Vera - 01.06.1999, Blaðsíða 38
Jóhanna A.H. Jóhannsdóttir
Búferlaflutningur fólks af lands-
byggðinni virðist fara stöðugt
vaxandi en síðasta áratug fjölg-
aði íbúum á höfuðborgarsvæð-
inu um 26.000 manns á meðan
brottfluttir umfram aðflutta
voru 12.600 á landsbyggðinni.
Tölur segja að mun fleiri konur
en karlar séu í hópi þeirra sem
flytja á höfuðborgarsvæðið og
það sama hefur gerst í öðrum
löndum.
í könnun sem þróunarsvið
Byggðastofnunar lét gera kom
fram að atvinna, húsnæðiSmál,
menntunarmöguleikar og ýmsir
hlutir sem tengjast fjölskyldu,
vinum og almennum lífsgæðum
séu sagðar ástæður flutning-
anna. Vera ræddi við fjórar kon-
ur sem hafa nýlega flutt utan af
landi um þessi umskipti og á-
stæður flutninganna.
Mæðgurnar Elín og Berglind fluttu frá Suðureyri til Reykjavíkur
Fæstir vita hvar
Suður®pi
er á landinu
Elín Bergsdóttir er fædd og uppalin í
Þingholtunum í Reykjavík. Hún fór
vestur á Súgandafjörð til að vinna í
fiski árið 1975, þá 21 árs. Á balli 16.
júni sama ár kynntist hún Sveinbirni
Jónssyni sem fæddur er og uppalinn f
Súgandafirði. Þau bjuggu á Súganda-
firði í eitt ár, fóru síðan í langt og mik-
ið ferðalag til Mið-Austurlanda. Vetur-
inn 1977-78 bjuggu þau í Reykjavík
en fluttu aftur vestur það ár þegar
elsta dóttirin af þremur var þriggja
mánaða. Á Súgandafirði bjuggu þau
samfleytt í 20 ár, ólu upp dætur sínar
og unnu við eigið fyrirtæki um tíma.
Sumarið 1998 flutti öll fjölskyldan til
Reykjavíkur á ný. Vera hitti Elínu og
miðdótturina, Berglindi, á heimili
þeirra í Reykjavík.
Berglind vinnur í verslun í sumar en í
haust fer hún á þriðja ár í MH. Svein-
björn er fyrir vestan í sumar að fiska á
sínum báti. Elsta dóttirin, Jóna'Lára, er að
vinna fyrir vestan með sínum kærasta og
hefur hugsað sér að fara í nám í iðjuþjálfun í
Háskólanum á Akureyri þegar haustar. Björg
er yngst og lauk fyrsta ári í MH í vor en vinn-
38