Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Síða 21
SR. BRAGI SKÚLASON:
Missir barna
Inngangur
Fyrr á öldum má segja að dauðinn
hafi verið nær daglegu lífi fólks hér á
landi en nú er. Fólk fæddist heima og
dó heima. Heilsugæsla var ekki eins
SÓð og nú er og meðal ævilengd var
mun styttri en í nútímanum. Með bættri
heilsugæslu og aukinni þekkingu á
starfsemi mannslíkamans getum við bú-
ist við að lifa lengur og við betri heilsu
en áður var mögulegt. En nú fæðumst
við flest á sjúkrahúsi og þar lýkur jafn-
framt göngu margra. Dauðinn er þar
með ekki lengur jafn nálægur daglegu
lífi fólks og áður var. Meira að segja eru
margir á því, að við eigum fyrst og
fremst að hugsa um lífið og lífsnautn-
■na, en ekki dauðann og gröfina.
Það er inn í þessar aðstæður að mig
langar til að koma með innlegg í um-
ræðu um missi barna. Einungis þeir,
sem hafa misst börn, finna til fulls þann
mikla sársauka, sem slíkum missi fylgir.
I nútímanum hefur efnahagur og
Setnaðarvarnir mikil áhrif á hvenær for-
eldrar kjósa að eiga börn. Fólk skipu-
leggur framtíðina út frá margvíslegum
forsendum og það, hvenær tími er til að
eiga börn, er hluti af framtíðarskipulag-
'iu. En svo deyja sum þessara barna.
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ __________________
Hér er rétt að nefna, að tíðni ung-
barnadauða hér á landi er með því allra
lægsta í heiminum, á meðan við líðum
fyrir stærra hlutfall dauða barna og ung-
linga í slysum, en víðast hvar í hinum
vestræna heimi. En engu að síður, þá
eru þær fjölskyldur, sem missa börn
sín, í miklum minnihluta. Reynsla þeirra
er reynsla hinna fáu og það getur ýtt
undir einangrun þessara einstaklinga í
samfélagi, sem dýrkar lífið, æskuna og
sólina.
En við upplifum missi við fleiri að-
stæður en við dauða. Missir verður við
skilnað, þegar barn fæðist fatlað, þegar
slys svipta heilbrigðan einstakling hluta
af lífi sínu og svo mætti lengi telja.
Missir/sorg
Yfirskrift þessarar greinar felur
tvennt í sér: Missi, sem ættingjar verða
fyrir, þegar börn innan fjölskyldu deyja,
og þann missi, sem börn upplifa við
dauða ættingja. En jafnframt felur hún
í sér missi við aðrar aðstæður en við
dauða.
Sorgarviðbrögð eru mörg og marg-
vísleg, einstaklingsbundin, fara eftir eðli
______________________ 19