Vera


Vera - 01.02.1997, Síða 33

Vera - 01.02.1997, Síða 33
í strangri gœslu Daginn eftir áttum við stefnumót við portú- galska sjónvarpið sem hafði fengið veður af framlagi okkar, en því var statt og stöðugt haldið fram að við hefðum verið fyrstar til að tilnefna Ramos-Horta. Þennan dag komu þeir Horta og Belo til borgarinnar og þá strax varð Ijóst að mikil spenna var í kringum komu þeirra. Indónesar tóku á móti þeim Austur-Tímorum sem komu frá Tímor, fóru með þá f sendiráðið og rœddu við þá, en enginn sagði frá því hvað þar bar á góma. Biskupi var bannað að hitta Ramos-Horta en það var að sjálfsögðu óframkvœmanlegt. Fylgst var með ýmsum Austur-Tímorþúum og utan við hótelið, sem var rétt við hliðina á hótelinu okkar, var stöðug vakt frá indo- nesíska sendiráðinu en þar gistu m.a. gest- ir norskra stúdenta. Síðla dags þennan sunnudag messaði Belo þiskup í troðfullri Sankti Ólafskirkjunni undir strangri gœslu öryggisvarða. Bisk- upinn er ákaflega hlýlegur maður, en hann átti greinilega afar erfitt þessa daga, því hann óttaðist að fá ekki að fara heim aftur og gœtti sín því mjög í öllu sem hann sagði. Hann var reyndar vart fýrr kominn heim til Tímor en reynt var að myröa hann í messu á jóladag. Sérkennilegur kvöldverður Um kvöldið áttum við stefnumót við Ramos- Horta á Teatercafén, en með honum komu þeir Sigurjón Einarsson, Morten Harker, kvikmyndagerðarmaöurinn Max Stahl og 11 ára gamall sonur hans, auk öryggisvarðar. Ramos-Horta er afar vinalegur maöur, hress og óformlegur en mestur tími hans fer í ferðalög um heiminn t þágu Austur-Ttmor. Þetta varð afar sérkennilegur kvöldverður því viö fengum lítinn sem engan frið. Portú- galska sjónvarpið var mœtt á staðinn og tók viötöl, þá birtist hópur Brasílíumanna, m.a. þingmaður og ein frœgasta leikkona Brasil- íu, allt stuðningsmenn Horta og Belo. Þarna voru prestar sem þurfti að heilsa og loks mœtti norska sjónvarpið sem tók viðtal við okkur stöllur. Viö gátum loks boröað og spjallað saman, en síðan fór hópurinn niður á Grand Hotel til herbergja Ramos-Horta til að horfa á glœnýja heimildarmynd Max Stahl, Sigurjóns o.fl. um Belo biskup og þró- un mála á Austur-Tímor, en hún var sýnd í norska sjónvarpinu þetta kvöld. Þarna bœtt- ust enn fleiri í hópinn, aðstoðarfólk, fleiri úr flokki kvikmyndagerðarmanna og Birna Lár- usdóttir fréttaritari Ríkisútvarpsins sem fékk viðtal við Horta og okkur ís- lendingana. Á mánudeginum hófst ráð- stefna um málefni Austur- Tímor í háskólanum í Ósló sem stóð fram eftir degi. Þar voru flutt athyglisverð erindi um sögu og mannfrceði Tímor og um þróun mála þar. Á Teatercafén. José Ramos-Horta ásamt leikkon- unni Lucella Santos frá Brasilíu en hún lék m.a. aö- alhlutverkiö í hinni firnalöngu sjónvarpsseríu um ambáttina Isauru. Aö lokinni athöfn. Popparinn Morten Harket, Kristín Einarsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson og Sigurjón Einarsson skála í kampavíni og bjór. Verðlaunaafhendingin Loks rann þriðjudagurinn 10. desemþer. upp. Nóþelshátíð- in átti að hefjast kl. 13.00 en gestir skyldu sestir í síðasta lagi kl. 12.30. Við vorum mœttar í okkar fínasta pússi upp úr hádeginu enda áttum við stefnumót við Ijósmynd- ara sem tók myndir fyrir Morg- unblaðið. Síðan héldum við inn I ráðhúsið og fylgdumst af mikilli forvitni með gestunum sem streymdu að. Þar mátti sjá norska þingmenn, fyrrver- andi ráðherra, léttklœdda Austur-Tímorbúa úr dans- og söngflokki sem kom fram við athöfnina, fjölda Portúgala og fyrirmanna úr ýmsum áttum. Forsœtisráðherra Portúgal var mœttur og rétt áður en at- höfnin hófst streymdi inn hópur Afríku- manna sem sumir hverjir voru I búningum herforingja. Þar reyndust komnir forsetar Mosambique og Ginea-Bissau ásamt fjöl- mennu fýlgdarliði. Loks komu konungshjón- in og verölaunahafarnir. Athöfnin, sem var afar hátíöleg, hófst á tónlist en slðan rökstuddi formaður Nóbels- nefndarinnar valið þetta árið I rœðu þar sem hann rakti sögu Austur-Tímor, talaði um mik- ilvœgi mannréttinda, frelsis og sjálfsákvörð- unarréttar þjóða. Enn var flutt tónlist og verðlaunin afhent en síðan fluttu verðlauna- hafarnir mjög góðar rœður. Belo biskup þakkaði stuðning við íbúa lands síns, talaði um mikilvœgi þess að fólk nyti mannrétt- inda, leysa þyrfti pólitíska fanga úr haldi og finna endanlega lausn á Tímordeilunni. José Ramos-Horta var mun pólitískari. Hann byrj- aði á að minnast allra þeirra sem fallið hafa I baráttunni við Indónesa, minnti á að foringi Fretelin, Xanana Gusmán, situr I fangelsi I Jakarta dœmdur I œvilangt fangelsi og rakti síðan lið fyrir lið hvað brýnast er aö gera á leiðinni til friðar og sjálfstœðis Austur-Tímor. Þeim var báðum gífurlega vel fagnað og það var gaman að sjá fyrrverandi þingkonu Kvennalistans, Kristínu Einarsdóttur, stökkva upp á stól I silkidragtinni til að taka myndir af fagnaðarlátunum þegar allir höfðu staðið upp. Brotið í blað Það ríkti mikil gleði I lokin. Stuðningsmenn kysstust og föðmuðust enda höfðum við sterkt á tilfinningunni að hér hefði verið brot- ið I blað og að hugsanlega sœi fyrir endann á þjáningum Austur-Tímora. Eftir athöfnina var haldið á Grand Hotel þar sem við skáluðum I kampavíni og snœddum brauð með laxi. Með vorinu er von á José Ramos-Horta 1 heimsókn hingað til lands. Þá gefst öllum sem vettlingi valda tœkifœri til að hlusta á hann og kynnast baráttu hans langþjáðu landsmanna sem þurfa svo sannarlega á stuðningi að halda eigi þeim að takast að öðlast sjálfstœði á ný.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.