Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 46

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 46
46 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Engum dytti í hug að fela ófaglærðu fólki að fást við fæðingarhjálp. Að fá mæðravernd í hendur fólki lítt menntuðu á þessu sviði er jafn fráleitt og ber að spyrna fótum við þeirri þróun vegna þeirrar staðal- lækkunar, sem óhjákvæmilega mundi af því leiða. Stjórn Félags íslenskra kvensjúkdómalækna Guðmundur Jóhannesson, gjaldkeri SigurðurS. Magnússon, l'ormaður. Andrés Ásmundsson, ritari. Bréf til Alþingis 777 fjárveitingarnefndar A L Þ I N G I S Ljósmæðrafélag íslands þakkar hér með háttvirtri fjárveiting- arnefnd Alþingis fyrir það framlag kr. 300.000.-, sem hún veitti félaginu á fjárlögum ársins 1979 til að styrkja útgáfu stéttartals Ijósmæðra. Félagið leyfir sér að fara þess á leit við háttvirta fjárveitinga- nefnd að hún veiti félaginu styrk til umræddrar útgáfu einnig á fjárlögum ársins 1980. Vonir standa til þess að ritið komi út á ár- inu. Útgáfan er umfangsmikil en tafsöm og kostnaður við útgafu ritsins ógnvekjandi fyrir fámennt og févana stéttarfélag. Ljós- mæðrafélag íslands lítur hinsvegar á það sem skyldu sína að sjá um að þessi merki þáttur í þjóðlífinu og nöfn ljósmæðranna falli ekki með öllu í gleymsku. í von um vinsemd og skilning háttvirtrar fjárveitinganefndar á þessu máli. Virðingarfyllst Steinunn Finnbogadóttir formaður.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.