Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Side 10
Greinin er þýdd: úr Tidskrift for Jordemödre,
nr. 8, ágúst 1990, 100. árgangur.
LISSY RASMUSSEN hjúkrunarfræðingur og
INGER HERTELIUS leiðbeinandi í ungbarnanuddi
En hvað þú ert lítil í þér
Skilningur á líkamstjáningu
fyrirbura er undirstaða að betri
umönnun þeirra. Væntingar og
viðbrögð sem gilda um börn
fædd á tíma verða ekki fyrirvara-
laust færð yfir á fyrirbura.
Ætlun okkar var að kenna foreldrum
og starfsfólki sængurkvennagangs
sjúkrahússins í Oðinsvéum nudd fyr-
irbura á grundvelli jákvæðrar niður-
stöðu rannsókna og eigin reynslu af
nuddi nýbura fæddra á tíma. Atburða-
rás og innihald áætlunarinnar ,,Nudd
fyrirbura“ varð þó önnur en sú sem við
höfðum hugsað okkur.
Hugmyndin var sú að safna dönsku
efni til staðfestingar því að hollt væri að
nudda fyrirbura — jafnvel meðan þeir
væru í súrefniskassa. En strax í upphafi
varð okkur ljóst að erfitt var að meta
hvenær snerting verkaði jákvætt á barn-
ið og hvenær íþyngjandi. í stað þess að
kenna nudd hófum við að kanna kerf-
isbundið viðbrögð barnanna við
mismunandi snertingu. Við báðum for-
eldrana um að halda stillilega utan um
börnin og strjúka þau ýmist létt eða fast
um handleggi og bak.
Þetta gaf okkur ærið íhugunarefni.
Við komumst meðal anrtars að eft-
irfarandi:
• Börnin sefuðust þegar foreldrarnir
þrýstu höndunum stillilega að þeim.
• Börnin urðu óróleg og spennt þegar
foreldrarnir struku þau.
Einnig komumst við að því að eðli
daglegrar umönnunar, þroski barnsins
og umhverfi þess og foreldranna skipti
verulegu máli fyrir hæfileika barnsins
að taka við skyn- og snertiboðum. Við
erum komnar að þeirri bráðabirgðanið-
urstöðu eftir athuganir okkar á börnum
og foreldrum þeirra í tengslum við verk-
efnið að ekki eigi að taka upp nudd
sem þátt í daglegri umönnun fyrirbura.
Þess í stað teljum við:
• að veita þurfi líkamstjáningu barns-
ins og merkjamáli meiri athygli og
afla þekkingar á því,
• að aðstaða á fæðingardeildum verði
þannig að unnt verði að taka nægjan-
legt tillit til vanþroska skynfæra
barnanna,
8
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ