Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Side 27
HULDA JENSDÓTTIR ljósmóðir:
Vidarkliniken —
Járna
Nýverið átti ég þess kost að heim-
sækja Vidarkliniken í Járna í Svíþjóð.
Vidarkliniken er sjúkrahús rekið á
nokkuð frábrugðin hátt, þar sem nátt-
úrulyf skipa stóran sess ásamt jurta-
fæði, sem valið er sérstaklega fyrir
hvern einstakan sjúkling eftir þörfum
hans og krankleika. A miðvikudögum
eru á boðstólum fiskréttir fyrir þá sem
vilja. Sama fæði er fyrir alla sjúklinga
og starfsfólk og vekur athygli, að sjúk-
lingar með fótavist og sem þess óska,
matast ásamt með starfsfólki í notalegri
borðstofu. Einnig er að finna hlýlega
kaffistofu, þar sem hægt er að kaupa
kaffi, kökur o.fl. og er hún öllum opin.
Fyrir þá sem ekki þekkja til þeirra
meginreglna, sem starfið í Járna bygg-
>st á, vekja athygli form og ljúfir litir
sem maður á ekki að venjast í sjúkra-
húsum almennt. Þess má geta að litir
skipa stóran sess í meðhöndlun sjúkl-
>nga, t.d. taugasjúklinga, en þeir eru
margir á Vidarkliniken. Það er þá gjarn-
an fólk sem hefur gefist upp á hefð-
bundinni meðferð. — Órólegt fólk fær
t-d. herbergi með viðurkenndum ró-
andi litum. Fólk, sem þjáist af þung-
'yndi fær herbergi með upplífgandi
'itum o.s.frv.
Annað, sem er frábrugðið í Járna,
eru danshreyfingarnar ,,Eurytmi“, sem
sjúklingarnir læra og sem á að hjálpa
þeim til sigurs í baráttunni við hina ýmsu
sjúkdóma. Hér er einnig viðhöfð
,,musikterapi“, mjög einföld en áhrifa-
rík, til að losa um spennu og innilokan-
ir. Manneskjan öll er tekin með í
baráttunni við þann sjúkdóm sem virð-
ist ráða ferðinni. Sjúkraþjálfunardeild
er starfrækt með nuddi, böðum og
öðru- þar að lútandi.
Fyrir mörgum árum starfaði ég við
heilsuhæli í Södertálje, borg sem er ör-
skammt frá Járna. Sumir starfsfélaga
minna og vinir æ síðan tilheyrðu hreyf-
ingu sem kallast atroposofisk hreyf-
ing og byggist á kenningum heimspek-
ingsins og listamannsins Rudolfs Stein-
er, sem og það starf allt sem unnið er í
Járna. Eg var því oft tíður gestur og hefi
æ síðan fylgst grannt með þróun mála í
Járna og komið þangað eins oft og ég
hefi getað komið því við. Á ýmsu hefur
gengið, sem oft vill verða, þegar fólk
ekki fylgir stefnu og straumi fjöldans.
♦Férð mín til Járna að þessu sinni var
fyrst og fremst til þess farin að hitta
ljósmæður staðarins. Báðar hafa þær
stárfað í áraraðir við fæðingahjálp,
ljósmædrablaðið
__ 25