Vera - 01.06.1999, Blaðsíða 55

Vera - 01.06.1999, Blaðsíða 55
ingu Þjóðarflokksins hafði þessa skoðun á fæðingarorlofsgreiðslum: „Ef borga ætti konum fyrir að eignast börn myndu þær ekki gera neitt annað, eða hvað? Hvað þá ef karlar fengju orlof,“ sagði hún með ákveðni, viss um að hafa slegið mig út með þessum rökum, sem hún og gerði en bara á annan hátt en hún hélt. Efnahagslegt ósjálf- stæði kvenna gæti svo sem haft þessar afleiðingar, hugsaði ég en leiddi ósjálfrátt hugann líka til orða dálkahöfundarins Pamelu Hansen. Þegar biskup Möltu hafði lagt það til við ríkisstjórnina að greiða kon- um fyrir að sinna heimili og fjöl- skyldu spurði hún í góðlátlegri hæðni: Hvers vegna ætti einhver að borga konum fyrir að gera eitt- hvað sem þær hafa gert frítt hing- að til? K vennasamlök Kvennasamtök á Möltu eru mörg en sinna mest góðgerðarstarfsemi. 1 vetur fagnaði kvenréttindafélag Möltu hins vegar 35 ára afmæli sínu. i afmælishádegisverðinum, sem Jane Spiteri einn helsti stofn- andi félagsins bauð mér á, var margt um miðaldra konur. Þarna var ein þingkona mætt og aðrar kvenhetjur sem eru heiðursfélagar, ásamt óbreyttum meðlimum og eiginkonum ráðamanna landsins. Meðalaldurinn var 45 - 50 ár. Kvenréttindafélögin virðast alls staðar eins. Ríkjandi fyrirkomulagi á Möltu stafar engin ógn af þessu félagi sem annars hefur öðlast virðingarsess í samfélaginu og fær ha.m. heilsíðu í hverjum mánuði í víðlesnasta dagblaði landsins og áheyrn æðstu ráðamanna átaka- laust. Félagið hvetur aðallega til aögerða sem halda fjölskyldunum saman og biður stjórnvöld að huga að því. Á sama tíma og þær hvetja almennt til þess að konur láti meira á sér bera í þjóðmálum fögnuðu þær fyrrnefndri hugmynd biskups um greiðslur til húsmæðra. Félagið er fyrst og fremst í „mæðrapólitík" °9 meðlimir úr efri stéttum lands- 'ns. Bakgrunnur Jane Spiteri er þó undantekning en þessi mikla bar- attukona nýtur mikillar hylli og það ekki að ástæðulausu. Hún er goð- s°gn meðal kvenréttindakvenna °9 örugglega efniviður í tveggja binda ævisögu, væru bókaskrif á Iviöltu svipuð og á íslandi. Fyrir utan róttæk kvenréttindasamtök mennt- aðra kvenna á Möltu í byrjun 8. áratugarins - sem tókst að fá kaþólsku kirkjuna til að flokka undir verstu óvini barna og mæðra - þá er yngsta grasrótarhreyfingin Moviment Mara Maltija eða Konur Möltu. Hópurinn var stofnað- ur 1993 af nokkrum vel menntuðum, ungum konum sem vildu skjót úrræði fyrir þolendur heimilisofbeldis. Veronica Galea er einn stofn- anda hópsins og að hennar sögn var um að ræða formleg samtök. Áður en þau hins vegar lögðust til svefns, tæpum þremur árum seinna, tókst konunum að eiga stærstan þátt í að koma á fót neyðarsímalínu fyrir alla landsmenn. Fund- ir voru líka haldnir og heilsufarsleg málefni kvenna rædd, sérstaklega brjóstakrabbamein sem Veronica segir að hafi hæsta tíðni á Möltu meðal Evrópulanda. Þótt heimilisofbeldi væri helsta áhersluatriði hópsins voru líka gerðir út- varpsþættir þar sem fram fóru óformlegar við- horfskannanir um allt mögulegt. „Síðan misstu konur smátt og smátt áhugann eða þrekið," segir Veronica og bætir við: „Ég held að það sé úrslitaatriði að hafa þær konur með sem við erum að fjalla um. Við vorum nátt- úrulega bara konur sem höfðum það fínt og vor- um vel menntaðar, hinar tóku þátt fyrst en svo myndaðist gjá á milli þeirra vel lesnu og hinna, sem fóru þá bara og hættu að vera með.“ Samkvæmt Veronicu er feminismi bannorð á Möltu og hún spyr hvort þannig sé það líka á ís- landi, sem ég svara ósjálfrátt játandi. En ólíkt og á íslandi varð kvenforseti Möltu á sínum tíma lítil hvatning fyrir konur landsins. Konur utan kvennahreyfinga segja mér að hún hafi bara þótt Ijót, dónaleg (hafði heyrst blóta), óglæsileg og lítt kúltiveruð. Hún hafi verið gamaldags sósíalisti úr fáfróðri verkamannastétt og handbendi for- manns flokksins. Veronica er þessu ekki alveg sammála og segir að konur á Möltu séu sjálfar mjög íhaldssamar og breyti hlutunum ekki hratt. „Þær velja t.a.m. ekki þann kost að halda nafn- inu sínu við giftingu því þá bera þær annað eftir- nafn en börnin. Maltneskar konur líta gjarnan á sig sem fórnarlömb. Þeim finnst þær svo góðar og trúin, eða kirkjan, á mest í þeirri sjálfsímynd. Biblían gefur þó miklu fleiri valkosti fyrir konur ef að er gáð en kirkjan hefur samt ákveðið að halda bara ímynd Maríu meyjar að konunum," segir Veronica. | ÍLe Leikskólar Reykjavíkur Dagvist barna heitir nú Leikskólar Reykjavíkur Skrifstofa Leikskóla Reykjavíkur er til húsa í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík sími 563 5800 Tölvupóstur leikskolar@rvk.is Hinn 1. júní s.l. breyttist nafn Dagvistar barna í Leikskólar Reykjavíkur. Borgarráð Reykjavíkur hefur staðfest nýja samþykkt fyrir stjórn Dagvistar barna sem eftir breytingu heitir leikskólaráð Reykjavíkur. Leikskólaráð fer nú með málefni Leikskóla Reykjavíkur í umboði borgarráðs með vísan til laga um leikskóla frá árinu 1994. í lögunum kemur fram að fyrsta skólastigið í skólakerfinu heitir leikskóli og er fyrir börn undir skólaskyldualdri. Vakin er athygli á því að starfsemi stofnunarinnar helst óbreytt og munu Leikskólar Reykjavíkur áfram stuðla að uppbyggingu uppeldis og menntunar fyrir yngstu börnin og veita þeim og foreldrum þeirra fyrsta flokks þjónustu á faglegum grunni. 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.