Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Síða 8
8
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
Hræðsla við kynlíf og að standa sig ekki sem foreldrar, hefur
mikið að segja. Ákveðinn hópur fólks, s.s. kvenna sem hafa átt
við einhver félagsleg vandamál í uppvextinum, finnst oft að með-
gangan sé ógeðfelld og að fóstrið sé snýkill sem þær sitji uppi
með. Þessar konur eru oft hræddar við vanskapnað og afbrigði-
legar fæðingar.
Ómeðvituð og meðvituð vandamál vakna oft við meðgöngu og
óttinn við það óþekkta getur valdið vítahring í meðgöngu og í
fæðingu. Þær konur sem lenda í þessum vítahring eru hinar
svokölluðu „óhemjur”, þ.e.a.s. hræddar konur.
Við getum unnið fyrirbyggjandi og hjálpað með fræðslu. Góð
fræðsla veitic öryggi. Starfsfólk má ekki bara hugsa um hvað er
að gerast líkamlega, heldur fylgjast líka vel með andlegu hliðinni.
Eins og áður segir koma fram líkamlegar og andlegar breyting-
ar i meðgöngunni og miklar tilfinningasveiflur geta orðið, allt frá
mikilli gleði til mikils þunglyndis, án þess þó að teljast óeðlilegt
ástand.
Hlutverk föðurins í meðgöngunni er mjög mikilvægt og krefst
það oft mikils þolgæðis og umburðarlyndis að eiga vanfæra eigin-
konu. Konunni finnst oft að maðurinn standi utan við ástand sitt
og vill ekki leyfa honum að vera virkur þátttakandi.
Reynt hefur verið að skýra ástand konunnar og skipta í stig eftir
lengd meðgöngu.
I. STIG. I. TRIMESTER
Á fyrstu 3 mánuðum koma oft fram miklar tilfinningaólgur,
stutt er á milli hláturs og gráts. Líkamleg vanlíðan kemur oft
fram í formi þreytu og ógleði og svimi er algengur. A þessu stigi er
konan ósjálfstæð, þarf meiri stuðning, meiri eftirtekt og samúð.
II. STIG. II. TRIMESTER
Annað stig meðgöngu er tími eftirvæntingarinnar, barnið verð-
ur áþreifanlegra. Konan fer að finna fósturhreyfingar, og er
oftast ánægð með ástand sitt, lífið og tilveruna.
III. STIG. III. TRIMESTER
Á þrem síðustu mánuðunum aukast sálrænu erfiðleikarnir
aftur. Konan verður kvíðin, óróleg, og oft grípur hana sú
hugmynd að hún fæði andvana eða vanskapað barn. Þá kemur
stundum sú tilfinning að nú verði ekki aftur snúið og upp hleðst