Vera


Vera - 01.02.1997, Side 42

Vera - 01.02.1997, Side 42
Kvennastjórnmálaf leikur á kerfið í Norð Bandalag kvenna á Norður-írlandi var stofnað í apríl sl. Þær settu sér það markmið að eiga fulltrúa í viðræöum um frið og framtíðarskipan mála á N-írlandi. í þessu augnamiði buðu þær fram í kosningum sem efnt var til um val á full- trúum í viðræðurnar. í júní náðu þær settu marki og eiga fulltrúa í viðræöun- um sem enn standa yfir. Yfirlýst markmiö viöræönanna er aö binda enda á vargöldina sem verið hefur á N-ír- landi nær stanslaust frá 1969 en má rekja nær 800 ár aftur í tímann. Þaö var þrekvirki hjá konunum að stofna stjórnmálaflokk á mjög skömmum tíma og sigurinn er mikill þegar haft er T huga að samtökin voru alveg ný af nálinni og afar lítil hefð fyrir stjórnmála- þátttöku kvenna á Norður-írlandi. Nú fyrst fá konur tækifæri til að hafa áhrif í samskipt- um Norður-íra við stjórnvöld í Lundúnum. Það er harla ótrúlegt hvernig þetta tókst. Úrslit kosninganna áttu að leiða í Ijós hverj- ir tækju þátt í friðarviðræðunum. Hópur bar- áttukvenna sá sér þarna leik á borði. Bretar höfðu ákveðið að mjög litlir flokkar fengju Ifka sæti við samningaborðið. Var það gert til að tryggja að fulltrúar smáflokka í tengslum við hermdar- verkasveitir mótmælenda fengju sæti við samninga- borðið. Tryggja átti þeim tíu flokkum sem flest at- kvæði fengju tvö sæti hverjum, og með hliö- sjón af fyrri kosningum þótti sýnt að aðeins þyrfti 1.800 atkvæði til að komast í 10. sæti. Bandalagskonur sáu T hendi sér að þó enginn kysi þær nema ættingjar og vinir kæmust þær inn. Þær vissu líka að þetta væri eina leiö kvenna að samningaborðinu. Konurnar fengu heimild fyrir framboðinu og höfðu þá aðeins tíu daga til að safna nógu mörgum fulltrúum á lista. Þær buðu alla vel- komna og fjölmargir hringdu. „Ekki var spurt um stjórnmálaskoðanir, eða trúmál, mark- miðið var að fá konur úr öllum áttum til að vinna að lausn vandans. Við kepptum ekki að þátttöku vegna þess að við hefðum lausn á vandanum, heldur vegna þess að það var einlæg ósk okkar að lausn mætti finna með viðræðum, án vopna", lét Bronagh Hinds, ein bandalagskvenna, hafa eftir sér. Kvennabandalagið fékk aðeins 1,2% atkvæða en lenti í 9. sæti T kosningun- um og fékk því tvo fulltrúa við samninga- borðið. Þær trúðu varla sjálfar að kvenna- flokkur heföi náð slíkum árangri en þegar auglýst var eftir fulltrúum reyndi enginn karl- maður að komast að. Það reyndi því aldrei á jafnréttislög vegna stofnunar bandalagsins. Kvennasamtök á N-írlandi hafa löngum staðið á brauðfótum vegna innbyrðis ágrein- ings um afstöðuna til Breta og írska lýðveld- ishersins. Hefðbundin baráttumál kvenna nutu lítillar athygli þartil um 1985 þegar kon- ur ákváðu að líta framhjá stjórnmálalegum ágreiningi og vinna að sameiginlegum bar- áttumálum. Margar kvenfrelsiskonur á N-írlandi hafa heimsótt Mary Robinson for- seta en hún hefur unnið að þvl að tengja saman kvennahópa í norðri og suðri. Nú eru getnaðarvarnir leyfðar á hinu kaþólska ír- landi, hjónaskilnaðir heimilir og réttur samkynhneigðra hefur verið tryggður. (Fóstur- eyðing er aðeins leyfð undir sérstökum kringumstæðum). í sTðustu kos- ingum á írlandi fjölgaði þingkonum úr 8 í 12%. Bandaríski sendiherran á íriandi, Jean Kennedy Smith , hefur einnig unnið ötullega að málefnum kvenna og verið tengiliður þeirra við kvennahreyfingar í Bandaríkjun- um. Ekki eru allir jafn hrifnir af Kvennabanda- laginu en það ætlar að setja dagvistar- og bamavemdarmál á oddinn. Á N-írlandi býr eitt af hverjum þremur börnum við fátækt. Marie Mulholland, fulltrúi kvennasamtaka í Belfast, óttast að bandalagið skorti sam- stöðu um málefni N-írlands. Hún segir skjól- stæðinga sTna vera fátækar konur, sem líði Þær trúðu varla sjálfar að kvennaflokkur hefði náð sllkum árangri lokkur u r - í r I a n d i fyrir ástandið í landinu, meðan bandalagið skipi einkum menntakonur og óttast hún að þær Konurnar taka nú þátt í viðræðum um frið og framtíðarskipan mála á N-írlandi breyti litlu með setu sinni við samningaborðiö. Sinn Fein, stjórnmálaarmi írska lýðveldis- hersins, hefur verið meinuð þátttaka í við- ræðunum þó hann hafi hlotið 15% atkvæða í kosningunum. Því situr allt fast. 0g meðan samningaviðræðurnar standa yfir linnir ekki ofbeldinu á götum úti. Svo dæmi sé tekið var Windsor Kvennamiðstöð- in sprengd í loft upp þann 13. september sl. Vegurinn framundan er sannarlega grýttur, en þær T Kvennabandalaginu eru vissar um að konur á N-írlandi eygi nú möguleika á bættri stöðu. Nell McCafferty, MS magazine, nóv./des. 1996 VSV þýddi og endursagði

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.