Vera - 01.06.1999, Blaðsíða 6
jMwj
í r,C.
i .
Guðrún Agnarsdóttir afhendir Erlu Huldu Halldórsdóttur, framkvæmdastýru
Kvennasögusafnsins, gögn þingflokks Kvennalistans.
fWk
Kvennalisti á tímamótum
Með aðild Kvennalistans að framboði
Samfylkingarinnar til Alþingis lauk
sögu sjálfstæðs þingflokks Kvennalist-
ans, sem fyrst varð til eftir þingkosningar 1983.
Sú ákvörðun var tekin að afhenda Kvennasögu-
safni íslands öll skjöl og gögn þingflokksins og
var kvennalistakonum boðið að vera viðstaddar
þegar afhendingin fór fram í Þjóðarbókhlöðunni
31. maí sl. Við það tækifæri flutti Guðrún Agnars-
dóttir fyrrverandi þingkona ávarp. Ávarp Guðrún-
ar fer hér á eftir, einnig bað VERA þingkonurnar
sem síðast sátu á þingi fyrir Kvennalistann, þær
Kristínu Ástgeirsdóttur, Kristínu Halldórsdóttur og
Guðnýju Guðbjörnsdóttur, að líta til baka og fram
á við á þessum tímamótum.
Kvennalistinn er enn til sem stjórnmálahreyfing.
Konur sitja sem fulltrúar hans í sveitarstjórnum
víða um land og tvær kvennalistakonur sitja á Al-
þingi, þær Guðrún Ögmundsdóttir og Þórunn
Sveinbjarnardóttir. Markmið þau sem Samtök um
kvennalista voru stofnuð til að vinna að eru enn
brýn. Það eru því enn næg verkefni fyrir konur að
vinna að, vilji þær leggja baráttunni lið innan vé-
banda hreyfingarinnar.
Á
6
j