Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Síða 32
þann tíma sem útvíkkunin stendur yfir,
en sumar stöllur mínar hafa ekki þann
sið á. Við Ijósur hér tökum síðan á móti
öllum eðlilegum fæðingum. Eftir kl. 3
á daginn erum við einar á vakt en lækn-
ir á bakvakt sem ná má til í síma. Þetta
er ekki nógu gott og stendur til að
breyta þessu, vonandi sem fyrst. Hér
er allt með mjög svipuðum hætti og
heima, nema hvað miklu meira er hlúð
að konum á Islandi og fræðsla er meiri
og hjálp á öllum sviðum. Eg vona að
allt þetta breytist til batnaðar með
árunum.
Kannski skrifa ég nokkrar línur
seinna, vona að einhverjar hafi gaman
af þessum línum. Eg sendi mínar bestu
kveðjur til allra skólasystranna og ann-
arra kollega á Fróni. Eg sakna ykkar
oft. Gangi ykkur allt í haginn.
Ykkar einlæg,
Ragnheiður.
Ritstjóri þakkar bréfið og sendir stéttar-
kveðjur yfir hafið.
Handbók Ljósmœðra 1991
Handbók ljósmæðra, ,,Fylgja“, fyrir árið 1991 kemur út
í byrjun desember. Útliti kápu verður breytt. Bókin verður
seld í áskrift og send heim til fólks. Hún mun kosta 600 kr.
nú í ár. Þeir sem vilja gerast áskrifendur láti LMFÍ vita
í síma 617399 (símsvari, nema opið á mánud. kl. 13—17).
Athugið að áskriftin gildir um ókomin ár nema henni sé sagt
upp. Upplagið er takmarkað og öruggast að panta fyrir
1. desember.
Bestu kveðjur,
Helga Birgisdóttir, ritstjóri Fylgju.
30
1—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ