Vera - 01.06.1999, Side 57

Vera - 01.06.1999, Side 57
búinn til þess að stökkva á fætur, hnykla til- komumikla brjóstvöðvana og vernda mjúku kvenveruna sem liggur honum að baki. Við lifum á barmi ævintýraheims. Afþrey- ingarmenningin eins og hún leggur sig, og upp að vissu marki hámenningin, viðhalda þeim kynhlutverkum sem mynduðust fyrir óralöngu. Ástarsögur nútímans, frá Ásút- gáfunni og Skjaldborg, eru aðeins framhald af ævintýrunum sem okkur var sagt í barn- æsku. Þær gefa upp ákveðna mynd af samskiptum kynjanna sem á sér enga stoð í raunveruleikanum eins og hann er í dag. Colette Dowling heldur áfram í bók sinni og segir: Ég hafði blekkt sjálfa mig, og alla aðra, í langan tíma með því að brynja mig fölsku sjálfstæði. Þetta var yfirborðsfram- koma, sem ég hafði lengi verið að þróa með mér til að fela (hina ógnvekjandi) innri ósk um að einhver tæki mig að sér. Þetta gerfi mitt var svo sannfærandi, að ég hefði getað lifað endalaust í blekkingunni. Blekkingin sem Dowling talar um er blekkingin sem haldið er að kynjunum af samfélaginu, af sögum, sjónvarpi, bíó- myndum, dagblöðum, almennri orðræðu og fréttamyndum frá valdasetri íslendinga, Al- þingi, þar sem aðeins fjórði hver haus er konuhaus. Blekkingin er ævintýrið, þar sem prinsinn á hvíta hestinum ríður þeysireið til að bjarga prinsessunni frá þursinum og tek- ur af henni öll völd. Prinsinn er ekki til í raunveruleikanum. Karlhetjan er nafnlausi prinsinn á hvíta hestinum, Ijóshærða villi- dýrið Fabio, James Bond, Superman, og Leonardo di Caprio. Karlhetjan er ekki raun- verulegur karlmaður. Ekki sé ég alveg 23 ára starfsmann Nóatúns (rauðhærða strák- inn með örin eftir unglingabólurnar, sem ég hitti núna um helgina á Kaffi Thomsen) fyrir mér í hlutverki Súpermans þegar hann lyftir Lois Lane af svölum hennar og flýgur með hana til norðurpólsins, en vissulega yrði allt svo auðvelt ef ég myndi fallast á þessa blekkingu og byrja að trúa á þetta af- skræmda samband kynjanna sem samfé- lagið reynir statt og stöðugt að halda að mér. Konur er líka menn Rauðsokkumar forðum reyndu að komast undan þessu ævintýri hefðarveldisins. Þær sögðu: Konur eru líka menn og geta sofið hjá hverjum sem er, í hvaða stellingu sem er, án þess að þurfa að fara í hlutverk prinsessunnar. Á blómatíma Rauðsokkanna hér á íslandi, um miðjan áttunda áratuginn, skrifar Þórdís Richardsdóttir Ijóðið Ævin- týramóral. FYRIR handan fjöllin sjö búa dvergarnir sjö bíða þín mjallhvít með sjö gráðuga munna sjöfaldar kvartanir NÝ GÓLF TILAÐ SKÚRA. ER EKKI BETRA AÐ LÁTA SKERA ÚR SÉR HJARTAÐ EN GRAFA SIG LIFANDI BÍÐANDI EFTIR EINHVERJUM KÓNGSSYNI SEM HEFUR LÍF ÞITT í HENDI SÉR UPPFRÁ ÞVÍ LIFA HAMÍNGJUSÖM UPPFRÁ ÞVÍ í GLERKISTU SOFANDI SVEFNI VANANS. REYNDU HELDUR REYNDU HELDUR REYNDU HELDUR VIÐ VEIÐIMANNINN. En hver er þessi veiðimaður sem Þórdís vill að við reynum við? Frelsumst við með því að dömpa dvergunum sjö og prinsinum sæla? í ævintýrinu sleppum við frá nöldri og kröfum dverganna sjö með því að bíða eftir prinsinum sem vekur okkur upp af dásvefni. En þessum svefni er þá aðeins skipt út fyrir annan enn skelfilegri, svefn vanans í ham- ingjusamri glerkistu hjónabandins. Þórdís finnur leið út úr þessari klípu sem hefðin setur okkur í. Reynum við veiðimanninn! Hún vill að við sleppum við niðurlægjandi heimilisstörf dverganna og að við sleppum við glerkistu hjónabandsins þar sem við til- heyrum prinsinum. Hún vill að við finnum frelsið með veiðimanninum. En veiðimaðurinn er einnig hluti af ævin- týrinu. Myndi veiðimaðurinn ekki hafa líf okkar jafnmikið í sínum höndum og prinsinn margumtalaði? Vill veiðimaðurinn ekki að við stoppum í sokka hans og nærbuxur al- veg eins og dvergarnir sjö? í rauninni er það sem Þórdís hvetur til ekki eins róttækt og það gæti verið. Hún hvetur okkur til nýs og róttæks frelsis til óhefts flæðis skógarins í fylgd með veiðimanninum, en þessi áeggjan um frelsi með veiðimanninum er þó einmitt það sem konur hafa verið að láta sig dreyma um alla þessa öld. Rauðhetta/Mjall- hvít/Öskubuska/Þyrnirós reyna við veiði- manninn og konur vesturlanda sem láta sig dreyma um Marlon Brando, The Rolling Stones, The Prodigy eða alla hina Bad Boys sem finnast í menningu okkar. Ef Þórdís vildi í raun losna undan hefðarveldinu í þessu Ijóði hefði það endað á, reyndu heldur, reyndu heldur, reyndu heldur við stjúp- mömmu. Nú er ég ekki komin yfir í radíkal lesbísk- an femínisma, heldur vil ég halda einu fram með þessari fullyrðingu. Sannleikurinn er nefnilega sá, að á vesturlöndum í dag getur konan aldrei verið fullkomlega frjáls í örmum karlmanns. Ég er ekki að segja að við finn- um aðeins hamingjuna í örmum annarra kvenna, heldur vil ég segja að samband kynjanna hefur verlð svo gegnsýrt af mis- rétti í gegnum tíðina, að í núverandi samfé- lagsgerð getur Mjallhvít ekki fundið fullkom- ið jafnrétti í örmum karlmanns. Ævintýrið er alltaf til staðar. Á baki sér mun hún ávallt bera árþúsunda hefð undirgefni gagnvart eiginmanni sínum. Að sama skapi vil ég ekki halda því fram að ævintýrum og ástarsögum sé um að kenna. Vissulega viðhalda þessi ævintýri ákveðnu samfélagsmunstri, en þau skapa það ekki, heldur upplýsa það aðeins. Það er ekki ævintýrunum og ástarsögunum að kenna að Colette Dowling getur komið fram með þessa sannfærandi greiningu á kvensálinni sem háða Ijóshærða Fabio á hestinum. Það er samfélaginu sjálfu um að kenna, sem skapar þessi ævintýri og gefur þessum afbökuðu kynjasamskiptum tæki- færi til að þrífast. Er ég háð karlmönnum? Ef ég myndi hringja í rauðhærða, fyrrverandi bólótta, 23 ára starfsmann Nóatúns sem ég hitti núna á föstudaginn, myndi ég verða háð honum? Ég er ekki haldin Öskubuskuáráttu. Colette Dowling var úti að aka þegar hún íþyngdi konum vesturlanda með þessari algildu geðveilu, að konur sæktust eftir lífi hjálpar- vana kornabarnsins og vildu helst að aðrir tækju ákvarðanir fyrir þær. Hins vegar bý ég í sýktu samfélagi sem gerir Colette Dowling kleift að koma með þessa OF sannfærandi sjúkdómsgreiningu á okkur konum. Ég bý í samfélagi þar sem lokakoss ævintýrisins, þegar prinsinn vippar prinsessunni upp á hvíta hestinn og ríður með hana niðrí næstu höll þar sem hún fær að dúsa næstu fimm árin þykja sæt, hrífandi og ó svo rómó. Ég bý í samfélagi þar sem ég er spurð í hvert skipti sem ég mæti í jólaboð hvort ég sé nú ekki búin að fá mér kærasta og byrjuð að búa til börn, eins og að þessi örlög væru þau sem ég myndi helst kjósa mér. Kemst ég nokkurn tímann undan kvöðum ævin- týrsins? Get ég verið mín eigin kona, án þess að þurfa að fylgja með eða taka tillit til krafna samfélagsins í kringum mig? Er ein- staklingur nokkurn tímann fullkomlega sjálf- stæður? Hver veit, kannski er bara kominn tími til að ég flytji norður á Melrakkasléttu. 57

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.