atvinnuleysisskrá til að geta verið heima hjá börnunum - sem er gott og vel - en þær eru ekki að nýta tímann til að búa sig undir það sem á eftir kemur.” Eru það ekki viss forréttindi aö geta veriö heima hjá börnunum sínum í dag? „Ekki þegar það er staða sem þú lentir í af því að þú áttir svo fárra kosta völ. Til að þetta væri raunverulegur valkostur þyrftu þessar stúlkur að geta sótt sér starfsmennt- un. Þegar tímabili barnauþþeldisins lýkur, blasir blákaldur veruleikinn við. Bæði er að þær vilja kannski gera eitthvað við líf sitt eft- ir að barnaupþeldi lýkur og eiginmenn geta farið; yfirgefið þær og börnin og þær þurfa að huga að því að geta staðið á eigin fótum ef í haröbakka slær. Mér finnst hún alltaf dálltið sérkennileg Sterk vinátta sterkra kvenna breytir heiminum umræðan, sem maður heyrir öðru hverju í Þjóðarsálinni, um að barnsmeðlög séu svo svívirðilega há; aumingja feðurnir sem eru farnir frá fjölskyldunum sínum eigi enga möguleika á að stofna aðra fjölskyldu. Meira að segja konur hringja inn og býsnast yfir þessu. Það er eins og þeir séu ekki leng- ur feður barnanna sem þeir hafa þegar sett I heiminn. Bara hættir því og eiga rétt á nýj- um börnum. það er hins vegar aldrei rætt um að það geti verið erfitt fyrir einstæðar mæður að stofna nýja fjölskyldu. Börnin eru ekki ókeypis á framfæri þeirra.” Nei, og viö getum ekkert hent gömlu börnunum þegar fjölskyldan leysist upp og fengið okkur ný. „Það er einkum þess vegna sem við verð- um að fá ungar stúlkur til að líta til lengri tlma og gera sér grein fyrir því að þær verði að ná sér I starfsmenntun. Það er ekkert upp- byggjandi fýrir þær að vera á atvinnuleysisskrá. Annars er athyglisvert hvað hann er stór þessi hópur af ungum stúlkum og strákum sem eru á atvinnuleysisskrá og eiga enga möguleika nema þau fái starfsmenntun. Það hafa margir krakkar komið til að ræða við mig; klárir krakkar sem hafa lent ein- hvers staðar á milli I þessu skólakerfi. Og ekki vegna þess að þau geti ekki lært.” En er það ekki líka vegna þeirrar of- uráherslu sem er lögö á „akademískt” nám hérna? „Jú, og ofuráherslu á bóklega kennslu. Það er auðvitað til mikið af krökkum sem eru ekkert fyrir bókina, en það leikur allt I höndunum á þeim. Mér er minnisstæður einn strákur sem kom til mín til að leita að- stoðar. Hann sagðist alls ekki geta lært stærðfræði - bara alls ekki. Það hafði marg- reynt á það. Hann hafði þrisvar byrjað I Iðn- skólanum en strandaði alltaf á sama staö; stærðfræðinni. Það kom svo I Ijós að það lék allt I höndunum á honum, hann gat tek- ið I sundur hvaða tæki sem var, gert við það og sett það saman aftur og hann vissi allt um tölvur. En hann var ekki með neitt þróf og fékk því hvergi vinnu. Það er ekkert pláss fyrir svona krakka I okkar menntakerfi. Skólakerfið er á villigötum. Sú ofurá- hersla sem við höfum lagt á bóklega kennslu gerir það að verkum að mörgum krökkum sem hafa hæfileika á öðrum svið- um hefur liðið illa á skólabekk. Fyrir mörg þeirra er það óyfirstíganlegur hjalli að taka ákvörðun um að fara I þriggja til fjögurra ára framhaldsskólanám að loknum grunnskól- anum. Það gæti skipt verulegu máli ef þau þyrftu ekki að taka ákvörðun um að borða

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.