Vera - 01.06.1999, Page 7
Ræða Guðrúnar Agnarsdóttur við afhend-
ingu gagna Þingflokks Kvennalistans til
Kvennasögusafnsins
Kvennalistinn
veitti okkur trúna
á okkur sjálfar og
hver aðra
Ágætu fundargestir!
Við erum komin hér saman til að afhenda
gögn, sýnileg, áþreifanleg merki um
virkni og afköst Kvennalistans. Reyndar
hafði ég ekki gert mér í hugarlund að Kvenna-
listinn væri svona í laginu eins og hann birtist
okkur nú, hvítur og ferkantaður og í mörgum
kössum.
Að baki þessum gögnum búa sterkar og ríkar
minningar um gleði og angist, ávinning og
háska, blóð, svita og tár. En fyrst og fremst eru
þessi gögn vitnisburður um merkilegt ævintýri,
um það hvernig þráin eftir betra lífi færir saman
fólk og gerir því kleift að lyfta Grettistaki og
breyta hugsun samferðamanna sinna. Þær voru
ekki margar konurnar sem ákváðu að láta til
skarar skríða og halda fund sem tendraði eld og
snerti strengi í brjóstum þeirra sem voru reiðu-
búnar að heyra, þvi að þeirra tími var löngu
kominn. Þannig varð Kvennalistinn til, af brýnni
þörf því að samstillt löngun svo margra kvenna
um frelsi til að þora, vilja og geta varð að elfur
29 konur settust á þing
fyrir Kvennalistann
Alls voru 12 konur kjörnar á þing fyrir Kvennalistann í fernum alþingiskosningum, á
árunum 1983 til 1995. Hér eru nöfn þeirra talin upp, svo og varaþingkvennanna sem
leystu þær af í lengri eða skemmri tíma. Alls tóku 29 konur sæti á þingi í nafni Kvenna-
listans en nokkrar hafa bæði verið varaþingkonur og kjörnar þingkonur. Tvær konur
komu inn vegna útskiptareglu Kvennalistans - Anna Ól. Björnsson þegar hún tók við
af Kristínu Halldórsdóttur 1989 og Guðrún J. Halldórsdóttir þegar hún tók við af Guð-
rúnu Agnarsdóttur 1990. Guðrún tók einnig sæti Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur þeg-
ar hún varð borgarstjóri í Reykjavík 1994.
Þingkonur Guðrún J. Halldórsdóttir 1986, 1988, 1992, 1993, 1994
Reykjavík Sigríður Lillý Baldursdóttir 1988, 1989,
Guðrún Agnarsdóttir 1983-1990 1990
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir 1983-1987 Sigrún Helgadóttir 1989, 1991
Kristín Einarsdóttir 1987-1995 Guðný Guðbjörnsdóttir 1991, 1992, 1994,
Þórhildur Þorleifsdóttir 1987-1991 1995
Guðrún J. Halldórsdóttir 1990-1991 og Þórhildur Þorleifsdóttir 1993
1994-1995 Þórunn Sveinbjarnardóttir 1996
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 1991-1994 ,
Kristín Ástgeirsdóttir 1991-1999 Reykjanes
Guðný Guðbjörnsdóttir 1995-1999 Sigríður Þorvaldsdóttir 1985 Anna Ólafsdóttir Björnsson 1988
Reykjanes Sigrún Jónsdóttir 1990
Kristin Halldórsdóttir 1983-1989 og 1995- Kristín Sigurðardóttir 1991,1994
1999 Ragnhildur Eggertsdóttir 1992
Anna Ólafsdóttir Björnsson 1989-1995 Vesturland Bryndís Guðmundsdóttir 1996,1998 Birna Sigurjónsdóttir 1997,1998
Danfríður Skarphéðinsdóttir 1987-1991 Vesturland Ingibjörg Daníelsdóttir 1988
Vestfirðir Birna Kr. Lárusdóttir 1989
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir 1991-1995 Snjólaug Guðmundsdóttir 1990
Norðurland vestra Vestfirðir
Málmfríður Sigurðardóttir 1987-1991 Ágústa Gísladóttir 1992, 1994 Björk Jóhannsdóttir 1994
Varaþingkonur Reykjavík Kristín Ástgeirsdóttir 1984, 1985 María Jóhanna Lárusdóttir 1986 Norðurland eystra Jóhanna Þorsteinsdóttir 1989
7