Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Page 23
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
23
10. Athugið hvort barnið hefur ælt næringu upp i munn að mál-
tíð lokinni.
11. Hreinsið sonduna með því að dæla 1—2 ml. af sterilu vatni í
gegn.
12. Barnið er látið liggja á hægri hlið í 30 min. eftir hverja gjöf.
Því næst á að snúa því
á bak, vinstri hlið eða maga eftir ástæðum.
13. Sondan er látin liggja á milli mála ef barnið er sondumatað í
annað hvort skipti eða oftar.
14. Sonda sem liggur í maga að staðaldri er fjarlægð eftir einn
sólarhring, og ný lögð í staðinn í hina nösina.
Magaskolun nýbura
Ungbörn, sem gjörn eru á að æla fyrst eftir að farið er að gefa
þeim næringu per oz gæti verið gott að magaskola.
Ástæðan er oft sú að þau hafa drukkið blóðblandað legvatn,
eða sár hafi myndast á brjóstvörtu móður og blætt úr við brjósta-
gjöf.
Lögð er niður sonda um nef á venjulegan hátt. Fylgist vel með
því að sondan liggi í maga. Magainnihaldi er dælt upp og því
fleygt.
Dregið er upp í sprautu 10 ml. af aqua sterilisata og því síðan
dælt niður í maga.Barninu er nú velt sitt á hvora hliðina í nokkur
skipti.
Vatninu er dælt upp og því fleygt. Þetta er endurtekið eftir
þörfum eða þar til magaasp. er orðið hreint. Næringargjöf gengur í
flestum tilfellum vel á eftir.
15. mars 1980
Jóhanna V. Hauksdóttir
Ijósntóðir.
HEIMILDIR:
Inl'ant Gavage Reconsidercd hy Mary Ziemer and Jane S. C'arroll Ameriean
Journal ol' Nursing / Sepleinber 1978.
Kcnnsiuglósur úr l.jósnucðraskóla íslands.
I.ciðbciningar Irá Vökudeild Barnaspilala Hringsins.