Vera - 01.06.1999, Page 58

Vera - 01.06.1999, Page 58
Anna Ólafsdóttir Björnsson Svo innilega satt Kvikmyndin One True Thing (Eitt er satt) hefur verið sýnd um nokkurt skeið í kvikmynda- húsum og kemur án efa út á myndbandi fyrr en varir. Þetta er bandarísk kvikmynd, tveir af þremur aðalleikurunum úr hópi þekktustu leikara þar í landi, þau Meryl Streep og WiIIiam Hurt, og sú þriðja í hópnum, Renee Zellweger (norsk-sviss- nesk), mun sjálfsagt komast í þann hóp innan skamms. myndinni mismunandi viðhorf karla og kvenna, yngri og eldri, til hefðbundinna og óhefðbundinna hlutverka kynjanna. Skotin á ýmsar birtingarmyndir kvenfyrirlitningar (hjá báðum kynjum) eru föst. Ég hef fengið sterk viðbrögð frá fleiri feministum sem séð hafa myndina og upplifað hana svipað og ég. Þessi hlið myndarinnar gerir hana líka á lúmskan hátt óhemju fyndna. William Hurt á hlakka til að horfa á hana aftur, með fjöl- skyldunni, ein og upplifa fleiri hliðar hennar. Ekki svo að skilja að hún sé torskilin í fyrsta sinn, síður en svo. En það er svo ótalmargt sem situr eftir og vekur spurningar og ég ef- ast ekki um að þessi mynd er ein af þeim fáu sem hægt er að sjá aftur og aftur og aftur. Frelsi og fyndni \ Sagan vegur þyngst Leikararnir sýna eftirminnilegan leik í þessari kvikmynd og Meryl Streep var reyndar til- nefnd til enn einna Óskarsverðlaunanna fyr- ir hlutverk móðurinnar stórmyndarlegu, Kate. Frammistaða þeirra ein og sér hefði nægt til að gera myndina að þeim betri á síðari árum. En styrkur myndarinnar liggur þó enn frekar í handritsgerðinni og þar býst ég við að sagan sem myndin er byggð á vegi þyngst. Höfundurinn, Anna Quindlen, er Pulitzer-verðlaunahafi 1992 fyrir dálka sína um opinbert líf og einkalíf í New York Times. Þeir voru gefnir út á bók sem heitir því lýsandi nafni: Hugsað upphátt. Augljós- lega byggir hún á reynslu er hún skyggnist inn í heim aðalpersónunnar, dótturinnar Ellen sem er blaðamaður og Renee Zellweger leikur. Handrit eftir bók Önnu, sem út kom 1995, er eftir Karen Croner og hennar verk er listilega af hendi leyst. Mörg aðalatriði Ég hef séð margs konar túlkun á því um hvað þessi mynd fjallar, sem betur fer EFTIR að ég sá hana. Handritshöfundurinn Karen Croner og leikkonan Meryl Streep leggja mesta áherslu á samskipti milli foreldra og barna, einkum uppkominna bama, og vissu- lega er það eitt hið mikilvægasta í myndinni. Mér finnst ekki síður merkilegt að skoða í hreint óborganlegan leik í hlutverki föðurins og gullkálfsins George. í honum speglast ótrúlega margir kunnuglegir karlmenn. Myndin fjallar líka um hvernig fólk bregst við alvarlegum veikindum sinna nánustu, af- stöðuna til dauðans og fleiri mjög áleitnar spurningar. Langar að sjá hana aftur Það skal viðurkennt að ég get varla beðið eftír að þessi mynd komi á myndband. Ég í lokin smá vangaveltur um geggjaðan frá- sagnarmáta kvikmynda nú í aldarlok. Ég er ekki að tala um dellumyndir á borð við Dumb-Dumber og Ace Ventura, eða vand- aða dellu á borð við Fargo. Heldur þann frá- sagnarmáta að takast á við alvarlegustu við- fangasefni með glannalegum húmor. Á skömmum tíma er ég búin að fara á þrjár tryllingslega fyndnar kvikmyndir. Að sjálf- sögðu ekki í frásögur færandi nema vegna þess að þessar myndir fjalla um sifjaspell, útrýmingarbúðir og krabbamein. Þrátt fyrir fyndnina er umfjöllunin í þessum þremur myndum bæði hárbeitt og af virðingu unnin. Hvort sem hér er á ferðinni frelsið sem fólk kvað leyfa sér í aldalok eða einhver póst- módernísk afbygging skiptir líklega minnstu máli. Ég vona bara að þessi frásagnarhefð nái að skjóta rótum og þróast áfram á næsta árþúsundi. Frásagnarhefð sem á stundum byggir á ofgnótt áhrifa, tilfinninga, stíl- bragða. Persóna Kate snýr í myndinni One True Thing út úr margtuggna Bauhaus-frasanum: Less is more, (minna er meira) og segir: More is more (meira er meira). Þetta er eitt af því ótalmarga sem myndin skilur eftir sig. Það þarf ekki lengur að segja eins og Memphis-hönnunarhópurinn sagði fyrir nokkrum árum: Less is a bore. More is more segir svo miklu meira. 58

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.