Vera


Vera - 01.02.1997, Qupperneq 49

Vera - 01.02.1997, Qupperneq 49
b k u r Með fortíðina í farteskinu Elín Pálmadóttir Vaka Helgafell 1996 Hún er að koma af ættarmóti. Glæsileg, auðug kona, nokkuð við aldur, þó ekki gömul, a.m.k. ekki aðytri sýn. Hún hefurbúið mestan hluta ævi sinnarí annarri heimsálfu, Ameríku, hermannsbrúöur. Ferðin til íslands á ættarmót var hvorki farin af áhuga, forvitni né þrá eftir einu eða neinu. Hún bara fór af því það hentaði henni eins og á stóð og hún hafði efni á því. Og hér er hún nú í „gamla landinu", altekin áhuga, undrun og óseöjandi forvitni um formæður sínar. „Þessar þrjár konur sækja á hana ... það kemur henni á óvart. Eiga þær svo sem nokkuð sameiginlegt, þrestmaddaman, vinnukonan, tökubarnið frá síðustu öld og hún sjálf, heimskonan með peningana ..." (bls. 20). Erindið um formæðurnar var gott en ekki fullnægjandi. Og þar með hefst sagan og leitin. Leitin að samsvörun, kjarnanum í eiginleikum þessara kvenna. Allra kvenna. Sjálfrar sín. Hún rifjar uþp nýlesinn kafla úr ævisögu Margaretar Duras þar sem hún segir eitthvað á þá leið „að það sem gerir konur svo fullkomlega samábyrgar sé þessi sérstæði hæfileiki þeirra að fylla út í rými heimilisins, ástarinnar, barnanna, tilverunnar og rás tímans. Þessi hæfileiki til að stilla saman strengi, taka viö öllu því sem gegnum lífið streymir og gefa aftur frá sér. Að ná sambandi við náttúruna, árstíðirnar, skepnurnar og fólkið. Þessi dularfulli háttur þeirra að leggja orðalaust undir sig umhverfið á meðan þær gera heimilisverkin I stað þess að leggia bara leið sína um það ... Getur það hugsast að þetta sé sameiginlegt með öllum konum úr ólíku umhverfi frá ólíkum ttmum. Ætli eitthvaö sé til í því hjá Duras að þetta sé nánast algilt um allar konur." (bls. 21-22) Hún heitir Unní og er kaldhæðin og lífsleið en þó týrst og fremst einmana. Sögur formæðranna vekja hana til lífs og athafna, en þó framar öðru til íhugunar um stöðu þeirra, annir og afrek, aðstöðu og afstöðu í samanburöi við eigið líf, m.ö.o. líf nútímakonu, innihald þess eða innihaldsleysi. Um lífsfyllinguna. Unní er ekki beinlínis aðalpersóna en hún er mikilvægurtengiliður milli formæðranna og nútímans. Hún er sköpunarverk höfundar, sögumaður og málpípa hans. Hún er þó ekki síður áhugaverð en formæðumar, enda handhafi arfsins, erfðaeiginleikanna (genanna), sem skipta sköpum og hafa jafnvel meira gildi en reynsla genginna kynslóða, þótt margt megi af þeim læra. Um leið og Unní segir sögu formæðranna kynnumst við aldarfari, þjóðháttum og starfsháttum þjóðar sem bjó við hörð kjör. Við kynnumst því hversu margþættu hlutverki konurnar gegndu í harðri lífsbaráttu. Hvernig þær upplifðu sælu og brugðust við sorg. Hvernig þær börðust og störfuðu í þágu lífs. Hvernig þær hlutu að launum lífsfýllingu ofar og fjarri auði og allsnægtum. En þótt Unní segi sögu, dragi ályktanir og láti í Ijós skoðanir, er höfundurinn samt einn að verki. Það er höfundurinn sem tjallar með sínum hætti um viðkvæmustu og fínlegustu þættina I lífi persónanna. Sem dæmi má nefna ævintýri Unníar í París sem endar með flótta til íslands (bls. 108) og ævintýri Sigurveigar vinnukonu I heyhlöðunni, sem einnig endar með flótta (bls. 98). Þar er fordómalaust fjallað um hvatir og kenndir, raunsætt en ekki laust við rómantík. En það eru ekki bara atburðir fortíðarinnar, harmsaga eða hetjusaga formæðranna, sem leita á huga Unníar. Hún veltir líka fyrir sér hvernig ungu konurnar sem hún hittir á ættarmótinu muni takast á við tilveruna á nýjum tíma T gjörbreyttum heimi. Hvernig? Koma þær til með að sanna, á sama hátt og formæðurnar, samábyrgð kvenna og hinn sérstæða hæfileika þeirra hvar í stétt sem þær standa, „að stilla saman strengi, taka við, öllu því sem gegnum lífið streymir og gefa aftur ... aö legga orðalaust undir sig umhverfið ... í staö þess að leggja bara leiö sína um það ..." eins og Margaret Duras kemst að orði. Meö hvaða hætti öðlast þær lífsfyllingu? Koma þærtil með að starfa í þágu Itfs að sínu leyti, eins og formæðurnar geröu þrátt fýrir frumstæð skilyrði og hörð kjör? Unní sýnist „íslensku konurnar hafa öll skilyrði til að verða í forystu fyrir lífsskipan í heiminum." Kjósa þær það? Bók Elínar Pálmadóttur, Með fortíðina í farteskinu, er á mörkum hreinnar sagnfræði og skáldsögu. Sögu Unníar, sem er skáldskapur, og ívafið sem höfundur fellir mjög vel að staðreyndum, uppistöðunni, sem er saga formæðranna. í fáum oröum sagt: Þetta er forvitnileg, fróðleg og síðast en ekki síst falleg bók. Rannveig Löve, lesandi Ekta franskt bakkelsi Baguettes - Smábrauð - Horn - Snúðar með rúsínum og kremi - Smjörbrauð með súkkulaði - Kökur - Smjördeig með fyllingu lceland Frozen Food PLC Grænmetisréttir - Kjúklingabökur - Pizzur - Ostakökur - ís Tilbúnir réttir fyrir einn, eða fleiri. Tilvalið í sauma- eða spilaklúbbinn. Vegna 2ja ára afmælis okkar verður heildsöluverð á öllum tertum, smjördeigi með fyllingu og bökum dagana 1.-15. mars 1997. GERIÐ GÓÐ KAUP FYRIR FERMINGARNAR. 3 LA BAGUETTE FRYSTIVÖRUVERSLUN GLÆSIBÆ • SlMI S88-27S9 OPIÐ: 12:00 tiu 18:00 mánudaga-fimmtudaga 12:00 TIL 19:00 FÖSTUDAGA • 10:00 TIL 14:00 LAUGARDAGA

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.