Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Page 30
RAGNHEIÐUR BJÖRGVINSDÓTTIR, ljósmóðir:
Sendibréf frá Spáni
Santiago de Compostela, Spáni í september 1990
í tilefni 20 ára afmælis míns og skóla-
systra minna er útskrifuðumst úr
L.M.S.Í. 1970 datt mér í hug að skrifa
nokkrar línur í Ljósmæðrablaðið. Eg
hefi oft hugsað mér að skrifa, en aldrei
hefur orðið af því. Einhver góð skóla-
systir sendir mér alltaf af og til blaðið og
hefi ég mjög gaman af að heyra frá
ykkur heima á Fróni. Eg sendi því þakk-
ir fyrir blaðið. Þið eruð mér samrýndari
en stöllur okkar hér á Spáni, og dug-
legri að öllu leyti finnst mér. Það að fá
blaðið finnst mér að færi mig nær
ykkur og að ég sé aðeins inni í málum
heima.
Ég heiti Ragnheiður og er ofan af
Akranesi. Ég hefi verið búsett hér á
norðvesturhorni Spánar síðan 1971 og
líkar vel. Þó þurfti ég að taka hjúkrun-
arpróf og próf í ljósmóðurfræðum hér
til að fá réttindi mín viðurkennd. Fyrstu
ár mín hér vann ég ekki en fór á tveggja
ára fresti heim til íslands og leysti í
nokkur skipti af ljósmæður í sumarleyf-
um á Skaganum. Ég fékk svo fasta
vinnu hér 1983, byrjaði á gömlu
sjúkrahúsi við lélegar aðstæður. Oft
bað ég Guð að hjálpa mér, en þarna
fæddu sígaunar og fátækar konur sem
ekki voru í sjúkrasamlagi. En núna frá
því í ársbyrjun 1990 eru allir í sjúkra-
samlagi hér á Spáni, þótt þeir hafi ekki
28__________________________________
vinnu. Þeir eiga alla vega rétt á sjúkra-
þjónustu.
Sá tími sem ég vann á þessu sjúkra-
húsi er vart í frásögur færandi og því lýsi
ég honum ekki hér í blaðinu. En árið
1985 fluttum við í stórt og gott sjúkra-
hús, sem þó er enn fyrir þessa sem kall-
aðir eru á bænum eins og mig minnir
að það sé orðað á Islandi. En hjá okkur
fæðast um 250 börn á ári. Fæðingum
hefur íarið fækkandi eins og alls stað-
ar. Hér í Santiago er svo eitt stórt
sjúkrahús (háskólasjúkrahús) með um
10—15 fæðingar á sólarhring að með-
altali og tvö einkasjúkrahús, og stund-
um eru okkur sendar konur þaðan ef
þar er ekki pláss.
Hér liggja sængurkonur venjulega í
72 klukkustundir eftir eðlilega fæð-
ingu. Við erum með góðan tækjabún-
að, 4 mónitora sem konur eru settar í
um leið og þær koma inn og eru not-
aðir af og til allan tímann uns þær fæða.
Við erum með tvær fæðingarstofur og
herbergi fyrir útvíkkunartímabil. Hér
starfa 5 fastráðnar ljósmæður, og með
okkur á vakt eru einn hjúkrunarfræð-
ingur og einn sjúkraliði. Börnin eru inni
hjá mæðrunum allan tímann, en hér er
sérstakt herbergi til að baða börnin og
þar er hægt að hafa vöggur. Við höf-
um pláss fyrir 12 sængurkonur.
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ