Vera - 01.06.1999, Page 11
sé sífellt að endurtaka sig. Þegar konur gleyma sögu sinni þá er
hætta á ferðum. Ég held að ég geti fullyrt að kvennalistakonur hafi
lengst af verið áhugasamar um sögu kvenna og verið Ijóst hve mikil-
væg söguleg vitund er. Því fannst mér dæmigert fyrir þá stöðu sem
upp var komin, að á hinum örlagaríka landsfundi 1997 var farið að
hæðast að því að vitnað væri til sögunnar og þar með var gert lítið úr
einni af grundvallarhugmyndum kvennabaráttunnar.
Samstaban rofnaði
Önnur hugmynd sem mér finnst skipta máli í skilningi á örlögum
Kvennalistans er kvennasamstaðan. Það hefur verið grundvallarhug-
mynd feminista hvar sem þeir standa að konur sem heild hafi lakari
félagslega stöðu en karlar. Konur eiga enn við að stríða það sem við
höfum einu orði kallað kvenfyrirlitningu, hvort sem þær gegna stöð-
um ráðherra eða vinna við færiband í frystihúsi. Því þurfa konur að
standa saman og styðja baráttu hver annarrar svo lengi sem hún
gengur ekki þvert á skoðanir okkar og hugsjónir. Samstaða var eitt
helsta einkenni Kvennalistans framan af og skapaði honum sterka
ímynd. Hún rofnaði í deilunum um EES málið 1992-93 og aðildina
að R-listanum. Hvort tveggja snérist í grundvallaratriðum um hags-
muni kvenna, hugsjónir og stefnu Kvennalistans. Eftir þær deilur
var fjandinn laus.
Þriðja hugmyndin sem einkenndi kvennahreyfingar var sú að
breyta ríkjandi vinnubrögðum og stjórnun til þess að skapa raun-
verulegt lýðræði. Það var gert með því að reyna að sjá til þess að
allar raddir fengju að hljóma, komist yrði að sameiginlegri niður-
stöðu, sjálfskipuðum foringjum var hafnað og unnið gegn hvers
kyns píramídaskipulagi. Þessar hugmyndir einkenndu Rauðsokka-
Góð útivistarsvæði
Stórar svalir á móti suðri
Gottútsýni
40 ára reynsla viö húsbyggingar
Einnig höfum við fleiri gerðir af
3ja og 4ra herbergja íbúðum til sölu
Byggingar- og söluaðili
Örn ísebarn • Sími 896 1606
Víkurhverfl tengist meö gönguleiöum fallegri vogskorinni strönd, þar
sem lífriki er auöugt. ímesta nágrenni er og verður leikskóli, grunnskóli,
fjölbrautaskóli, sundlaug, golfvöllur og verslunarmiðstöð.
3ja herbergja
98 fm íbúðir
4ra herbergja
125 fm íbúðir
11