Vera - 01.02.1997, Qupperneq 38
íi
ÚLFHILDUR DAGSDÓTTIR
í/íoc/* {{()/*/>[(/ til? t I7i(/y/'ef/i(/t(ja/* ay sAwirnsAœliruýa/'
15. febrúar ver Dagný Kristjáns-
dóttir doktorsritgerð sína um
Ragnheiði Jónsdóttur, sem hún
nefnir: Kona verður til. Um leiö
verður til fyrsti doktorinn í ís-
lenskum kvennabókmenntum.
Dagný útskrifaðist sem cand.
mag. 1979, úr íslenskudeild HÍ.
Hún var íslenskur lektor í Ósló í
sjö og hálft ár, frá 1982 til 1990
og er nú dósent og skorarfor-
maður í íslensku fyrir erlenda
stúdenta.
Ritgerö Dagnýjar hlaut jákvæöa umsögn
dómnefndarinnar sem var skipuð Ástráöi Ey-
steinssyni, prófessorvið HÍ, Sigríöi Þorgeirs-
dóttur, sem er nýráöin heimspekingur viö
HÍ, og Erik Skyum Nielsen, dönskum gagn-
rýnanda og bók-
menntafræðingi. Dag-
ný var mjög ánægö
með dómnefndarálitið
sem hún segir „ein-
kennast af gagnrýn-
inni viöurkenningu",
en bætir viö aö hún sé
ekki sammála allri
gagnrýninni!
Ég hitti Dagnýju í grænni stofu og spjall-
aöi viö hana um ritgeröina og femínismann
og hitt og annað.
Dagný, hvernig er tilfínningin aö vera
búin aö Ijúka svona stóru verkefni? Kon-
ur tala oft um sköpunarverk sín á mjög
líkamlegan hátt, og lýsa skilunum sem
einskonar „eftirfæöingarþunglyndi". Var
þetta erfiöur aöskilnaður fyrir þig?
„Þaö segir í Völsungasögu aö móðir Völs-
ungs gekk með hann I sex ár og barnið var
mikið vexti begar það fæddist og mér leið
svolítið eins og fornaldarsagnamóður, því
aö ég er búin aö ganga meö þessa ritgerð
tvisvar sinnum lengur, eöa í 12 ár. Og þegar
ég var búin, þá var ég búin aö vera á sál og
líkama og fegin að vera laus viö hana. Ég var
alvegtóm.
Ég er í gamla doktorskerfinu hérna, sem
er gamaldags og viröulegt. Þar er gert ráö
fýrir að doktorsritgeröin sé ávöxtur af ævi-
starfi þroskaðs fræðimanns. Síöan kemur
dómnefndin og gagnrýnir verkið og maður
stendur og fellur með því.
Ég hafði engan leiöbeinanda, og þar
meö engan ábyrgöaraðila innan Háskólans,
fýrir því aö ég væri að fara réttar leiðir. Ég
mæli ekki með þessu kerfi fyrir börn og
taugaveiklað fólk eins og þar segir.“
En er þetta ekki gaman samt, núna
þegar þú ert búin?
„Þetta er búiö aö
vera ofsalega gefandi
og skemmtilegt. Og
þó að vörnin sé eftir er
mér fariö aö finnast
aö ég sé búin og
framundan sé frelsiö.
Allt sem ég er búin að
gera í svo langan tíma
hefur veriö bundiö af þessari bók. Núna
finnst mér ég geta hvaö sem er, hætt aö
vera femínisti og oröið jafnvel antifemínisti
ef mér sýnist!"
Femínisti eöa ekki feministi; femínism-
inn hefur gerbreyst og umbreyst á þeim
tíma sem þú vinnur í þessari ritgerö.
„Þegar ég skrifa cand. mag. ritgerðina
mfna var ég á kafi í Rauðsokkahreyfingunni
og var líka höll undir Fylkinguna. Ritgerðin
var um Þórubækurnar eftir Ragnheiði og
Bókmenntirnar voru
notaðar í umræðuhóp-
um tii að ræða stöð-
una, berjast um hug-
myndir, hlæja og njóta
b
Dagný og Úlfhildur vona aö staða
feminismans og kvennabók-
menntanna sé aö verða sterkari.
metnaöurinn var ekkert lítill. Teoretískt
markmið þeirrar ritgerðar var aö sameina
Marxisma og femínisma. Og ég var ekki ein
um aö langa til þess, þetta var svo upplagt,
femínisminn var uppreisnarhreyfing og
Marxisminn líka. En máliö var nú ekki svona
einfalt. Og undir lok 8. áratugsins má sjá