Vera - 01.06.1999, Side 29

Vera - 01.06.1999, Side 29
Og hvað svo? „Þarna fór að venja komur sínar til mín andlega fötluð telpa. Hún undi sér hjá mér, snerist kringum mig í vinnunni, talaði um sín barnslegu áhugamál og spurði um allt milli himins og jarðar. Mér fannst hún alls ekki erfið, heldur óvenjuleg og á- hugaverð. Fötluð börn og unglingar höfða á einhvern hátt til mín. Nú er þessi stúlka búin að vera heimagangur hjá mér í mörg ár. Svo varð það úr að ég tók (fæði og húsnæði tvær fatlaðar stúlkur, annars staðar frá, sem komu hingað í sér- deild Fjölbrautaskólans. Önnur bjó við huglæga fötlun, hin líkamlega." Ekki stendur þú straum af þessu öllu sjálf? „Nei, nei, ekki nú orðið. Fjölskyldur stúlknanna styðja þær og svo fæ ég dálítinn styrk frá félagsmálastofnun. En það er ekki kjarni málsins. Ég lít ekki á þetta sem vinnu, ég geri þetta af þvi mig langar til þess. Áður hugsaði ég stundum um það að forsjóninni væri óhætt að gefa mér fatlað barn, ég heföi ekki litið á það sem neitt ólán. Margir telja hins vegar mæðu að eiga slíkt barn, þó þeim sé ætlað það, einhverra hluta vegna.“ Þannig að stelpurnar hafa gefið þér mikið? „Já, sannarlega. Ég vildi heldur búa með þeim en mörgum sem eiga að heita heilbrigðir. Fólk er stundum að spauga með það við mig hvort ég vilji ekki ná mér í mann, en þetta er miklu skemmtilegra," segir Sigríður með geislandi brosi sem tekur af allan vafa um hvort henni sé alvara. „Þær eru reglulega indælar, stelpurnar mínar. Það er svo gaman að fylgjast með þeim taka 'framförum, sjá þær komast að tak- marki sem þær hafa barist við að ná árum saman. Nú er stúlkan sem kom fyrst til mín orðin nokkurn veginn læs. Eng- inn trúði því víst að það gæti orðið. En hvað getur ekki gerst? Um að gera að vera bjartsýn," segir Sigríður glaðbeitt. „Næstum allir geta verið virkir á einhvern hátt.' Og veistu hvað mig langar að gera þegar ég verð gömul - sko eidri? Að búa félagsbúi með svona fjórum - fimm öðrum einstaklingum á sama aldri. Ég er viss um að þetta yrði bæði ódýrara og skemmtilegra en þegar fólk býr eitt eða þá á stóru elliheimili. Að minnsta kosti á meðan fólkið væri sæmilega heilsugott. Og þó einn væri kannski eitthvað slappur, gætu hinir þá að- stoðað með að kauþa inn og slíkt. Já, ennþá er þatta bara hugmynd - en hver veit? Og ég ætla mér ekkert einkaleyfi á henni, það væri gaman ef einhverjir ellilífeyrisþegar stofnuðu svona félagsbú." Svo ertu í sálarrannsóknafélaginu. „Já.“ Sigríður er ekki mjög fljót til svars, aldrei slíku vant. „En mér finnst að ég sé þar fyrst og fremst sem leitandi. Við vit- um svo lítið. Maður veit, eða telur sig vita, að það er eitthvað meira en þetta líf - eða hvað? Ég tek enga kenningu fram yfir aðra. Þetta verður bara allt að koma í Ijós á sínum tíma - og það er líka alveg bráðspennandi." Nú er brosið aftur komið til skila á andlit Sigríðar, eins og hún sé að tala um hrífandi leiksýningu. Það er ekki hægt að komast hjá að brosa með henni. Ykkur kemur bara ágætlega saman, þér og tilverunni? Yfirleitt gerir okkur það, já. Að minnsta kosti nú á seinni árum hefur lífið brosað við mér. Ég hef verið heppin með börnin mín og getað unnið við mín áhugamál. Maður verður að vera sáttur við tilveruna, annars væru allir hlutir svo hundleiðinleg- ir.“ Og enn einn glaðvær hlátur heyrist í gamla, fallega húsinu við Bakkatúnið. (fjullkistan Sérverslun með kvensilfur Bjóðiun eldri munsturgerðir Onnumst allar viðgerðir, hreinsun og gyllingar. Allar upplýsingar um hefð og gerðir búninga eru veittar á staðnum. 0jullki$tan Frakkastíg 10 - Sími: 551 3160 LIFANDI FORTÍÐ Gömul hús, handverksfólk og skepnur í haga. Okeypis aðgangur fyrir ellilífeyrisþega og börn að 18 ára aldri. 29

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.