Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Qupperneq 16
16
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
500 ml. mjólkur, en það verður að teljast lítið magn. Skýrt hefur
verið frá tilfelli um hæmolytiskt anæmi hjá barni á brjósti, þar
sem móðirin notaði þetta lyf.
Metronidazol t.d. (Flagyl ®) berst í mjólk í miklu magni og skal
því ekki gefa konum með börn á brjósti.
Psykofarmaka (geðlyf)
Chlorpromazin berst aðeins í svo litlu magni í mjólkina að það
er ekki talin vera nein hindrun að hafa barn á brjósti.
Imipramin og Opipramol t.d. (Tofranil® og Ensidon® ) berast
í svo litlu magni í mjólkina, og hafa ekki áhrif á barnið.
Amfetamin berst í mjólkina, en ekki er vitað um þau áhrif sem
það gæti haft á barnið.
Það skal því ekki gefa konum með börn á brjósti því að lyfið
getur orðið vanabindandi.
Koffein berst í mjólkina, en það virðist ekki hafa áhrif á barn-
ið.
Litium er hægt að finna í litlu magni í mjólkinni, ef það er not-
að. Almennt er ráðið frá að nota það jafnvel þótt ekki hafi sést
neinar öruggar aukaverkanir.
Endokrinologisk lyf (hormónalyf)
Kortikosteroidar, Progesteron og Östrogen berast í litlum mæli
í mjólkina, en þau geta lengt gulu (icterus) hjá nýfæddu barni
fyrst eftir fæðingu með því að setja enzymkerfi í lifrinni úr sam-
bandi. Sumar konur útskilja í mjólkinni talsvert magn af hormón-
inu pregnandiol fyrst eftir fæðinguna. Þetta tefur fyrir því að en-
zymið glukuronyltransferases verði virkt og veldur þar með neon-
atal icterus sem gæti framlengst um nokkrar vikur. Progesteron í
getnaðarvarnalyfjum (P. pillunni) dregur einnig úr mjólkurfram-
leiðslunni hjá konunni, ef hún byrjar að nota P. pilluna fljótlega
eftir fæðinguna, en eftir að nokkur tími er liðinn frá fæðingu og
mjólkurframleiðslan hefur aðlagast þörfum barnsins virðast
áhrifin minni, þ.e. ef notaðar eru nýrri gerðir af P. pillum sem
innihalda lítið östrogen, daglegur skammtur östrogens sé ekki yfir