Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Síða 40

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Síða 40
Karen Kaufman frá Kanada hélt fyrsta erindið. Hún talaði um nauðsyn á ljósmæðrarannsóknum. Kerfis- bundna athugun vantar á því sem ljós- mæður læra af því að stunda ljósmóð- urstörf. Stunda þarf rannsóknir starfs- ins vegna, þ.e. til að festa í sessi eigin ljósmóðurfræði, standa sjálfar á eigin fótum. Ljósmæður verða að vita um rann- sóknir og stunda þær vegna þess að: — rannsóknir eru forsenda fyrir þróun ljósmóðurfræðinnar, — við verðum að geta metið rann- sóknir annarra faghópa, sem geta haft áhrif á ljósmóðurstörf okkar. Hverjir aðrir en ljósmæður munu spyrja um atriði eins og: — fæðingar utan sjúkrastofnana, — að forðast spangarskurði, — breytilegar fæðingarstellingar, — brjóstagjafir, — þátttöku systkina í fæðingu, o.m.fl. Aðeins traustar og góðar rannsóknir gefa ljósmæðrum tækifæri til að hafa áhrif á starfsvettvang sinn og þar með viðgang fagsins. Karen minntist einnig á það að ekki væri nauðsyn á því að all- ar ljósmæður væru sérfræðingar í rann- sóknum, heldur gætu allar lesið um rannsóknir og notfært sér niðurstöður þeirra. Karen fór siðan lauslega í grunnatriði vinnunnar við rannsóknir eins og það að — skilgreina spurningu, — hverjir eru þátttakendur, — hvað á að rannsaka — kanna, — hvar á rannsóknin — könnunin að fara fram, — breytilegar aðferðir. Síðar um daginn var sett upp áætlun fyrir rannsóknarvinnu og hluti af því var að læra að meta niðurstöður rann- sókna. Er titillinn áhugaverður/kemur þetta að gagni? Er höfundur áhugaverður? Lesa úrdráttinn: Hver var spurningin? Hverjir og hvað var rannsakað? Hvaða niðurstöður? Eru niðurstöðurnar (ef til staðar) gagnlegar? Ef svar við ofangreindu er jákvætt skaltu lesa greinina. Eftir þennan fróðlega dag fórum við í Ráðhúskjallarann að borða ásamt sænskum og norskum ljósmæðrum. Þar voru umræður mjög líflegar yfir borðum. Laugardagurinn byrjaði með því að lýst var fyrir okkur þrem mismunandi rannsóknaraðferðum. Mavis Kirkham frá Bretlandi talaði um „Descriptive design“. Þessi aðferð felst í því að rannsóknaraðilinn fylgist með fólki og skráir niðurstöður sínar. Þessu er oftast nær fylgt eftir með opnu viðtali, þ.e. ekki er spurf beinna spurn- inga heldur rætt um ákveðið efni. Mavis sagði m.a.: Það er mikilvægt að fylgjast með því sem fólk gerir og hlusta eftir því hvað þetta sama fólk seg- ir að það geri, því að þessir hlutir fara ekki alltaf saman. Þessi aðferð er not- uð til að læra af fólki. 38 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.