Vera - 01.06.1999, Qupperneq 31

Vera - 01.06.1999, Qupperneq 31
Stína staka á fyrsta ári. Heima í Kópavogi um jól 1953, f.v. tvíburarnir Pétur og Svanfríður (sitjandi), Kristín og tvíburarnir Lárus og Hjörtur. Frá fyrstu árunum í kvenna- hreyfingunni. Kristín var ein af stofnendum Kvennaat- hvarfsins 1982 og Kvenna- listans 1983. fæddist á milli þeirra og var því oft kölluð Stína staka. Eldri tvíburarnir eru tveimur og hálfu ári eldri en ég og heita Svanfríður og Pétur. Svanfríður vinnur hjá sýslumanni í Kópavogi en Pétur er alþingismaður. Yngri tvíburarnir eru fjórum árum yngri en ég og heita Hjörtur og Lárus. Hjörtur er yfirmaður auglýsinga- og almannatengsla hjá fyrirtæki í Kaupmannahöfn og Lárus er grafískur hönnuður og sálfræðingur. Það er ekki nóg með að systkini mín fjögur séu tvíburar, heldur eiga þau afmæli með tveggja daga millibili, 22. og 24. júní. Ég var líka öðruvísi en þau að því leyti þar sem ég er fædd í desember. En ég náði næstum að verða tví- buri þegar ég gifti mig! Maðurinn minn er nefnilega fæddur 7. desember 1946 en ég tveimur dögum síðar, eða 9. desember 1946.“ Foreldrar Kristínar skildu þegar hún var 6 ára og börnin ólust upp hjá móður sinni í Kópavoginum. Faðir þeirra dó þegar Kristín var 17 ára. Þegar Kristín er spurð hvernig mamma hennar hafi farið að því að fram- fleyta þeim segir hún: „Það er eiginlega mjög óljóst en hún vann úti og laun hennar dugðu fyrir því nauðsynlegasta. Mamma vann lengi í Sparisjóði Kópavogs, síðan á Vísi og í mjólkurbúð í Kópavogi. Fyrir okkur var hún eins og klettur og stóð sig frábær- lega í þessum aðstæðum. Við systkinin byrj- uðum að afla tekna eins fljótt og við gátum og reyndum að sjá sem mest fyrir okkur sjálf. Mamma kom úr mjög góðum aðstæðum og var vel sett, miðað við margar konur. Hún V I Ð SYSTKININ ERUM FIMM, TVENNIR TVÍBURAR 0 G ÉG, SEM FÆDDIST Á MILLI ÞEIRRA OG VAR Þ V í OFT KÖLLUÐ S T í N A STAKA. var verslunarskólagengin, kunni tungumál og hafði verið á skóla ( Englandi. Á æsku- heimili hennar voru vinnukonur og hún mátti ekki einu sinni vaska upp. Faðir hennar hét Pétur Þ.J. Gunnarsson, mikill athafnamaður og einhvern tíma einn hæsti skattgreiðandi í Reykjavík en tapaði síðan öllu. Móðir henn- ar hét Svanfríður Hjartardóttir. Hún var lengi formaður Thorvaldsenfélagsins og vann í verslun þeirra fram yfir áttrætt. Afi og amma skildu og ég man ekkert eftir honum. Þótt þau væru vel efnuð var það ákvörðun þeirra að eignast ekki húsnæði. Síðustu árin bjó amma í leiguíbúð í Tjarnargötu 10c og ég man eftir fínum veislum hjá henni, m.a. þar sem konur voru að spila bridds. Hún var mikil hannyrðakona og ég gæti trúað að hún hefði orðið arkitekt ef hún hefði fæðst seinna. Hún teiknaði t.d. sjálf ákaflega falleg borðstofuhúsgögn og lét sérsmíða fyrir sig. Við áttum líka afa og ömmu á Siglufirði og ég dvaldist hjá þeim eitt sumar þegar ég var sex ára. Þau voru okkur ákaflega góð, þótt langt væri á milli okkar, og sendu okkur veg- legar jólagjafir." Þegar Kristín var búin með 2. bekk gagn- fræðaskóla í Kópavogi fór hún í Hagaskóla og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Hún ferðað- ist með strætó og eignaðist ágætar vinkon- ur í Vesturbænum. Sumarið eftir að hún lauk L 31

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.