Vera - 01.06.1999, Side 15
eftir Guðnýju Guðbjörnsdóttur
Kvennabarátta á tímamótum
Fjórða kjörtímabilinu sem íslenskar konur
hafa boðið fram sérstakan kvennalista til Al-
þingis og því síðasta að sinni er lokið. Þing-
flokkur Kvennalistans hefur afrekað það að vera
til í samfelld sextán ár, lengst allra fyrir utan fjór-
flokkinn svokallaða. Með tilurð Samfylkingar Al-
þýðubandalags, Alþýðuflokks og Kvennalista í
nýafstöðnum kosningum varð uppstokkun á
flokkakerfinu, sem of snemmt er að meta á þess-
ari stundu. Kvennalistinn lifir áfram sem stjórn-
málaafl með aðild að þingflokki Samfylkingarinn-
ar, þó að sjálfstæður þingflokkur Kvennalistans
heyri nú sögunni til. Gögnum hans var skilað til
Kvennasögusafnsins í Þjóðarbókhlöðunni þann
31. maí s.l. Við þessi tímamót er mér Ijúft og skylt
að verða við tilmælum Veru og láta í Ijós álit mitt
á stöðu kvennabaráttunnar við aldahvörf.
Staöan nú
Við ofannefnda athöfn í Kvennasögusafninu lýsti Guðrún Agnars-
dóttir Kvennalistanum sem undarlegu tæki eða töfrateppi sem hefði
fleytt mörgum konum og þeirra röddum inn á Alþingi og á hin ýmsu
svið þjóðmála. Vissulega er þetta ein leið til að líta á málin. Á sama
hátt má segja að átökin innan Kvennalistans á þessu kjörtímabili hafi
snúist um það hvernig beri að bregðast við þegar töfrar teppisins eru
hættir að virka.
Það var niðurstaða mín og meirihluta kvennalistakvenna að við nú-
verandi aðstæður væri hugsjónum kvenfrelsis- og jafnréttisbarátt-
unnar best borgið með öflugri samfylkingu félagshyggjuaflanna í
landinu. Við lögðum því mikla vinnu í að Samfylkingin yrði að veru-
leika. Það er sannfæring mín að þátttaka Kvennalistans hafi verið líf-
æð Samfylkingarinnar, þó ætla mætti af fjölmiðlum að við værum í
hlutverki dragbítsins. Því miður náði Samfylkingin ekki því flugi sem
vonir stóðu til í nýafstöðnum kosningum, enda spáðu því margir að
það tæki lengri tíma að öðlast traust þjóðarinnar. Skýringarnar eru
margar sem ekki verða ræddar hér. Staðan er nú sú að þingkonum
hefur fjölgað í 22 og eru nú 35% þingmanna. Tvær kvennalistakon-
ur hafa hlotið kjör til Alþingis næsta kjörtímabil. Formlega eru þær
þingmenn Samfylkingarinnar, en í honum eru níu konur af sautján
þingmönnum eða 53%.
Enginn þingflokkur nálgast kynjahlutfall Samfylkingarinnar og
jafnréttismálin skipa öruggan sess í stefnu hennar. ísland er nú í hópi
þeirra landa þar sem fjöldi þingkvenna er kominn yfir 30% markið,
ásamt Norðurlöndunum og Hollandi. Á heimsvísu eru konur aðeins
15