Vera - 01.02.1997, Síða 46
starfsnámí í Hinu húsínu
l
I Hinu Htisinu, sem starfrækt er
i gamia Geysishúsinu, hafa
skemmtilegir hlutir verið aö
gerast i atvinnumálum ungs
fólks á höfuðborgarsvæðinu.
Þar hefur ungu, atvínnulausu
fólki staðið til boða að taka
þátt í námskeiði sem kallast
„Starfsnám Hins Hússins”. Á
námskeiðinu eru þátttakendur
búnir undir starfsþjálfun á
vinnustað sem þeir hafa valið
út frá sínu áhugasviöi. Starfs-
námið hefst á fjögurra vikna al-
Benóný Ægisson hefur skipulagt
námskeiö fyrir atvinnulausa.
mennu námskeiði þar sem
kennt er frá kl. 9 -16, og farið
t.d. í undirstöðuatriði skyndi-
hjálpar, námstækní, samskipti
og sálfræði daglegs lífs, og rétt-
indi og skyldur á vinnumarkaði.
Fengnir eru viöurkenndir leiöbeinendur og
fyrirlesarar. Til aö koma til móts viö ólíkan
hóp er einnig boöiö upp á valgreinar, sem
eru: tölvunám, listir og handverk og siðfræði
og heimspeki. Meöan á námskeiðinu stend-
ur er uppbygging einstaklingsins höfð í fyrir-
rúmi og rík áhersla lögö á samvinnu nem-
enda og myndun góðs hópanda.
Til aö hafa rétttil þátttöku á námskeiðinu
þarf viökomandi aö vera á aldrinum 18 - 25
skemmtileg upplífun
ærdómsrík og
Mér tókst að ná tali af tveimur
þátttakendum á námskeiðinu.
Þau voru á leiðinni í heimspeki-
tíma hjá Katli Magnússyni en
voru svo væn að leyfa mér að
trufla þau augnablik.
Málfnður Kristjánsdóttir eöa Maddý er 18 ára
gömul og hefúr verið atvinnulaus í fimm mánuði.
Ólafúr Bjami Tómasson er 21 árs og hefúr veriö
atvinnulaus meira og minna í 8 - 9 mánuði.
Ólaf langar aö vinnna viö tölvur
Þau höfðu bæði sótt um að komast á
námskeiöið áöur, en ekki komist inn fyrr en
nú. Eftir eina viku á námskeiðinu virtist þeim
líka mjög vel, fannst þetta mjög spennandi
og voru bæði sammála um að námskeiðið
væri mun betra en þau höfðu átt von á. Þau
sögöust hafa verið mjög stressuð fyrst en
voru fljót að yfirstíga það. Það hafi verið sér-
staklega gott fyrir hópinn og þjappað honum
saman aö fara í einnar nætur ferö á Úfljóts-
vatn. En það var engin spurning hjá þeim
hvað stæði upp úr eftir þessa einu viku.
Það var tjáning með Eddu Björgvinsdóttur
en það sögðu þau aö hefði verið bæði
mjög lærdómsrík og skemmtileg upplifun.
Þegar ég spurði um ókosti varfátt um svör.
Það var þá helst að sumir fyrirlestrarnir
væru of langir og stundum þreytandi.
Og hvað hafa þau áhuga á að gera að
námskeiðinu loknu?
Ólafur var alveg ákveðinn í að það væri
vinna sem tengdist tölvum og gæfi honum
kost á að auka þekkingu sína á því sviði.
Maddý nefndi Mótorsmiðjuna, eða að
komast í vinnu í félagsmiðstöð en hún var
hrædd um að hún væri of ung til þess. Ég er
hins vegar viss um að hún þurfi ekki aö ör-
vænta því að atvinnufulltrúar Hins Hússins
munu sjá til þess að hún fái starf sem sam-
rýmist áhugasviði hennar. Um leið og ég
þakka þeim fyrir spjallið óska ég þeim góðs
gengis. Ég geng bjartsýn út úr Hinu Húsinu
vitandi um þá góðu hluti sem eru að gerast
í atvinnumálum ungs fólks í dag.
Maddý hefur áhuga á Mótorsmiðjunni
eða aö vinna í félagsmiðstöð