Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 29

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 29
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 29 Ástæðan fyrir dysmaturitas er oft og einatt sýking í móður- kviði, annað hvort af völdum baktería eða veira. Börn sykursjúkra mæðra haga sér venjulega eins og fyrirburðir, enda þótt fullburða séu. Hvers konar inngrip, sem krefst áhalda, hefur í för með sér aukna hættu á sýkingu. í því sambandi má nefna fæðingartengur, sogklukkur, naflaslöngur og barkaslöngur. Notkun allra þessara áhalda, einkum tveggja þeirra síðasttöldu, hefur í för með sér aukna hættu á bakteríusýkingum. Það hefur valdið mönnum nokkrum heilabrotum, hvernig standi á því að nýfæddir drengir hafa meiri tilhneigingu til sýkinga en nýfæddar telpur. Nú er talið nokkuð öruggt, að stað- setning genanna, sem stjórna immunoglobulin framleiðslu sé á X chromosomi.8 Þannig hafa telpur með sín 2X skjótari viðbrögð til framleiðslu immunoglobulina en drengir. Sýnt hefur verið fram á, að 6 ára og eldri hafa telpur hærri kon- sentration á immunoglobulin-M en drengir.9 Einkenni Á töflu 3 eru talin upp helztu klinisku einkenni sepsis neonator- um. Með nokkru sanni má segja, að öll þessi einkenni komi fram hjá nýburanum við fjöldan allan af öðrum sjúkdómanokkum en bakteríusýkingum. Það vill því oft verða svo, að el' eittlnað ber út af með kliniskan feril nýbura, er grunur um bakteríusýkingu mjög ofarlega í huga starfsfólksins. Því eru oft teknar ræktanir og ný- burar settir á sýklalyfjameðferð, margfalt oftar en bakteríusýk- ing er sönnuð. Nýburi með sepsis neonatorum er veikt barn með slæmar lífshorfur. Þess vegna er nauðsynlegt að láta ekki byrjunareinkenni óséð, en ol't eru þau ekki annað en linka, lélegt sog og óstöðugur líkamshili. TAFLA3 Symptoms Lethargy Poorsuek Weighl loss l'AFLA 4 I ahoivtorv aids White blood eells l'luomboeytes Blood glueose

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.