Vera - 01.06.1999, Síða 50
staðsett, hvort allt gengur eðlilega eða ekki
og tekur ákvörðun um það hvort barnið sé
tækt í samfélagið eða ekki. Ef allt gengur vel
hreinsar hún barnið svo að því verði vel tek-
ið af samfélaginu. Ef eitthvað virðist óeðli-
legt kallar hún á spámann til að fá meiri vit-
neskju um barnið, því að stundum er hætta
á að illur andi sé holdtekinn í því.
Sjö dögum eftir fæðingu fer móðirin í
fyrsta sinn út opinþerlega. Af því tilefni er
haldinn stór málsverður og höfuð barnsins
rakað svo að það losni úr greipum dauðans.
Seinna er barnið skírt og gefið nafn sem
segir hvar í bræðra- eða systraröðinni það
er. Því er einnig gefið nafn forföður; anda
sem hefur verið tilkallaður; vikudagsins
þegar það fæddist eða staðarins (stepp-
unnar, markaðarins, vegarins, o.s.frv.).
Er faðirinn viðstaddur fæðingu barns síns?
„Þegar kona gerir sér Ijóst að hún á von á
sínu fyrsta barni, fer hún aftur heim til for-
eldra sinna og býr þar þangað til barnið
byrjar að ganga og hættir á brjósti, þ.e.a.s.
um 1 til 2 ár. Síðan fer hún aftur heim til
mannsins síns. Þegar hún verður aftur ó-
frísk, og við hverja barnsfæðingu eftir það,
býr hún einsömul í kofa jafnlengi og áður,
þ.e. þar til barnið er hætt á brjósti og byrjað
að ganga. Þessi aldagamli siður er ein á-
stæðan fyrir fjölkvæni og framhjáhaldi sem
er álitið eðlilegt. Menn viðurkenna öll börn
sem konur þeirra fæða, jafnvel þótt börnin
séu ekki alltaf þeirra börn. Konur eignast
mörg börn! Getnaðarvarnir eru mjög lítið
notaðar í Benín og þær eru andstæðar alda-
gömlum siðvenjum Baríþa sem gera ráð fyr-
ir að líf sé heilagt. Aftur á móti er barnadauði
enn svo hár að mörg börn ná aldrei fullorð-
insaldri.
Maríne segir tvær helstu orsakir barna-
dauða vera malaríu og niðurgang (iðra-
kreppu), en einnig eru ýmsar aðrar hitasótt-
ir. „Það eru til lyf en fólki dettur ekki alltaf í
hug að fara til læknis og lyf eru venjulega
framleidd i Frakklandi og seld á svo háu
verði að fátækt fólk getur ekki keypt þau. í
Sekogúrú, þar sem fólk hefur ekki enn til-
einkað sér mjög vestræna háttu, fer fólk oft
til grasalæknis. Lyfin hans geta gert sitt
gagn en hafa stundum takmörkuð áhrif. Fyr-
ir þau er borgað til dæmis með hænu. Það
er líka grasalæknirinn sem býr til verndar-
gripi (þ.e. litlar skjóður úr leðri sem innihalda
grös, vers úr kóraninum o.fl.) sem hanga alls
staðar á börnum. Þeir eiga að vernda þau
og bera þeim gæfu.
Flafa verður í huga að í Benín, sem annars
staðar í Afríku, er litlu eytt til að lækna fólk
en miklu til að jarða það því að lífið er ekki
nema örskotsstund, eins og ég sagði áðan.
Síðan er heiður fjölskyldunnar í húfi og hún
leggur áherslu á að hafa fallega athöfn til að
sýna að hún kann að jarða sitt fólk. Dauðir
eru jafn mikilvægir og lifandi. Forfeður eru í
stöðugu sambandi við fólk við minnstu at-
burði daglegs lífs.“
Er fæðingu drengs fagnað meira en stúlku?
„Ég held ekki að gert sé upp á milli kynja.
Það er sagt að það sé heppni að eignast
stúlku fyrst, því að þær eru tákn frjósemi, þá
er haldið að móðirin muni eignast mörg
börn og allt gangi vel. En auðvitað vill fólk
eignast marga drengi því að þeir taka við
fjölskylduþorpinu og bera nafn föðurins."
Marine segir að bæði stúlkur og drengir
séu umskorin, eins og tíðkast í mörgum
kynflokkum Afríku. „Það gera gömlu Ijós-
mæðurnar. Umskurður drengja felst í því að
skera burt fremsta húðsepann á kynfærun-
um á aldrinum þriggja mánaða til tveggja
ára, og umskurður stúlkna að skera burt
snípinn þegar þær eru 5 ára. Þessar athafn-
ir eiga sér stað í desember og janúar,
þ.e.a.s. á þurrkatímanum, þá gróa sárin þet-
ur. Þessir siður geta sýnst hrottalegir en þeir
gegna mjög táknrænu hlutverki. Álitið er að
með þessari aðgerð verði drengir loks
drengir og stúlkur raunverulegar stúlkur.
Áður eru þörn ekki með raunverulegt kyn.“
Er umskurður enn leyfður af yfirvöldum eða
er hann bannaður eins og í Malí?
„Ég veit ekki hvort eru til lög sem banna
hann, en þar sem hann hneykslar vestur-
landabúa verður ríkisstjórnin að fordæma
hann, a.m.k. opinberlega, samt hefur hefðin
yfirhöndina. I öllum menningarfélögum eru
til helgir inntökusiðir sem eiga að skilja eftir
spor á líkamanum, (t.d. ör), en umskurður
kvenna hefur auðvitað tvöfalda þýðingu því
hann eyðir að hluta kynhvöt, hann er til að
bæla konur niður.
Þessi siður, sem og fleiri, er auðvitað sér-
staklega grimmur í augum vesturlandabúa.
Hann er það líka í augum margra Afríkubúa.
Þrátt fyrir það kenndi dvölin hjá Baríbafólki
mér að leggja ekki dóm á menningu ann-
arra. Sumir Afríkubúar gátu auðveldlega
sýnt mér fram á að aðgerðir vesturlanda-
búa, sérstaklega Frakka í þessum hluta Afr-
íku, hafa verið mikil hörmung fyrir Afríkubúa.
Það er umhugsunarvert."
<Ú)
OKU
^KOMNN
I MJODD
Þarabakka 3 109 Reykjavík.
Kennsla til allra ökuréttinda,
almennt ökupróf og bifhjólapróf.
Aukin ökuréttindi.
á leigubíl - hópferðabíl - vörubíl,
og vörubíl með tengivagn.
Kennsla hefst að loknu sumarleyfi þann 1 l.ágúst,
síöan byrjar nýtt námskeið á hverjum miðvikudegi.
Góð kennsluaðstaða, frábærir kennarar.
Fagmennska í fyrirrúmi, leitið upplýsinga.
Sími 567-0300
50